Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Síða 28
Helgarblað 24.–27. febrúar 20174 Allt fyrir heimilið - Kynningarblað
Klassískt postulín í bland
við nýrri og djarfari stíla
Klassískt postulín í bland við nýrri og djarfari stíla
V
erslunin Borð fyrir tvo, sem
meðal annars er þekkt fyrir
afskaplega fallegan og vin-
sælan borðbúnað, flutti ný-
lega af Laugavegi 97 upp
í Síðumúla 33. Una Gunnarsdótt-
ir eigandi er afar ánægð með nýju
staðsetninguna: „Það eru að verða
svo miklar og jákvæðar breytingar
hérna í Síðumúlanum, fjölbreyttari
verslanir og töluvert mikið af hús-
búnaðarverslunum. Hér er góð að-
koma og næg bílastæði fyrir fólk að
leggja í hér fyrir utan. Ég hef fengið
mjög góð viðbrögð við flutningnum
hjá viðskiptavinum, fólk er ánægt
með að fá okkur hingað.“
Í Borð fyrir tvo fæst gott úrval af
vönduðu og fallegu postulíni á fínu
verði, eða eins og Una segir: „Ég náði
góðum samningi við framleiðanda
sem framleiðir postulín fyrir þekkt
merki eins og t.d. Ralph Lauren og
Charter Club-línuna fyrir Macy's
og með því að versla
beint og sleppa
milliliðum er hægt
að bjóða hagstæðara
verð. Annar kostur
við þetta fyrirkomu-
lag er sá að ég get
stjórnað því hvað
línurnar fást lengi
hjá mér og þarf ekki
að sætta mig við að
einhver lína sé tekin
úr framleiðslu af því
hún er ekki nægi-
lega vinsæl lengur
á stórum erlend-
um mörkuðum. Í
þessum bransa eru
tískustraumar eins
og annars staðar og
framleiðendurnir
taka þátt í sýning-
um tvisvar á ári þar
sem þeir eru undir miklum þrýstingi
um að koma fram með eitthvað nýtt.
Það aftur á móti veldur því að þeir
geta ekki haldið öllum fyrri línum í
framleiðslu. Ég þarf hins vegar ekki
að hafa áhyggjur af þessu.“
Að sögn Unu eru
vörurnar hjá Borð fyrir tvo
afar vinsælar til brúðar-
gjafa og algengt er að lagð-
ir séu inn brúðargjafalistar
í verslunina. Þeir sem skrá
gjafalista í Borð fyrir tvo fá
inneign að verðmæti 10%
af því sem keypt er af list-
anum.
Þessar vörur eru líka
vinsælar til annars konar
gjafa. En hvers konar borð-
búnaður er vinsæll núna?
„Postulínsstellin eru
mjög vinsæl og þar hef ég
lagt áherslu á að hafa þau
stílhrein og klassísk, eitt-
hvað sem fólk sér fyrir sér að vilja
eiga og nota áratugum saman. En
svo eru líka aðrar og ólíkar línur
að koma sterkar inn. Má þar nefna
hollensku línuna PIP Studio þar
sem lögð er áhersla á litagleði og
skrautleika. Slagorð þeirra er „For
Happy People“ og má fullyrða að
maður verður glaður innan um
þessa hluti. Úr allt annarri átt er síð-
an danska línan Bitz. Þær vörur eru
ekki úr postulíni heldur úr leir. Þar er
áhersla á svart, grátt og grænt. Líka
svört hnífapör. Þetta er mun grófari
hönnun og bæði vinsæl og flott sem
slík,“ segir Una.
Það er óhætt að mæla með heim-
sókn í verslunina Borð fyrir tvo að
Síðumúla 33. Það er gaman að skoða
þann fallega borðbúnað sem þar er í
boði. Verslunin er opin virka daga frá
11 til 18 og á laugardögum frá frá 12
til 16. Símanúmer er 568-2221. n
„Postulínsstellin
eru mjög vinsæl
og þar hef ég lagt áherslu
á að hafa þau stílhrein og
klassísk