Fréttablaðið - 23.09.2017, Page 108
Heimildarmyndin Amateurs in Space ( V i ð va n i n g a r í geimnum) sem sýnd verður á RIFF hefur vakið mikla
athygli, sérstaklega í ljósi þess að
hinn danski Peter Madsen, sem er
sakaður um að hafa myrt sænska
blaðamann inn Kim Wall um borð
í kaf báti sín um í ágúst, er í stóru
hlutverki í myndinni. Amateurs in
Space er saga tveggja vina sem eiga
sér þann draum að ferðast út í geim
í heimagerðri geimflaug og Madsen
er annar þeirra.
Leikstjóri Amateurs in Space, Max
Kestner, hefur enn ekki tjáð sig um
þá staðreynd að Madsen, ein aðal-
persóna myndarinnar, sé grunaður
um morð. „Ekki enn þá, við bíðum
bara eftir yfirlýsingu frá honum um
málið,“ segir Andrea Eyland, kynn-
ingarfulltrúi kvikmyndahátíðar-
innar RIFF.
Þess má geta að Madsen neitar að
hafa orðið Walls að bana en greindi
frá því í vitnisburði fyrir dómara að
Wall hefði látist af slysförum um
borð í kafbátnum og að hann hefði
kastað líkinu fyrir borð í grennd við
Køge-flóa. Hann situr í gæsluvarð-
haldi til 3. október.
Amateurs in Space verður sýnd á
RIFF í Háskólabíói þann 28. septem-
ber og 7. október og í Norræna hús-
inu þann 5. október. – gha
Peter Madsen í einu
aðalhlutverkinu
Leikstjórinn Max Kestner hefur ekki tjáð sig um þá staðreynd að
Peter Madsen, ein aðalpersóna heimildarmyndar hans Amateurs in
Space, situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um morð. Myndin fjallar
um Madsen og vin hans og draum þeirra um að komast út í geim.
Smáforritið
Karitas
Sveinsdóttir
Skemmtilegasta smáforritið?
Ætli ég hafi ekki
hlegið mest yfir
Snapchat. Ég
er alltaf að fá
vídeó-skilaboð
frá fjölskyldu
minni og vinum
sem eru alveg
ótrúlega skemmtileg. Þetta app
gefur manni líka tækifæri til
að senda falleg móment sem
maður hefði annars ekki getað
deilt með vinum sínum. Mér
þykir alveg ótrúlega vænt um öll
þessi skemmtilegu vídeó sem ég
fæ frá fólkinu mínu.
Mest ávanabindandi
smáforritið?
Ég verð að
segja Insta-
gram. Ef það
kemur smá
dauður tími
þá er ég mjög
fljót að opna
þetta app og skoða hvað vinir
mínir og fjölskylda eru að gera.
Það er líka alveg ótrúlega gaman
að fylgjast með fólki úti í heimi
sem er að gera flotta hluti, hvort
sem það eru stílistar, hönnuðir
eða bara einhver smart týpa
sem er að gera áhugaverða hluti.
Þetta veitir mér allavega mjög
mikla inspírasjón á hverjum
einasta degi hvort sem það er
tengt vinnunni minni, heimilinu
eða því sem ég klæðist.
Það skemmir síðan alls ekki fyrir
þegar það byrjaði að vera hægt
að setja inn stories! Það gerði
það allavega að verkum að ég
nota Snapchat mun minna.
Gagnlegasta smáforritið?
Messenger. Við
hjá HAF studio
notum það
mjög mikið
tengt vinnunni
og erum öll
fjögur inni í
sama spjallinu.
Við getum því deilt hugmyndum,
gagnlegum upplýsingum og
verið í góðu sambandi hvar og
hvenær sem er. Þetta er líka
algjört snilldarapp til að spjalla
við fjölskyldu sína og vini.
Peter Madsen er grunaður um að hafa banað blaðamanninum Kim Wall.
Ekki Enn þá, við
bíðuM bara Eftir
yfirlýSingu frá honuM uM
Málið.
2 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r68 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
2
3
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
2
-9
2
2
0
1
D
D
2
-9
0
E
4
1
D
D
2
-8
F
A
8
1
D
D
2
-8
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K