Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Qupperneq 54
Helgarblað 24.–27. febrúar 201746 Fólk Bílahitari Við einföldum líf bíleigandans Termini 1700 bílahitarinn er tilvalin lausn. Hann er lítill og nettur og auðvelt að koma honum fyrir t.d. undir mælaborði bílsins. Allur tengibúnaður fylgir ásamt tímarofa sem ræsir hitarann t.d. klukkutíma áður en þú leggur af stað. Verð kr. 39.000 Væri ekki dásamlegt að sleppa við að skafa glugga og geta sest inn í heitan og notalegan bílinn á köldum vetrarmorgni? Láttu verkstæðið sjá um ísetninguna. Verð frá kr. 49.900 með ísetningu. 11.0 52 Molar úr sögu Óskarsverðlaunanna Óskarsverðlaunin verða afhent næstkomandi sunnudagskvöld í Los Angeles. Hér eru nokkrir fróðleiksmolar um vinningshafa og þá sem tilnefndir hafa verið hvað oftast.  Allar myndir Cazale í fullri lengd tilnefndar Leikarinn John Cazale varð ekki langlífur, lést 42 ára gamall úr krabbameini. Hann lék í fimm kvikmyndum í fullri lengd og eftir lát hans voru gömul myndskot notuð í þeirri sjöttu. Allar þessar sex myndir voru tilnefndar til Óskarsverð­ launa. Þrjár þeirra voru valdar besta myndin: Guðfaðirinn, Guðfaðirinn II og The Deer Hunter en þar lék Cazale á móti sambýliskonu sinni, Meryl Streep.  Streep á metið Enginn leikkona og leikari hefur hlot­ ið fleiri tilnefningar til Óskarsverð­ launa en Meryl Streep eða alls 20 en hún hefur þrisvar hlotið verðlaunin. Í ár er hún tilnefnd fyrir snjallan leik sinn í Florence Foster Jenkins. Sá karlleikari sem hlotið hefur flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna er Jack Nicholson en tilnefningar hans eru tólf.  Flestar tilnefningar Walt Disney er sá sem oftast hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, 59 sinnum. Hann hlaut 26 verðlaun á sínum langa og farsæla ferli, sem er met.  Vinnur Kevin loksins? Hljóðmaðurinn Kevin O'Connell hefur verið kallaður óheppnasti maður í sögu Óskarsverðlaunanna. Hann hefur tuttugu og einu sinni verið tilefndur til Óskars­ verðlauna fyrir bestu hljóðsetningu en aldrei hlotið verðlaunin. Í ár er hann tilnefndur fyrir hljóðvinnu við mynd Mel Gibson, Hawksaw Ridge. Ekki nema von að margir haldi með honum. Sjálfur segist hann ekki velta verðlaunaveitingum mikið fyrir sér. Réttir verðlauna- hafar Stundum hefur því verið velt upp hvort hætta sé á því að tilkynnt sé um rangan verðlaunahafa. Við­ bragðsáætlun er til gerist það. Fulltrúar Pricewater­ houseCoopers hafa það hlutverk að storma upp á svið ef ekki er tilkynnt um réttan sigur­ vegara.  Hélt lengstu ræðuna Lengsta þakkarræða í sögu Óskarsverðlaunanna var flutt af Greer Garson þegar hún hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í Frú Miniver. Hún talaði í 5 mínútur og 30 sekúndur. Síðan var sett regla um að þakkar ræður mættu ekki vera lengri en 45 sekúndur. Stystu þakkar ræðurnar fluttu William Holden, þegar hann fékk verðlaun­ in fyrir leik í Stalag 17, og Alfred Hitchcock, sem fékk heiðursverð­ laun Akademíunnar. Báðir sögðu einfaldlega: „Þakka ykkur fyrir.“  50 tilnefningar Á meðal núlifandi einstaklinga á tónskáldið John Williams metið þegar kemur að tilnefningum. Hann hefur verið tilnefndur 50 sinnum til Óskarsverðlauna og hlotið þau fimm sinnum. Einungis Walt Disney var tilnefndur oftar. 

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.