Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Side 40
Helgarblað 24.–27. febrúar 201732 Sport Í slensku landsliðsmennirnir sjö á Englandi eiga misjöfnu gengi að fagna um þessar mundir. Þrír þeirra hafa ekki spilað leik undan- farnar vikur; eru meiddir eða hafa misst sæti sitt í liðum sínum. Á hinn bóginn eru tveir til þrír þeirra fasta- menn í sínum liðum. Burðarstólparn- ir á miðjunni í landsliðinu, Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnars- son hafa átt stórkostlega leiktíð. Þeir hafa vart stigið feilspor að undan- förnu og leika við hvern sinn fingur. Mánuður í leik Íslenska landsliðið leikur næsta keppnisleik eftir sléttan mánuð, þegar liðið sækir Kósóvó heim. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálf- ari segir við DV að hann hafi ekki miklar áhyggjur af stöðu mála. „Í fullkomnum heimi væru allir að spila alla leiki. En það er aldrei þannig.“ Hann bendir á að Jóhann Berg Guðmundsson hafi verið meiddur að undanförnu en hann spilaði síð- ast leik þann 7. janúar. Þá hafi Jón Daði Böðvarsson, Birkir Bjarnason og Hörður Björgvin Magnússon allir verið að koma sér fyrir hjá nýjum lið- um. Það taki tíma. Hópurinn breiðari „Ég hef ekki stórar áhyggjur af þess- um leikmönnum. Það hefur lengi verið styrkur okkar Íslendinga að við erum fljótir að aðlagast.“ Hann bend- ir líka á að Ísland eigi nú fleiri menn en áður sem spilað geti í landsliðinu. „Hópurinn okkar hefur breikkað og þess vegna hef ég ekki miklar áhyggj- ur af einstaka leikmönnum.“ Tveir íslenskir framherjar, sem leika utan Englands, hafa verið lengi frá vegna meiðsla. Kolbeinn Sigþórs- son hefur ekkert spilað frá því á EM í sumar og Alfreð Finnbogason hef- ur sömuleiðis misst marga mánuði úr. Heimir segist fylgjast með gangi mála. Alfreð sé að byrja að æfa á nýj- an leik en hann eigi ekki von á því að þessir leikmenn verði klárir í næsta landsliðsverkefni, hið minnsta. n Skin og Skúrir á Englandi n Kóngarnir í Wales standa upp úr n Mæta Kósóvó í mars n Varnarmennirnir í basli Hissa á ráðningu Lars „Það er gott fyrir Nor- eg að fá hann til að taka þetta að sér,“ segir Heimir Hallgrímsson spurður um ráðn- ingu Lars Lagerbäck til norska landsliðsins. Hann viðurkennir að það hafi komið honum á óvart að Lars skyldi taka við Noregi. „Ég varð svolítið hissa því hann gaf upp þá ástæðu þegar hann hætti að hann væri þreyttur. Hann sagðist hafa fæðst of snemma.“ Hann hafi ekki yngst síðan hann hætti með Ísland. Hann sé hins vegar ánægður og glaður ef Lars hafi fundið starfsorkuna á nýjan leik. „Ég held og vona að þetta muni bara ganga vel hjá honum.“ Hann segist aðspurður ekki hafa vitað af ráðningunni áður en um hana var til- kynnt en þeir Lars hafi átt langt og gott samtal í kjölfarið. Heimir segir aðspurður að honum lítist vel á nýkjörinn formann KSÍ, en Guðni Bergsson var kosinn formaður sambandsins á dögunum. „Mér líst vel á. Hann mætir fyrstur og fer síðastur heim,“ segir Heimir og bætir við að Guðni sé í óða önn að setja sig inn í starfið. Gylfi Þór Sigurðsson Félag: Swansea Deild: Premier League Síðasti heili leikur: 12. febrúar Mínútur frá áramótum: 630 Líklega má fullyrða að Gylfi Þór Sig- urðsson sé á toppi síns ferils. Hann er hlaðinn lofi fyrir frammistöðu sína í hverjum leiknum á fætur öðr- um og hefur nánast einn síns