Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Page 21
Helgarblað 24.–27. febrúar 2017
reyndar sagt frá því að ungur mað-
ur sem um hríð leigði þar í húsinu
hafi fundið þessar stílabækur og
vélritað þær upp. Það var „annað-
hvort Hermann eða Svanur“. (Her-
mann og Svanur birtast mjög aug-
ljóslega báðir í bókum frá fyrri
hluta höfundarferils Guðbergs sem
einhvers konar alter ego hans sjálfs
– eitt sinn gaf hann út bók undir
dulnefninu Hermann Másson. Og
því má bæta við að á einum stað í
verkum Guðbergs segir Anna að
kannski sé ekkert þeirra til nema í
hugarheimi Svans).
Allt um það. Í þessar stílabækur
hefur Tómas párað ýmsar hug-
leiðingar sínar og klögumál, oft
heldur sundurlaust, og að auki
minningar sínar og frásögur ýms-
ar. Hann hefur alltaf búið einn,
vann lengst af í banka en borðaði
á matsölu og eru lýsingar hans og
frásagnir af lífinu, starfinu og sam-
starfsfólkinu í bankanum oft al-
veg konunglegar, með persónum
eins og þeim Sigurði, Ólafi og ung-
frú Gerði. Langur kafli um mat-
söluna, þar sem sami hópur kost-
gangara borðar saman daglega
er sömuleiðis einn konunglegur
skemmtilestur; og ekki síður upp-
rifjun um bókasöfnun Tómasar,
með stórbrotnustu hugleiðingu um
fornbókasala sem ég hef lesið; að
auki er bókin full af frábærum inn-
skotum, til dæmis úr „ Þjóðsögum
Tómasar Jónssonar“, eða frásagnir
sem hann hefur skráð eftir sam-
ferðamönnum, eins og ævintýra-
leg lýsing á íslensku óperusöng-
konunni Katrínu Jónsdóttur sem
slær í gegn í Þýskalandi og kemst í
náin kynni við sjálfan Adolf Hitler.
Svo eru kostulegar lýsingar á alls
kyns reiptogi Tómasar við leigjend-
ur sína og meðleigjendur, meðal
annars þann sem fær að æfa sig á
rafmagnsgítar og Tómas verðmetur
á einn fermetra.
Balsac og Tangaheimurinn
Í nefndu útvarpsviðtali sem margir
létu fara í pirrurnar á sér talaði
Guðbergur líka um ýmislegt merki-
legt, eins og þau áhrif
sem franski 19. aldar
höfundurinn Balsac
hefði haft á sig, en ég
hef á tilfinningunni
að skoði menn
stakar bækur þessara
tveggja höfunda blasi
skyldleikinn ekki við.
En það sem Guð-
bergur var eflaust að
tala um var að Bals-
ac, í sínum fjölmörgu
verkum, skapaði sér-
stakan sjálfbæran
skáldskaparheim;
þannig er bæði hægt
að lesa flokk af bók-
um hans sem stök
verk, en líka skoða
hvernig þau raðast
svo saman eins og
í mósíakmynd. Þar
eru sömu persónur
gegnumgangandi og
sami söguheimur, og
eitthvað sem er mið-
lægt í einni bók verð-
ur mikilvægt aukaat-
riði í annarri.
Og þetta sama á
við um það sem mér
finnst mikilvægast í
höfundarverki Guðbergs, og er þá
að tala um bækurnar frá fyrri hluta
hans ferils og kenndar hafa verið
við hið mjög svo Grindavíkurlega
þorp Tanga, þar sem meðal annars
er að finna húsin Ásgarð og Val-
höll. Tómas Jónsson tengist þess-
um heimi, í gegnum nágranna sína
eins og Önnu, Katrínu, Hermann
og Svan, auk þess sem fram kemur
í TJM að Björg systir Tómasar hafi
búið þar og dáið; líklega fæddist
hann sjálfur þar. Í Hermann og Dídí
sést svo til Tómasar út um glugga á
húsi í Tanga; hann er þar líklega
kominn að vitja leiðis systurinnar.
Auk TJM tengjast Tangaheiminum
smásagnasöfnin Ástir samlyndra
hjóna, Hvað er eldi guðs og Leik-
föng leiðans og skáldsögurnar
Anna og svo þær sem hafa verið
kallaðar Tangaþríleikurinn: Það
sefur í djúpinu, Hermann og Dídí
og Það rís úr djúpinu. Allar eru
þessar bækur morandi í furðulegri
snilld; ég mæli með sögunum sem
tengjast Tangaheiminum í Ástum
samlyndra hjóna; bæði er þar
ein löng sem segir frá fjölskyldu-
samkomu á Tanga og svo önnur þar
sem fólkið þaðan fer með áætlun-
arbíl til Reykjavíkur á þjóðhátíðar-
daginn 17. júní. Mitt uppáhald er
hins vegar klárlega Tangaþríleik-
urinn (hann var reyndar seinna
endurútgefinn nokkuð breyttur
frá hendi höfundar, undir nafninu
Sannar sögur, en mitt val er frum-
gerðin). Fyrsti hluti þríleiksins, Það
rís úr djúpinu, er reyndar á köfl-
um heldur óhugnanleg lesning, og
sá ofbeldisóhugnaður smitast líka
inn í miðpartinn í Hermann og
Dídí. Á löngum köflum er hún hins
vegar einn sá mesti skemmtilestur
sem íslenskur bókmenntaunnandi
getur komist í, með heimsókn í
frystihús staðarins og svo langa
og óborganlega erfidrykkju handa
þorpsfólkinu heima hjá Önnu, svo
eitthvað sé nefnt. Og svo er fyrsti
partur síðustu bókarinnar, Það rís
úr djúpinu, algert konfekt; allir
verða að lesa „Sönn saga af sálar-
lífi systra“.
Það duga engar afsakanir;
Hvað ég vildi sagt hafa er þetta:
Það er auðvelt að skilja þá sem láta
rausið og fordómana í Guðbergi
Bergssyni fara í taugarnar á sér. En
enginn á samt að vera svo vitlaus
að láta það afstýra því að hann njóti
þess að lesa þær bókmenntaperlur
sem grindvíski stórmeistarinn
hefur borið okkur á borð. n
Umræða 21
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Su r
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
plusminus.is • sími: 517 0317
Hágæða
sjóngler
frá nOVa
TIlBOð Margskipt sjóngler frá 49.900 kr.
Ný námskeið
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
Er ekki kominn tími til að gera eitthvað
Námskeið í mars 2017
• SjálfSumHyggja hefst 6. mars
• Í fókuS – að ná fram því besta með ADHD hefst 13. mars
• fjármál hefst 20. mars
• HEilSa og HEilSuEfliNg hefst 27. mars
• Tök á TilvEruNNi hefst 28. mars
• TölvubókHald og ExcEl hefst 28. mars
• aukiN vEllÍðaN HEST 28. mars
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Í fókus – að ná fram því besta með ADHD hefst 13. Mars
Fjármál hefst 20. Mars
Heilsa og heilsuefling 27. mars
Tómas Jónsson metsölubók,
og raus í gömlum köllum
„Hann var kallaður
gamall nöldrari
og tuðari, hrokagikkur og
fordómabúnt og jafn-
framt fylgdu glósur um
að verk hans væru of-
metin eða í það minnsta
með öllu úrelt.
Guðbergur
Bergsson
Skáldsaga hans
Tómas Jónsson
metsölubók verð-
ur kvöldsagan í
Ríkisútvarpinu.
Mynd SiGTryGGur Ari