Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Síða 12
Helgarblað 24.–27. febrúar 201712 Fréttir Hótelmergðin í miðbænum  Hafnarfjörður n Hótel Hafnarfjörður Reykjavíkurvegur 72 220 Hafnar- fjörður Gisting: 71 herbergi (150 rúm) n Hótel Vellir Tjarnarvellir 3 221 Hafnarfjörður Gisting: 68 herbergi n Hótel Víking Strandgata 55 220 Hafnarfjörður Gisting: 42 herbergi (85 rúm) n T10 Hótel Trönuhraun 10 220 Hafnarfjörður Gisting: 26 herbergi (60 rúm)  Kópavogur n Hótel Smári Hlíðasmári 13 201 Kópavogur Gisting: 40 herbergi (80 rúm) Radisson Blu Hótel Saga Hagatorg 1, 107 Reykjavík Gisting: 236 herbergi (415 rúm) Kvosin Downtown Hotel Kirkjutorg 4 101 Reykjavík Gisting: 24 herbergi (85 rúm) Hótel Reykjavik Centrum Aðalstræti 16 - 101 Reykjavík Gisting: 89 herbergi (174 rúm) Hótel Hilda Bárugata 11 - 101 Reykjavík Gisting: 13 herbergi (25 rúm) Metropolitan Hotel Ránargata 4a - 101 Reykjavík Gisting: 31 herbergi (73 rúm) F jöldi hótela á höfuðborgar­ svæðinu hefur tvöfaldast á rúmum áratug. Á höfuð­ borgarsvæðinu nú eru 50 hótel, með 4.672 herbergi og 9.692 rúm. Af þessum 50 hótelum eru 44 í Reykjavík. Af þessum 44 hótelum í Reykjavík eru 27 í 101 Reykjavík. Eru þá ótalin fjöldamörg gistiheim­ ili, hostel og önnur minni gistirými á þessu svæði sem og leyfislaus gisti­ rými sem starfrækt eru víða á höfuð­ borgarsvæðinu. Hóteluppbyggingu á höfuð­ borgarsvæðinu er hvergi nærri lokið, enn eru stór hótel í byggingu. Sam­ kvæmt upplýsingum frá Reykjavíkur­ borg eru nú 22 þekkt hótelverkefni til viðbótar á hinum ýmsu stigum fram­ kvæmda á höfuðborgarsvæðinu, langflest þeirra í Reykjavík. Borgar­ stjóri Reykjavíkur er sammála því að miðbærinn sé kominn að þolmörk­ um. Unnið sé markvisst að því nú að beina hóteluppbyggingu annað og dreifa álaginu betur því borgar­ yfirvöld vilji ekki að hótelin verði öll á sama stað. Í ferðamannasprengju síðustu ára hefur þörfin fyrir hótel og gisti­ rými aukist gríðarlega og þegar uppbyggingin gerist svo hratt, á til­ tölulega skömmum tíma, þá hafa breytingarnar verið bæði sýnilegri og áþreifanlegar fyrir íbúa og veg­ farendur viðkomandi svæða, eins og miðborgarinnar. Á meðan ferða­ þjónustuaðilar sjá enn tækifæri til að mæta eftirspurn með fjölgun hótela og gistirýma þá eru þó margir á því að of mikið sé komið af því góða á kostn­ að íbúðabyggðar og verslunar. Svona hefur þeim fjölgað DV ákvað því að skoða og setja upp með myndrænum hætti hótelin á höfuðborgarsvæðinu, og þá sérstak­ lega í og við miðborgina, sem og sýna einnig fram á hversu ör upp­ byggingin hefur verið á umliðnum árum. Fjöldi hótela á höfuðborgar­ svæðinu var í árslok 2015 44, en nú eru þau orðin 50. Það gerir fjölgun um 13,6% milli ára. Sé litið enn lengra aftur í tímann, aftur til ársins 2005, þegar ástandið var allt annað en nú og menn voru m.a. að glíma við fækkun ferða­ manna og sterk króna var að leika ferðaþjónustuna grátt, var fjöldi hótela á höfuð borgarsvæðinu 25. Á rúmum áratug sem liðinn er síðan þá hefur fjöldi hótela því tvöfaldast. Betri nýting En það er ekki að ósekju sem verið er að byggja upp hótel og gistirými. Þessi herbergi standa ekki auð allan ársins hring, þökk sé fjölgun ferða­ manna. Nýting herbergja og rúma hefur nefnilega verið að aukast, og það talsvert á milli áranna 2015 og 2016. Sem fyrr segir eru 4.672 hótel­ herbergi og 9.692 hótelrúm á höfuð borgarsvæðinu núna. Í ársbyrjun 2015 voru her­ bergin 3.400 en rúmin 7.140. Nýting herbergja var árið 2015 78,4% sem er samkvæmt upp­ lýsingum DV nokkuð umfram þá meðalnýt­ ingu sem kallar á aukna uppbyggingu. Nýtingin var síðan 85,4% í fyrra að meðal­ tali. Veruleg aukning þar. Sama má segja um nýtingu rúma. Hún var árið 2015 64,1% en skaust upp í 71,3% árið 2016. Meðfylgjandi kort segir meira en mörg orð um hversu fyrirferðarmik­ il hótel eru, sérstaklega í miðbænum. 