Fréttablaðið - 23.09.2017, Blaðsíða 72
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Veitingahúsið Þrír frakkar verður 30 ára eftir tvö ár. Úlfar og Stefán, sonur hans,
hafa lagt áherslu á að gestir geti
alltaf gengið að sínum réttum. „Ef
við tökum einhvern rétt af mat-
seðli er stöðugt spurt um hann,“
segir Stefán. „Plokkfiskurinn okkar
hefur verið mjög vinsæll og við
gerum honum alltaf hátt undir
höfði. Í gamla daga voru settir
afgangar í plokkfisk en hjá okkur
er ekkert til sparað og eingöngu
eðalhráefni notað. Plokkfiskur er
stolt íslensku húsmóðurinnar og
við eigum marga fastagesti sem
koma reglulega til að smakka á
honum. Við klæðum plokkfiskinn
í kjólföt,“ segir Stefán sem var alltaf
ákveðinn í að verða kokkur eins
og pabbinn. Nú er sonur Stefáns
í læri hjá honum. Kokkastarfið
gengur því mann fram af manni í
þessari fjölskyldu. „Ég er alinn upp
í eldhúsinu og matargerðin hefur
alltaf verið líf mitt og yndi. Faðir
minn varð sjötugur fyrir stuttu en
hann hefur ekki tekið sér sumarfrí
í sextán ár, það var kominn tími
til að hann færi að slaka á. Hann
kemur þó alltaf til okkar, annað
hvort til að heilsa upp á kunnug-
lega gesti eða hjálpa til í eldhúsinu.
Hann hefur glímt við erfið veikindi
en er á batavegi og getur farið að
njóta lífsins,“ segir Stefán en Þrír
frakkar eiga stóran hóp fastagesta
í hádeginu. „Á kvöldin er meira
um erlenda ferðamenn. Einnig er
algengt að íslenskir viðskiptamenn
komi með erlenda gesti sína.“
Góð stemming í sláturgerð
Stefán er alinn upp við slátur
og sláturgerð. „Slátur er góður
matur. Þegar amma mín var á lífi
var fjölskyldunni hóað saman í
sláturgerðina. Allir hjálpuðust að
við að sauma vambir og allt var
hakkað í handsnúinni hrærivél.
Amma hrærði blönduna í stórum
bala. Það eru góðar minningar
frá þessum tíma og mikil stemm-
ing sem myndaðist. Þetta voru
skemmtilegar samverustundir. Svo
hittist fjölskyldan aftur til að skera
út laufabrauð fyrir jólin,“ segir
Stefán. „Við erum ekki með slátur
Tók við 3 frökkum af pabba
Stefán Úlfarsson matreiðslumaður hefur tekið yfir rekstur á veitingahúsi föður síns, Úlfars Ey-
steinssonar, Þremur frökkum. Stefán segir að matarsmekkur fólks sé öðruvísi á sumrin en haustin.
Kótelettur í raspi
er uppáhalds-
matur margra.
Það er einfalt að
útbúa þennan
rétt.
MYND/EYÞÓR
Stefán Úlfarsson matreiðslumaður hefur tekið við rekstri á Þremur frökkum af föður sínum. MYND/EYÞÓR
á matseðlinum okkar en bjóðum
stundum upp á forréttabakka með
lifrarpylsu, súrum hval og þess
háttar. Það er eiginlega smakk fyrir
útlenda gesti. Við leggjum mikla
áherslu á að bjóða íslenskan mat
úr okkar eigin náttúru.“
Stefán segir að á fyrstu árum
Þriggja frakka hafi Íslendingar ekki
pantað sér fisk á veitingahúsum.
„Þeir fengu nóg af soðningunni
heima hjá sér. Við þóttum framúr-
stefnulegir að vera með sjávar-
réttastað. Við fundum strax áhuga
erlendra ferðamanna á íslenska
fiskinum. Eftir að hinn kunni mat-
reiðslumaður Anthony Bourdain
gerði þátt um okkur fundum við
verulega aukinn áhuga hjá útlend-
ingum á að fá sér plokkfisk,“ segir
Stefán sem gefur hér uppskrift að
vinsælum haustrétti, kótelettum í
raspi. „Þetta er gríðarlega vinsæll
réttur. Við erum alltaf með nokkra
kjötrétti á matseðlinum, lamba-
kjöt, hvalkjöt, svartfugl, lunda og
hrossalundir svo eitthvað sé nefnt.“
Kótelettur í raspi að
hætti togarasjómanna
Kótilettur 3 til 4 á mann eftir
stærð
Kóteletturnar eru lamdar (flattar
út)
Síðan er þeim velt upp úr hveiti
svo eggjablandan loði betur við
kjötið, síðan velt upp úr eggja-
hræru með salti og pipar og að
lokum velt upp úr raspi.
Steikt upp úr miklu smjöri á
miðlungshita þannig að þær verða
gullinbrúnar á hvorri hlið, um það
bil 3-4 mínútur.
Raðið kótelettunum í ofnskúffu og
setjið meira smjör ofan á. Bakist í
ofni í 30 mínútur á um 140°C.
Meðan kóteletturnar eru í
ofninum er gott að sykurbrúna
kartöflur og laga brúna sósu.
Kóteletturnar eru bornar fram
með grænum baunum, rauðkáli og
rabarbara sultu.
JÓLABLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út
þriðjudaginn 28. nóvember.
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband
við auglýsingadeild Fréttablaðsins:
Símanúmer
512 5402
Netfang
serblod@365.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . S E p T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-D
2
5
0
1
D
D
2
-D
1
1
4
1
D
D
2
-C
F
D
8
1
D
D
2
-C
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K