Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Page 17
Helgarblað 24.–27. febrúar 2017 Fréttir 17
Þetta færðu fyrir 35 milljónir á
íslenska fasteignamarkaðnum
Fasteigna-
verð í fjölbýli
hækkar hraðar
Samkvæmt skýrslu Global House Price Index
sem kom út í desember síðastliðnum hefur
húsnæðisverð hækkað hvað hraðast í heim-
inum á Íslandi. Greiningardeild Arion banka
spáir því að fasteignaverð í fjölbýli muni
halda áfram að hækka hraðar en verð á sér-
býli, að minnsta kosti til skamms tíma. Hrein
eign í húsnæði er lægri hjá þeim
sem eru yngri en 55 ára nú en hún
var fyrir áratug og er því talið að
áfram verði meiri eftirpurn eftir
litlum íbúðum í fjölbýli frekar
en sérbýli.
Fermetraverð á Akureyri um
76% af verði í Reykjavík
Um 79 prósent landsmanna búa á höfuðborgar-
svæðinu og í fjórum stærstu bæjarfélögum lands-
ins, Akranesi, Akureyri, Árborg og Reykjanesbæ.
Samkvæmt Hagsjá Landsbankans frá því í sept-
ember síðastliðnum var fermetraverð fasteigna
á Akureyri um 76 prósent af verðinu í Reykjavík á
öðrum ársfjórðungi 2016 og hefur lengi verið á því
bili. Samkvæmt sömu mælistiku var fermetraverð
í hinum bæjunum töluvert lægra, á bilinu 56 til 63
prósent af verðinu í Reykjavík.
Þessar tölur sýna að verðþróun á fasteigna-
markaði á höfuðborgarsvæðinu er í stórum dráttum ekki frábrugðin því sem gerist í stærri bæjum
úti á landi. Eftir sem áður er mikill munur á fermetraverði á milli þessara staða.
Austurland Ásett verð m2 verð
700 Egilsstaðir 226,3 fm. 5 herb. einbýlishús í Brekkuseli. 4 svefnherbergi 34,9 millj. 154 þús.
730 Reyðarfjörður 208,2 fm. 6 herb. einbýlishús á Heiðarvegi. 5 svefnherbergi 32 millj. 153 þús.
Suðurland Ásett verð m2 verð
900 Vestm.eyjar 236,6 fm. 6 herb. einbýlishús við Ásaveg. 6 svefnherbergi 35 millj. 148 þús.
800 Selfoss 141,4fm. 3ja herb.parhús á Borgarbraut. 4 svefnherbergi 34,9 millj. 246 þús.
810 Hveragerði 122,6 fm 4ja herb. raðhús að Smyrlaheiði. 3 svefnherbergi 34,9 millj. 284 þús.
Höfuðborgarsvæðið Ásett verð m2 verð
101 Reykjavík 88,5 fm. 4ja herb. ósamþ. kjallaraíb. á Klapparstíg. 3 svefnherbergi 35 millj. 395 þús.
105 Reykjavík 73,7 fm. 3ja herb. íbúð á Hrefnugötu. 1 svefnherbergi 34,9 millj. 473 þús.
107 Reykjavík 61,3 fm. 2ja herb. íbúð á Kaplaskjólsvegi. 1 svefnherbergi 32,9 millj. 536 þús.
108 Reykjavík 62,5 fm. 2ja herb.íbúð að Hæðargarði. 1 svefnherbergi 32,9 millj. 395 þús.
109 Reykjavík 105,2 fm. 4ja herb íbúð að Grýtubakka. 3 svefnherbergi 34,9 millj. 331 þús.
112 Reykjavík 78,1 fm. 3ja herb íbúð í Mosarima. 2 svefnherbergi 34,9 millj. 446 þús.
200 Kópavogur 72 fm. 3ja herb íbúð á Marbakkabraut .2 svefnherbergi 34,9 millj. 484 þús.
220 Hafnarfjörður 95,5fm. 3ja herb íbúð að Kelduhvammi. 2 svefnherbergi xxx millj. 365 þús.
Norðurland Ásett verð m2 verð
603 Akureyri 190,2 fm. 6 herb. einbýlishús í Lyngholti. 3 svefnherbergi 34,9 millj. 183 þús.
640 Húsavík 175,1 fm. 6 herb. einbýlishús að Ásgarðsvegi. 4 svefnherbergi 34,9 millj. 199 þús.
189 milljónir
Eitt dýrasta einbýlishús landsins
er við Skildinganes 54 í Reykjavík.
Um er að ræða 456 fermetra, 6
herbergja einbýlishús á sjávarlóð í
Skerjafirðinum. Kaupverðið er 189
milljónir en í húsinu eru 3 svefnher-
bergi og 3 baðherbergi. „Einstök
eign í sérflokki“ segir í auglýsingu á
fasteignavef Vísis.
70 ára hús á
120 milljónir
Við Brautarland í Fossvogi má
finna dæmi um fasteign til sölu
þar sem fermetraverðið er með
því hærra sem sést. Um er að ræða
184 fermetra einbýlishús og er
kaupverðið 120 milljónir króna.
Þetta kemur fram á fasteignavef
mbl.is. Fermetraverðið er því tæpar
650 þúsund krónur. Það sem vekur
athygli er að húsið er byggt árið 1947.