27 hótel í 101 hverfinu einu og sér, eða 61% allra hótela í Reykjavík, er mikið á ekki stærra landsvæði. Þá eru einnig merkt inn á kortið þau hótel sem stendur til að koma upp á næstu misserum. Dagur B. Eggerts­ son, borgarstjóri Reykjavíkur, er því sammála að miðbærinn er kominn að hótelþolmörkum. Ekki lausn að banna – litið til kvóta „Við höfum fylgst vel með þessari þróun og höfum metið það svo að ef við leyfum ekki hóteluppbyggingu þá eykur það mjög þrýstinginn á hús­ næðismarkaðnum, sem er nægur fyrir, vegna þess að þá sækja ferða­ menn í auknum mæli í íbúða­ gistingu. Við þurfum því að gefa leyfi fyrir hótelum til að mæta ferða­ mannastraumnum en við viljum alls ekki að þau séu öll á sama stað,“ segir Dagur í samtali við DV. Hann segir að því hafi verið settur hótelkvóti á Kvosina sem geri að verk­ um að engin ný verkefni verði sam­ þykkt þar, umfram það sem þegar hefur verið samþykkt. „Ný tillaga sem nú er komin í auglýsingu lýtur að hótelkvótum á Laugavegi. Við höfum verið að undir­ búa það núna því við viljum tryggja að það verði ekki of mikið af hótel­ um þar heldur. Við höfum verið að beina hóteluppbyggingunni ann­ að, upp með Suðurlandsbraut, upp í Skeifu, að Grensásvegi og fjárfest­ ar hafa tekið mjög vel við sér í því. Við höfum líka sagt að við myndum fagna því ef hóteluppbygging verð­ ur í nágrannasveitarfélögunum en við áttum okkur á því, bara eins og þegar maður er sjálfur ferðamaður þá vill maður gjarnan vera miðsvæð­ is, þannig að lykillinn að því að dreifa álaginu um höfuðborgarsvæð­ ið er öflugri almennings­ samgöngur. Þar kemur þessi stefnumörkun um borgarlínuna, sem er afkastameiri hágæða almenningssamgöng­ ur, inn og það er orðin algjör samstaða milli sveitarfélaganna á höf­ uðborgarsvæðinu um þetta. Þannig að þetta er heildstæð sýn sem gengur út á að dreifa álaginu betur um leið og við þurfum að vera raunsæ varðandi það að maður stýrir ekki að öllu leyti ákvörðunum ferðamanna. Þeir vilja komast eins nálægt miðborginni og hægt er því þar virðast allir vilja vera.“ Komið að þolmörkum Aðspurður um hin títtnefndu þol­ mörk í miðbænum og hvort miðbær­ inn sé kominn að þeim segir borgar­ stjórinn: „Já, það er mín skoðun. Við höfum verið að bera okkur saman við aðrar hraðvaxta ferðaþjónustuborgir í Evrópu og Reykjavík er róttækari en flestar aðrar borgir að þessu leyti. Barcelona setti að vísu á tímabili alls­ herjar uppbyggingarbann en nei­ kvæðu afleiðingarnar af því var alls konar svört atvinnustarfsemi og íbúðagisting sem hefur bitnað mjög mikið á íbúunum þar. Við höfum því meiri trú á þessum kvótum sem hafa vakið athygli annarra borga vegna þess að það eru ekki margir sem hafa treyst sér til að taka þessi skref.“ Hótel geta verið góðir nágrannar En nú þegar þrýstingur er til staðar til að dreifa álaginu frá miðbænum og til nærliggjandi svæða, hafa margir ekki farið varhluta af þeirri þróun og margir sem ekki sætta sig við breytta ásýnd síns nærumhverfis. Hvað verð­ ur um svæðin í kring og skilur borgar­ stjóra áhyggjur fólks af því, því um er að ræða fína línu sem feta þarf í þess­ um efnum svo ferðaþjónustutengdur rekstur gleypi ekki íbúðabyggð þar líka. „Já, ég skil þær, sérstaklega ef það er óljóst hvar við erum að hugsa þetta. En við erum að benda á svæð­ in Ármúla, Síðumúla, Skeifuna og Grensásveg sem mega við meiri upp­ byggingu og endurfjárfestingu. Hús­ næði þar er sumt barn síns tíma og komið á aldur þannig að við sjáum ýmsa möguleika þar og það gæti verið gott fyrir Skeifuna og Grensásveg að fá hótel. Við sjáum þennan þróunarás, úr miðborginni alveg upp á Ártúnshöfða, með öflugum al­ menningssamgöngum og borgarlínu eftir Laugavegi – Suðurlandsbraut og upp á Ártúnshöfða. Þetta getur ver­ ið eitt helsta vaxtarsvæði borgarinn­ ar og mjög skemmtileg borgargata. Þarna geta hótel vel átt heima, þau trufla lítið íbúðabyggðina. Hótel eru alls ekki slæm, nema það sé of mikið af þeim, því þau geta fært með sér veitingastaði, kaffihús og alls konar líf og þjónustu sem nálæg hverfi geta notið. Ef hótel eru í og með, en ekki of yfirþyrmandi, þá geta þau verið frábærir nágrannar.“ n n Fjöldi hótela á höfuðborgarsvæðinu tvöfaldast á áratug og eru þau 50 í dag n 44 eru í reykja- vík og þar af 27 í 101 reykjavík n miðbærinn kominn að þolmörkum, segir borgarstjóri Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.