Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Side 8
Helgarblað 24.–27. febrúar 20178 Fréttir
F
immtíu og fimm tommu
sjónvarpstæki hafa á Íslandi
að jafnaði lækkað um 5%
í verði frá því í nóvember.
Sjónvarpstækin í ELKO hafa
lækkað mest, eða um 8,8% að jafnaði
en minnst í Ormsson og Heimilis
tækjum. Framkvæmdastjóri ELKO,
Gestur Hjaltason, segir við DV að
fyrirtækið hafi ráðist í flata lækkun
um áramótin, vegna niðurfellinga
tolla, jafnvel þótt mörg sjónvarps
tækin hafi komið frá Evrópu og ekki
borið tolla.
DV birti í desember stóra úttekt á
verði allra 55 tommu sjónvarpstækja
sem seld eru á Íslandi og bar saman
við verð á öðrum Norðurlöndum.
Niðurstaðan var sú að sjónvarps
tækin voru að jafnaði
30% dýrari á Íslandi
en á hinum Norður
löndunum. Þess má
geta að þegar DV fór
að spyrjast fyrir um
tækin munaði fyrst
40% að jafnaði en
tækin lækkuðu sum
hver snarlega í verði
þegar DV fór að leita
skýringa á þessum
mikla verðmun.
Tollarnir farnir
Um áramótin voru
tollar af sjónvarps
tækjum, sem og
öðrum raftækjum,
afnumdir en þeir
námu áður 7,5%.
Það er því ódýrara
nú fyrir sjónvarpssala, en nokkru
sinni áður, að flytja inn sjónvarps
tæki. Athugun DV á verði þessara
sömu sjónvarstækja nú sýnir að
mörg sjónvarpstækin hafa lækkað
í verði. Það gildir þó alls ekki um
öll tækin enda hafa sum
hækkað svolítið í verði frá
því í desember. Jafnvel þótt
ný tæki séu komin á mark
að og um sé að ræða eldri
týpur.
Mismikil lækkun
Þegar rýnt er í verð
breytingar einstakra fyrir
tækja kemur ELKO best út
hvað umrædd tæki varðar.
Lækkunin er 8,8% að jafn
aði en nokkur tæki hafa ekki
lækkað í verði, þrátt fyrir að Gestur
tali um flata lækkun. Sjónvarpsmið
stöðin hefur lækkað verðið um 3,5%,
Árvirkinn um 7,6%, HT um 4%, Ný
herji um 4,5% (þrjú tæki hafa hækk
að í verði en eitt lækkað mikið), sjón
vörpin í Ormsson hafa lækkað um
2% í verði að jafnaði.
Sony KD55XD9305 hefur lækkað
mest í verði hjá ELKO eða um 28%.
Það kostar nú 235 þúsund krónur
í stað 300 þúsund króna í desem
ber. Af tuttugu og þremur 55 tommu
tækjum kosta fjögur það sama og í
desember en fjögur eru ekki lengur
fáanleg. Eitt tæki hefur hækkað lítil
lega í verði (Philips 55PUS6501) en
önnur hafa lækkað. Algeng lækkun
er á bilinu 7–14%.
Barist við birgja
Gestur segir mikla samkeppni á Íslandi
þegar kemur að sjónvarpstækjum.
Með netvæðingu og auknum utan
landsferðum Íslendinga hafi hún auk
ist til muna. Gestur bendir á að tolla
lækkunin hafi náð til raftækja sem
framleidd voru utan Evrópu. Hann
segir að niðurfelling tolla skýri að ein
hverju leyti þá lækkun sem DV hefur
orðið vart við en einnig hefur fyrirtæk
ið unnið mikið í því að ná betri samn
ingum við birgja. Umfjöllun um verð
lag og verðsamanburður hjálpi þar til.
