Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Qupperneq 10
Helgarblað 24.–27. febrúar 201710 Fréttir Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS Persónuleg og fagleg þjónus ta einstakar skreytingar við öll tækifæri Einu eggin á neytendamarkaði með löggilda vottun Lífrænu hænurnar hjá Nesbúeggjum • Fá lífrænt fóður • Fá mikið pláss • Njóta útiveru nesbu.is NESBÚ EGG V iktor Orri Valgarðsson, vara- þingmaður Pírata, lagði á dögunum fram á Alþingi fyrir spurn til samgöngumála- ráðherra um viðhald vegakerfisins. Fyrirspurnir af svipuðu tagi skipta tugum og sjá má á vef Alþingis að fyrir spurnir af ýmsu tagi flæða nú inn á þinginu. Það sem gerir þessa fyrirspurn Viktors Orra athyglis- verða er að hún er samin á af manni úti í bæ og sett fram á Facebook-síðu Viktors Orra sem síðan bar hana upp í þinginu. Fékk fjölda hugmynda Viktor Orri setti inn færslu á Face- book 14. febrúar síðastliðinn þar sem hann leitaði til almennings og bauð fólki að koma með hugmyndir að fyrirspurnum sem hann gæti síðan lagt fram. Fjöldi manns tjáði sig við færsluna með ýmsum hætti. „Ég fékk fjölda góðra hugmynda, misjafnlega vel og mikið útfærðar. Í fyrradag setti ég síðan aftur inn færslu á Facebook þar sem ég greindi frá því að ég væri að vinna að fyrirspurn til félagsmála- ráðherra vegna stöðunnar í hús- næðismálum og óskaði eftir því að fólk kæmi með innlegg í það. Það er skemmst frá því að segja að undir- tektir voru mjög góðar og ég bætti talsvert við fyrirspurnina,“ segir Viktor Orri í samtali við DV. Sem fyrr segir hefur Viktor Orri þegar lagt fram fyrirspurn um viðhald vegakerfisins sem hann fékk í athugasemdum. „Sú fyrirspurn var skýrt framsett og sértæk og einfalt að leggja hana fram. Fyrirspurnir eru ákveðið verkefni þar sem hægt er að leita eftir tilteknum upplýsingum eða afstöðu ráðherra til ákveðinna mála. Margar af athugasemdunum sem ég fékk við færsluna voru skoð- anir á ástandi eða reynslusögur og í sumum tilfellum voru menn að spyrja mjög víðtækra spurninga sem kannski hentar betur að fara fram á að teknar verði saman skýrslur um.“ Milliliðalaus samskipti Viktor Orri segir að hann hafi verið búinn að velta því talsvert fyrir sér með hvaða hætti hann gæti átt í sem bestum samskiptum við kjósendur og leitt fram þeirra áherslur, spurn- ingar og skoðanir. „Píratar standa auðvitað fyrir beinna lýðræði og milliliðalaus samskipti almennings við stjórnvöld. Ég lít á það sem hlut- verk þingmanna að reyna að brúa það bil sem orðið er milli þings og þjóðar. Fólk er, og það kannski eðli- lega, ekki fyllilega upplýst um hvað við erum að gera á þingi og hvað við getum gert.“ Unnið fyrir allra augum Það er auðvitað ekki nýtt að þing- menn beri fram fyrirspurnir eða önnur þingmál sem eiga uppruna sinn hjá fólki úti í bæ, félagasam- tökum eða jafnvel fyrirtækjum. Slík- ar fyrirspurnir verða til þegar þing- menn funda með fólki, þegar þeir fá sendar ábendingar og svo framvegis. Raunar hefur stundum verið slúðrað um að þetta eða hitt frumvarpið hafi verið samið af sérhagsmunahópum úti í bæ og þótt lítt til sóma. Í þessu tilviki er hins vegar verið að vinna fyrir spurnir fyrir allra augum á sam- skiptamiðli sem allir geta átt inn- legg í. „Ég er með þessu að bjóða að fyrra bragði fram leið fyrir kjósendur til að koma spurningum og málum á framfæri, leið sem er einföld og auð- veld í framkvæmd,“ segir Viktor Orri og bætir því við að hann muni halda uppteknum hætti á meðan hann situr á þingi, bjóða upp á og óska eftir að- komu almennings að þingmálum. n Fyrirspurnin var samin á Facebook Viktor Orri Valgarðsson býður upp á þátttöku almennings við að útbúa þingmál Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is „Ég er með þessu að bjóða að fyrra bragði fram leið fyrir kjósendur til að koma spurningum og málum á framfæri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.