Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 24
Helgarblað 10.–13. mars 2017 Heimilisfang Kringlan 4-12 4. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 24 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur L estur er ekki bara dægra­ stytting, heldur svo miklu meira og merkilegra. Lestur eflir ekki einungis málskilning og orðaforða einstaklinga heldur á líka sinn þátt í því að auka hæfni þeirra til að setja sig í spor annarra og finna til samkenndar með þeim. Í bókum kynnist lesandinn persónum og stöðum, sumum raunverulegum, öðrum ímynduðum. Hann sogast inn í heim verksins og er að ferðast þótt hann sé um leið staddur á sama stað. Sá sem hefur ánægju af lestri mun líklega aldrei glata hæfileikan­ um til að hrífast og mun einnig búa að þeirri gæfu að hafa ríkt ímynd­ unarafl. Slíkur er máttur góðra bóka. Við lifum í samfélagi þar sem börn jafnt sem fullorðnir eru óeðli­ lega háð símanum og samfélags­ miðlum og vilja jafnvel fremur eiga samskipti við fólk í gegnum þá miðla en augliti til auglitis. Það bregst ekki að á mannamótum eru alltaf einstaklingar sem eru uppteknari af símanum sínum en því að eiga við­ ræður við aðra. Í slíku samfélagi er ekki sérlega líklegt að bóklestur þyki eftirsóknarverður, hann er líklegri til að þróast í þá átt að verða fyrir af­ markaðan hóp sem þykir fyrir vikið sérviskulegur, jafnvel undarlegur. Við skulum samt ekki örvænta. Og allra síst núna þegar fréttir ber­ ast af því að í sérstöku lestrarátaki sem kennt er við Ævar vísindamann hafi krakkar lesið rúmlega 63 þús­ und bækur á tveimur mánuðum. Þetta var í þriðja sinn sem Ævar vís­ indamaður stóð fyrir lestrarátaki en örugglega ekki það síðasta. Von­ andi styrkja stjórnvöld hann í þessu góða verkefni. Til hvers er til dæmis menntamálaráðuneyti ef ekki til að styðja við þetta verðuga verkefni hans? Framtak hans sýnir að það er sannarlega hægt að fá börn til að líta upp úr símanum og öðrum tækjum og ganga inn í hinn þroskandi heim bókanna. Börn þurfa góðar fyrirmyndir og það hvetur þau ekki beinlínis til bók­ lesturs þegar þeir fullorðnu í umhverf­ inu sjást sjaldan niðursokknir í bók. Það á að lesa fyrir börn, leyfa þeim að skoða bækur og halda stöðugt að þeim bókum. Það er ekki nóg að þetta sé einungis gert í skólum, á heimilum landsins á bóklestur að vera hluti af hinu daglegu lífi sem fyrir vikið verður enn skemmtilegra en ella. Margt í íslensku samfélagi tengist bókum. Þar verður að nefna hinn árlega bókamarkað. Það er ekki sjálfgefið að ungir sem aldnir streymi á sama staðinn til að kaupa bækur. Það gerist í Reykja­ vík á hverju ári og á Akureyri þar sem bókelskir norðanmenn gleðj­ ast. Bókamarkaðurinn hefur verið haldinn í áratugi og þangað hafa fullorðnir mætt með börnin sem fá að velja sér bækur. Ekkert bend­ ir til að sá siður sé á undanhaldi. Meðan svo er þá er bókin sprelllif­ andi. n Bókin lifir Ég kastaðist úr bílstólnum Sesselja missti föður sinn fjögurra ára í slysi á Reykjanesbraut. – DV Sigmundur í borgina? Stuðningsmenn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eru að sjálfsögðu ekki ánægðir með hlutskipti hans sem venjulegs þingmanns og ætla honum stærri hluti. Heyrst hefur að einhverjir þeirra vilji ólmir að Sigmundur fari í fram­ boð í borginni. Þessir stuðnings­ menn telja öruggt að Sigmundur myndi rífa upp fylgi Framsóknar og beita sér af alefli, sérstaklega í flugvallarmálinu og skipulags­ málum. Nú er spurning hvort Sig­ mundur verði við áskorum þessa hóps. Ekkert er öruggt í kosning­ um og ekki væri eftirsóknarvert fyrir hann að húka í minnihluta í borginni. Áköfustu stuðnings­ menn Sigmundar telja hins vegar nær öruggt að svo myndi ekki fara. Þeir veðja á góðan sigur og að þeirra maður verði næsti borgar stjóri í Reykjavík. Tilfinningaskortur Dags og Hjálmars Talandi um skipulagsmál. Jónas Kristjánsson, fyrrverandi rit­ stjóri, kvartar undan tilfinninga­ skorti Hjálmars Sveinssonar og Dags B. Eggerts- sonar á skipulagi. Jónas segir borg­ arfegurðina hafa minnkað stöð­ ugt undir stjórn pólitíkusa, en nú hafi steininn tek­ ið úr. „Tveir mik­ ilvægir reitir við einu breiðgötu miðborgarinnar, Lækjargötu, valda mér angist. Það er reiturinn neðan við Arnarhól og við hlið Iðnaðar­ mannahússins. Þar á að reisa breið hús með láréttum línum og flötu þaki. Stílbrot. Að upp­ runa er Reykjavík borg lóðréttra og mjórra húsa með bröttu þaki,“ segir hann. Jónas er örugglega ekki einn um það að hafa áhyggj­ ur af skipulagsmálum í höfuð­ borginni, en þar virðist ekkert lengur vera heilagt. Borgarstjóri hefur ekki skoðun „Ég get ekki verið að hafa skoðun á öllu sem ein staka starfs menn borg ar inn ar segja á Face book,“ sagði Dagur B. Egg- ertsson aðspurður um ummæli Hild- ar Lilliendahl sem vandaði Sindra Sindrasyni ekki kveðjurnar á Face­ book og kallaði hann Epalhomma. Hildi misbauð ýmis orð sem Sindri lét falla í við­ tali við Töru Margréti Vilhjálms- dóttur. Í siðareglum Reykjavíkur­ borgar stendur að starfsmenn skuli sýna borg ur um virðingu og umb urðarlyndi. Hildur er starfs­ maður borgarinnar og braut þessa reglu. Vitaskuld getur borgarstjóri ekki haft skoðanir á „öllu" sem starfsmenn borgarinnar segja á Facebook en hann ætti þó geta haft skoðanir á sumu, eins og því þegar starfsmenn hans ata aðra auri með orðum sínum, eins og Hildur gerði. Mamma hringdi hissa og spurði hvað væri að vera epla-hommi Sindri Sindrason var kallaður Epalhommi. – Facebook Hann fór sínar eigin leiðir í lífinu Bryndís Fjóla missti son sinn, Bjarna Salvar, í Suður-Afríku. – DV „Framtak hans sýnir að það er sannarlega hægt að fá börn til að líta upp úr símanum og öðrum tækjum og ganga inn í hinn þroskandi heim bókanna. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is MynD ÞorMar ViGnir GunnarSSon Myndin Á sýningu Skólabörn í Kópavogi virða fyrir sér verk á sýningunni Normið er ný framúrstefna. Jafnvel þótt flest verkanna hafi skírskotanir í afar hversdagslega hluti bar ekki á öðru en að börnin væru full áhuga. MynD SiGTryGGur ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.