liðs lyft Swansea upp úr fallsæti. Hann hefur skorað átta mörk og lagt upp önnur átta á keppnistímabilinu og er einn allra besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Um það vitnar öll hans tölfræði. Ragnar Sigurðsson Félag: Fulham Deild: Championship Síðasti heili leikur: 8. janúar Mínútur frá áramótum: 208 Ragnar hefur misst sæti sitt í byrjunarliði Fulham, en þang- að fór hann eftir EM. Hann hefur verið í byrjunarliðinu í innan við helmingi leikja liðsins á tímabilinu og hefur lítið spilað að undanförnu. Hann var tekinn af velli eftir 28. mínútur í síðasta deildar- leik og var svo ekki í hópi í bik- arleiknum á móti Tottenham í vikunni. Hann virðist eiga frekar erfitt uppdráttar. Jón Daði Böðvarsson Félag: Wolverhampton Deild: Championship Síðasti heili leikur: 18. febrúar Mínútur frá áramótum: 581 Jón Daði hefur verið inn og út úr liði Úlfanna að undan- förnu. Hann hefur verið um það bil annan hvern leik í byrjunarliði en það sem hefur háð honum mjög er svæsin markaþurrð. Tvö mörk í 29 leikjum er ekki til fyrirmyndar fyrir framherja. Hann heldur þó áfram að fá tækifæri og er í fínu leikformi. Það eru góðu fréttirnar, enda ekki beysin staða á framherjum íslenska landsliðsins. Jóhann Berg Guðmundsson Félag: Burnley Deild: Premier League Síðasti heili leikur: 7. janúar Mínútur frá áramótum: 151 Jóhann Berg er búinn að vera meiddur býsna lengi, eða frá því í janúarbyrj- un. Hann var loksins kominn aftur á völlinn um síðustu helgi, þegar Burnley mætti utandeildarliðinu Sutton. Adam var ekki lengi í paradís því Jóhann Berg fór meiddur af velli eftir 20 mínútna leik eftir slæma tæklingu. Óvíst er að hann verði orðinn heill heilsu fyrir næsta landsleik. Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Aron Einar Gunnarsson Félag: Cardiff Deild: Championship Síðasti heili leikur: 18. febrúar Mínútur frá áramótum: 900 Aron Einar er í geggjuðu formi. Hann hefur spilað hverja einustu mínútu fyrir Cardiff á árinu og er algjör lykilmaður hjá félaginu. Nýr stjóri hefur varla haft undan að hrósa Aroni fyrir frammistöðu hans, enda er hann líklega í sínu besta formi á ferlinum. Það eru frábærar fréttir fyrir landsliðið að Aron sé í toppformi en hann var á öðrum fætinum á EM í sumar. Hörður Björgvin Magnússon Félag: Bristol City Deild: Championship Síðasti heili leikur: 21. janúar Mínútur frá áramótum: 180 Hörður hefur flestum að óvörum misst sæti sitt í liðinu. Hann var fastamaður fyrir áramót en var síðan tekinn út úr liðinu. Stuðningsmenn hafa margir hverjir mótmælt enda þótti hann einn besti maður liðsins fyrir áramót. Þjálfarinn hefur gefið sérkennilegar skýringar á því hvers vegna hann hefur ekki einu sinni setið á bekkn- um. Framhaldið er óvíst. Birkir Bjarnason Félag: Aston Villa Deild: Championship Síðasti heili leikur: 20. febrúar Mínútur frá áramótum: 354 Birkir hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni frá því hann gekk í raðir félagsins í lok janúar. Hann hefur verið í byrjunarliðinu í öllum leikjum nema einum en hefur alls ekki náð sér á strik frekar en aðrir leikmenn liðsins. Aston Villa hefur tapað öllum leikjunum síðan Birkir kom til félagsins. Þó ekki sé beinlínis við hann að sakast er ljóst að sjálfstraustið gæti verið meira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.