Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 96
Laugardagur til lista
Arion banki býður þér á opnun sýningar á verkum
Sigurðar Guðmundssonar í höfuðstöðvum bankans
að Borgartúni 19 í dag, laugardag.
Sýningin verður opnuð með fyrirlestri Gunnars J. Árnasonar
listheimspekings um verk Sigurðar. Fyrirlesturinn
hefst kl. 13.30.
Allir hjartanlega velkomnir
arionbanki.is/list
Mikill fjöldi leik-stjóra tekur þátt í RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, í ár en hátíðin hefst í
næstu viku. Þeirra á meðal eru Tinna
Hrafnsdóttir, Þóra Hilmarsdóttir,
Vala Ómarsdóttir og Eva Sigurðar-
dóttir.
Tinna er leikstjóri og framleiðandi
stuttmyndarinnar Munda auk Freyju
Filmwork og Pegasus. „Bergþóra
Snæbjörnsdóttir skrifaði handritið,
það var eitt af fimm sem sigruðu í
handritakeppni Doris sem haldin var
á vegum Wift, félags kvenna í kvik-
myndagerð. Eftir að ég fékk það fyrst
í hendurnar gerði Bergþóra nokkrar
aðlaganir en myndin átti upphaf-
lega að heita Eikí Breikí hjarta,“ segir
Tinna og bætir við að ýmislegt hafi
breyst í samstarfi við handritshöfund
þótt meginhugmyndin hafi haldið
sér.
„Myndin fjallar um þráhyggju,
hvernig við bælum tilfinningar
okkar og hversu nauðsynlegt það er
fyrir okkur að gera þær upp. Aðal-
persónan Munda er ómannblendinn
prestur á sjötugsaldri. Einn daginn
er henni gert að hætta störfum, lífið
fer á hvolf en hún finnur sína leið til
að horfast í augu við sjálfa sig,“ segir
Tinna.
Hún er að vonum ánægð enda
hefur Munda verið valin til þátttöku
í aðalkeppni stuttmynda á kvik-
myndahátíðinni í Varsjá, en hátíðin
er með þeim virtustu í heiminum.
„Þetta er mikill heiður, ég þurfti að
draga til baka þátttöku myndarinnar
á öðrum hátíðum þar sem þeir gera
kröfu á Evrópufrumsýningu. Hins
vegar er mér heimilt að sýna mynd-
ina heima áður og því verður hún
frumsýnd á RIFF,“ segir Tinna.
Vala leikstýrir stuttmyndinni
Mamma ætlar að sofna. „Ég byggi
handritið á samnefndu ljóði eftir
Davíð Stefánsson. Ég er að túlka þetta
myndrænt. Myndin fjallar um móður
og tvær dætur hennar. Ég er svolítið
að leika mér með það súrrealíska,
móðirin gengur í gegnum erfiðleika
sem hún reynir að vernda dætur
sínar fyrir. Það tekst ekki, erfiðleik-
arnir leggjast á dæturnar,“ segir Vala
frá. „Ég er svolítið ný að koma inn í
þennan heim, kem úr sviðslistum. Ég
hef mikinn áhuga á því að vinna með
súrrealisma og setja hann inn í hvers-
dagsleikann. Þetta er ljóðræn mynd.“
Þóra sýnir stuttmynd sína Frelsun.
Þetta er hennar önnur stuttmynd
en handritið skrifar Snjólaug Lúð-
víksdóttir. Myndin mun keppa á
kvikmyndahátíð Nordisk Panorama
Fjórir leikstjórar á RIFF ræða verk sín
Kvikmyndaleikstjórarnir Tinna Hrafnsdóttir, Þóra Hilmarsdóttir, Vala Ómarsdóttir og Eva Sigurðardóttir
sýna kvikmyndir sínar á RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð, í ár og segja frá verkum sínum.
Vala, Þóra,
Eva og Tinna
ræddu við
blaðamann
um kvik-
myndir sínar
á kaffihúsinu
Gráa kettinum
í Reykjavík.
FRéTTablaðið/
Hanna.
í flokknum besta skandinavíska
stuttmyndin. „Snjólaug skrifaði líka
með mér handritið að minni fyrstu
kvikmynd, Sub Rosa. Við erum góðar
vinkonur og vinnum ákaflega saman.
Við höfum báðar mikinn áhuga á trú,
sértrúarsöfnuðum og þeim siðferðis-
spurningum sem kvikna í tengslum
við trú. Aðalsöguhetjan tilheyrir sér-
trúarsöfnuði sem bannar blóðgjafir
en fær engu að síður blóðgjöf í æð
á sjúkrahúsi,“ segir Þóra en hún og
Snjólaug ræddu við fyrrverandi með-
limi sértrúarsafnaða í undirbúningi
fyrir myndina.
Eva Sigurðardóttir sýnir stutt-
myndina Cut á RIFF. Myndin fjallar
um hefndarklám og fitness-heiminn.
Myndin var sýnd á Motuvun-hátíð-
inni í Króatíu í sumar og verður sýnd
í Helsinki bráðlega. „Myndin fjallar
um unga stúlku sem skráir sig í fitness-
keppni. Hún er fórnarlamb hefndark-
láms og vill breyta ímynd sinni.“
Eva ræddi við ungar stúlkur á
Íslandi og Bretlandi um sýn þeirra
á hefndarklám. „Þannig þróaðist
handritið en ég horfði líka á fitness-
keppnir og kynntist þessum heimi
svolítið.“ kristjanabjorg@frettabladid.is
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r56 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-7
4
8
0
1
D
D
2
-7
3
4
4
1
D
D
2
-7
2
0
8
1
D
D
2
-7
0
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K