Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 40
Helgarblað 10.–13. mars 201736 Skrýtið
Reifst við gjaldkera
Það kannast flestir við þessa bráðsnjöllu leikkonu
sem vann til Óskarsverðlauna árið 2004
sem besta leikkona í aðalhlutverki. Þegar
Charlize Theron var 18 ára flutti hún til
Hollywood til að reyna fyrir sér í leiklist.
Um þetta leyti bjó hún á hótelum sem hún
greiddi fyrir með ávísunum sem hún fékk fyrir
fyrirsætustörf í New York. Dag einn var hún
stödd í bankaútibúi þar sem hún reyndi að skipta
ávísun, en vegna þess að ávísunin var gefin út í öðru ríki sagði
gjaldkerinn henni að það væri ekki hægt. Theron stóð fast á sínu
og skiptist á nokkrum vel völdum orðum við gjaldkerann. Kom
þá aðvífandi maður sem reyndi að koma Theron til aðstoðar, en
umræddur maður, John Crosby, starfaði fyrir umboðsskrifstofu í
Hollywood sem leitaði að ungum og efnilegum leikurum. Crosby
gaf sig á tal við Theron eftir að henni hafði tekist að skipta ávís-
uninni og í kjölfarið aðstoðaði hann Theron við að finna hlutverk.
Innan fárra mánaða lék hún í sinni fyrstu mynd, Children of the
Corn III sem kom út árið 1995.
Birtist á risaskjá
Eins og margir eflaust vita sló Pamela Anderson í gegn
sem fyrirsæta áður en kvikmynda- og sjónvarpsþáttafram-
leiðendur í Hollywood gerðu hosur sínar grænar fyrir henni.
Pamela er fædd í Kanada og hún flutti til Vancouver eftir
útskrift úr menntaskóla til að starfa sem einkaþjálfari.
Um það leyti skellti hún sér á leik í efstu deild kanadísku
ruðningsdeildarinnar og flennistór mynd af henni birtist á
skjá á vellinum. Pamela var íklædd bol sem var merktur
Labatt, sem er kanadískur bjórframleiðandi. Eins glæsi-
leg og Pamela var á þessum tíma – og er enn vitanlega
– vakti hún mikla athygli og forsvarsmenn Labatt gerðu
umsvifalaust auglýsingasamning við hana. Í kjölfarið
kom kallið frá Playboy og þar á eftir landaði hún hlut-
verkum í sjónvarpsþáttum á borð við Charles in Charge,
Married … With Children, Home Improvement og svo
Baywatch þar sem hún sló endanlega í gegn.
Vann fyrirsætukeppni
Áður en Ashton Kutcher varð frægur leikari stundaði hann nám í verkfræði við Uni-
versity of Iowa. Samhliða námi starfaði hann sem smiður og einnig í verksmiðju General
Mills í Cedar Rapids í Iowa. Eitt kvöld breyttist þó allt þegar Kutcher fór á bar í Iowa
City. Þar kom maður að máli við hann og hvatti hann til að taka þátt í fyrirsætukeppni.
Kutcher ákvað að slá til og vann keppnina. Hann tók þátt í fleiri keppnum og sat meðal
annars fyrir á auglýsingum fyrir Calvin Klein og Versace. Í kjölfarið hófst leiklistarferill
Kutcher en stóra tækifærið kom í þáttunum That '70's Show.
Fengu stóra tækifærið
fyrir hreina tilviljun
n Pamela birtist á risaskjá n Mel Gibson lenti í slagsmálum n Ashton Kutcher vann fyrirsætukeppni
S
tjörnurnar í Hollywood
eiga allar sína sögu um að-
draganda þess að þær fengu
stóra tækifærið og slógu í
gegn. Sumar sögurnar eru
þó skemmtilegri en aðrar og má
segja að röð tilviljana hafi orðið
til þess að margar stjörnur slógu í
gegn. Óskarsverðlaunaleikkonan
Charlize Theron má til dæmis þakka
orðaskaki sem hún lenti í við banka-
starfsmann um aðdraganda þess
að hún varð fræg leikkona. Hér að
neðan má lesa um aðdraganda þess
að stjörnurnar í Hollywood urðu
stjörnur. n
Hljóp í skarðið
eftir forföll
Bill Cosby má muna fífil sinn fegurri enda hafa fjölmargar
konur stigið fram á undanförnum árum og sakað hann um kynferðis-
ofbeldi. Til stendur að rétta yfir honum síðar á árinu. Áður en þessar
ásakanir komu fram í dagsljósið var Cosby virtur og vinsæll skemmti-
kraftur hjá mörgum. Ferill hans í skemmtanabransanum hófst á sjötta
áratug liðinnar aldar þegar Cosby starfaði sem barþjónn á klúbbi þar sem
grínistar héldu uppi stuðinu. Eitt kvöldið forfallaðist einn skemmtikraft-
urinn og brá Cosby á það ráð að hlaupa í skarðið og fara upp á svið. Cosby
sló rækilega í gegn í kjölfarið og varð einn vinsælasti skemmtikraftur
Bandaríkjanna á síðari hluta 20. aldar.
Afdrifarík
slagsmál
Ástralski leikarinn Mel Gibson
stefndi alltaf að því að verða leikari en
tilviljun réð því að hann varð heims-
frægur. Hann stundaði leiklistarnám
við National Institute of Dramatic Art í
Sydney og lék í nokkrum leiksýningum
eftir útskrift. Dag einn bað vinur hans
hann um að skutla sér í prufu fyrir nýja
mynd sem bar heitið Mad Max. Gibson
vildi aðstoða vin sinn en prufan var
daginn eftir. Kvöldið áður en prufan
fór fram lenti Gibson í slagsmálum á
bar og var nokkuð lemstraður í andliti
á eftir. Hann skutlaði
vininum engu að
síður í prufuna en vakti ómælda athygli leikstjórans sem kom að
máli við hann. Ástæðan var sú að leikstjórann vantaði einstakling
í myndina sem hafði yfirbragð óþokka. Þremur vikum síðar mætti
Gibson í prufu og landaði sjálfu aðalhlutverkinu eftir að hafa slegið
í gegn í prufunni.
Eins og þruma úr
heiðskíru lofti
Rosario Dawson var aðeins fimmtán ára gömul þegar tveir
menn, Harmony Korine og Larry Clark, gengu upp að henni þar
sem hún sat fyrir utan heimili sitt og sögðu að hún myndi ef til vill
henta vel í hlutverk bíómyndar sem þeir félagar
voru með í bígerð. Dawson, sem hafði aldrei
starfað sem leikkona, greip tækifærið og
landaði hlutverki unglings stúlkunnar
Ruby í myndinni Kids frá árinu 1995.
Kids er ein eftirminnilegasta og
umdeildasta mynd síðari ára enda er
viðfangsefni hennar eiturlyfjaneysla,
kynlíf og ofbeldi meðal ungmenna í New
York. Þess má geta að Chloe Sevigny fékk
einnig sitt fyrsta tækifæri í myndinni.