„Við berjum á okkar birgjum eins og
við getum og almennt séð eykur um
fjöllun líkur okkar á að sækja í sömu
brunna og stóru aðilarnir.“
Costco verður opnað á Íslandi í
maí. Gestur á von á að tilkoma fyrir
tækisins muni herða samkeppnina
enn frekar. Hann sér fram á að þeir
muni vera með fáar vörutegundir, og
þá helst línur sem eru á útleið, en á
mjög góðu verði sem erfitt geti verið
að keppa við. ELKO muni áfram vera
með mikið úrval, nýjustu vörurnar, og
keppast við að bjóða hagstætt verð. n
Allt fyrir raftækni
Yfir 500.000 vörunúmer
Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636
Sony lækkar meSt
Hér má sjá hvernig verð á 55 tommu sjónvarpstækjum hefur breyst frá því 9. desember.
Eins og sjá má tróna tvö sjónvarpstæki frá Sony á toppnum yfir þau tæki sem mest
hafa lækkað í verði. Flest LG-tæki hafa lækkað á bilinu 7 til 9 prósent í verði. Að öðru
leyti virðist lækkanir, eða hækkanir eftir atvikum, vera tilviljunum háðar.
Tegund Vörunúmer Verslun 9. des. 21. feb. Breyting
Sony KD55SD8505 Nýherji 254.991 194.994 - 31%
Sony KD55XD9305 Elko 299.995 234.995 - 28%
Samsung UE55KS9005 Elko 319.995 254.995 - 25%
Samsung UE55KU6515 Elko 189.995 159.995 - 19%
Samsung UE55KU6075 Elko 139.995 119.995 - 17%
Samsung UE55KS8005 Ormsson 269.900 234.900 - 15%
Samsung UE55KU6175 Árvirkinn 159.900 139.900 - 14%
LG 55EG960V Elko 399.995 349.995 - 14%
Samsung UE55KS8005 Elko 249.995 219.995 - 14%
Samsung UE55KU6675 Elko 179.995 159.995 - 13%
Sony KD55X8505 Árvirkinn 189.990 169.990 - 12%
Samsung UE55KU6655 Árvirkinn 189.900 169.915 - 12%
LG OLED55E6V Elko 449.995 409.995 - 10%
Philips 55PUS7101 Elko 179.995 164.995 - 9%
LG 55UH850V SM 249.990 229.990 - 9%
LG 55UH850V HT 249.995 229.995 - 9%
LG OLED55E6V SM 439.990 409.990 - 7%
LG 55UH650V Elko 149.995 139.995 - 7%
LG 55UH668V HT 159.995 149.995 - 7%
TCL U55S7906 Elko 159.995 149.995 - 7%
Sony KD55XD8005 Elko 154.995 149.995 - 3%
Sony KD55XD8505 Elko 164.990 159.995 - 3%
Samsung UE55KU6655 Ormsson 189.900 184.900 - 3%
Samsung UE55KS7005 Elko 189.995 184.995 - 3%
Sony KD55XD8599 Árvirkinn 199.990 199.990 0%
Sony KD55XD8599 Nýherji 199.990 199.990 0%
LG 55UH750V Elko 169.995 169.995 0%
Philips 55PUS6031 HT 109.995 109.995 0%
TCL U55S6906 Elko 99.995 99.995 0%
LG 55UH950V Elko 269.995 269.995 0%
Thomson 55UA6406 SM 149.990 149.990 0%
Philips 55PUT6401 HT 129.995 129.995 0%
Samsung UE55KS7505 Elko 249.995 249.995 0%
Samsung UE55KS7005 Ormsson 209.900 209.900 0%
Samsung UE55KS9005 Ormsson 339.900 339.900 0%
Samsung UE55KS7505 Ormsson 269.900 269.900 0%
Samsung UE55KU6475 Árvirkinn 179.900 179.900 0%
Philips 55PUS7181 SM 249.990 249.990 0%
Philips 55PUS6501 Elko 144.995 149.995 +3%
Sony KD55XD8005 Nýherji 169.989 179.990 +6%
Samsung UE55K5505 Ormsson 149.990 159.900 +6%
Sony KD55XD9305 Nýherji 259.990 279.990 +7%
Fimm prósenta lækkun
í verði eftir afnám tolla
n Sjónvarpstæki hafa lækkað mest í verði hjá ELKO n Sum tækin hafa hækkað í verði
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is „Við berjum
á okkar
birgjum eins og
við getum.
13. desember 2016
Framkvæmdastjóri
Gestur Hjaltasson hjá Elko.