Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 29
Helgarblað 10.–13. mars 2017 Kynningarblað - Vel að merkja 3
Límböndin hafa slegið í gegn
Merkiverk býður upp á fjölbreytta þjónustu í merkingum
Á
prentuð límbönd eru einn
stærsti þátturinn hjá okkur
en við bjóðum upp á mjög
hraða afgreiðslu, það getum
við gert þar sem við prent-
um límbönd hér heima. Við get-
um einnig látið prenta erlendis fyr-
ir mjög stórar pantanir en það getur
verið hagstætt í sumum tilvikum. Við
prentum límmiða af öllum stærðum
og gerðum í stóru eða litlu upplagi.
Við getum prentað allt að 4.000 rúll-
ur af límbandi á sólarhring þannig
að framleiðslugetan er mjög mik-
il. Hjá samkeppnisaðilum okkar er
oft nokkurra vikna bið eftir límbandi
sem er prentað erlendis.“
Þetta segir Bjarki Clausen hjá fyr-
irtækinu Merkiverk en sala á áprent-
uðum límböndum hefur farið mjög
vaxandi hjá fyrirtækinu. Sá hluti
starfseminnar fer fram undir heitinu
Límbönd, en Merkiverk keypti það
fyrirtæki árið 2009. Límböndin eru
í senn afar gagnleg og um leið góð
auglýsing fyrir fyrirtækið sem fær
prentað merki sitt á rúlluna. Bjarki
heldur áfram:
„Við bjóðum líka sérprentuð lím-
bönd frá aðeins 36 rúllum sem hent-
ar mörgum smærri fyrirtækjum mjög
vel. PVC-límböndin okkar eru þekkt
fyrir styrk og gæði og þau skilja ekki
eftir sig lím eða leifar þegar þau eru
tekin af hlutum þegar þess þarf. En
við heyrum oft að margir kvarta und-
an slíku varðandi límbönd frá öðrum
birgjum, að lím verði eftir þegar lím-
bandið er tekið af, sem er hvimleitt.
Annar kostur við límböndin frá okkur
er verðið, en það er ódýrara að kaupa
sérmerkta PVC-límbandsrúllu af
okkur en að kaupa óáprentaða rúllu
í byggingavöruverslun eða stórmark-
aði. Við seljum einnig aðrar gerðir af
límbandi eins og PP, akrýl o.fl. Einnig
límbyssur og strekkiplast.“
Merkiverk býður einnig upp á
ýmsar aðrar sérmerktar vörur fyrir
fyrirtæki, til dæmis penna og bolla.
Einnig eru bílamerkingar veigamik-
ill þáttur í starfseminni. „Við bjóðum
bæði upp á heilmerkingu á bílum þar
sem bílnum er pakkað inn og heilu
myndirnar þekja bílinn, en einnig
eru smærri merkingar í boði.“ Bjarki
álítur að bílamerkingar séu afar góð-
ur og ódýr auglýsingamáti fyrir fyrir-
tæki og segist þekkja dæmi þess að
merkingar á bílum viðskiptavina hafi
borgað sig upp í auknum viðskiptum
strax daginn eftir.
Merkiverk var stofnað árið 2007.
Verkefnin eru fjölbreytt og af öll-
um stærðum. Stærstu verkefni eru
merkingar fyrir fyrirtæki. Allt frá ein-
földum gluggamerkingum að sér-
smíðuðum skiltum með sérhann-
aðri lýsingu. Þetta eru oft mjög stór
skilti á álplötum, ljósaskilti eða segl-
skilti sem geta þakið heilu veggina
á húsum. „Við merkjum mikið fyrir
verslanir og veitingastaði, og ekki má
gleyma öllum bátamerkingunum og
umferðar- og bílastæðaskiltum í öll-
um formum og gerðum,“ segir Bjarki.
Hjá almenningi eru fatamerk-
ingarnar hjá Merkiverk mjög vin-
sælar. „Það er bæði þannig að fólk
kaupir af okkur merktan fatnað eða
að við merkjum föt fyrir fólk. Þetta
er misviðamikið, við erum með silki-
prentun en skerum líka út í vínyl
merki sem eru einfaldari og fljótlegri.
Við bjóðum síðan upp á mikið úrval
af bolum, háskóla- og hettupeysum
og vinnufatnaði, en það er helsti fatn-
aðurinn sem við erum að merkja.“
Til að kaupa merktan fatnað hjá
Merkiverk eða láta merkja föt er
best að senda fyrirspurn á netfangið
merkiverk@merkiverk.is. n
Merkiverk er til húsa að
Fossaleyni 14 í Grafarvogi.
Símanúmer er 578-7733.
Vefsíður eru www.merkiverk.is
og www.limbond.is. Merkiverk hefur meðal annars séð um merkingar fyrir veitingastaðinn Italiano
Alls konar bílamerkingar hjá Merkiverk