Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2017, Blaðsíða 48
Helgarblað 10.–13. mars 201744 Menning
Vann til
tvennra
verðlauna
í virtri
ljóðasöng-
keppni
Jóhann Kristinsson, sonur Kristins
Sigmundssonar, hefur gefið úr þrjár plötur
með frumsaminni kassagítartónlist en gerir
það nú gott í heimi klassískrar tónlistar
J
óhann Kristinsson barítón-
söngvari hlaut tvenn verð-
laun í hinni virtu alþjóðlegu
ljóðasöngvakeppni Das Lied
sem fór fram í Heidelberg í
Þýskalandi á dögunum, en þetta er
í fyrsta skipti sem Íslendingur hlýtur
verðlaun í keppninni.
Jóhann, sem er 28 ára og við það
að ljúka masternámi í óperusöng
við Hanns Eisler-tónlistarháskól-
ann í Berlín, á ekki langt að sækja
sönghæfileikana en hann er sonur
Kristins Sigmundssonar óperu-
söngvara.
Áhorfendaverðlaun í virtri
ljóðasöngkeppni
Jóhann var einn tuttugu og sex
söngvara sem voru valdir úr hópi
116 umsækjanda til að syngja á
sviðinu í Heidelberg þegar alþjóð-
lega ljóðasöngkeppnin Das Lied -
International Song Competition fór
fram í síðustu viku. Keppnin, sem
er stofnuð af hinum heimsþekkta
ljóðasöngvara Thomas Quasthoff, er
haldin á tveggja ára fresti og er þetta
í fimmta skipti sem hún fer fram.
„Ljóðasöngvar eru verk þar
sem tónskáld hafa tekið ljóð sem
hreyft hafa við þeim á einhverj-
um tímapunkti og sameinað þau
við eigin tónsmíðar og tilfinningar.
Úr þessu verður eitthvert falleg-
asta samtal sem um getur í list-
um – eitthvert fallegasta listform
sem ég þekki,“ útskýrir Jóhann. „Þú
sem ljóðasöngvari ert svo nakinn á
sviðinu, þú þarft að endurspegla þær
tilfinningar sem bæði ljóðskáldið og
tónskáldið fundu fyrir þegar verkin
voru samin. Það er hægara sagt en
gert og maður getur aldrei kafað of
djúpt ofan í eigin tilfinningar. Það er
hins vegar ekkert jafn hundleiðin-
legt og heilt tónleikaprógramm með
ljóða söngvara sem meinar ekki það
sem hann syngur.“
Og verk eftir hvaða tónskáld
söngst þú í keppninni?
„Maður þurfti að undirbúa sig
með því að æfa 30 lög, fimmtán
eftir Franz Schubert, tíu eftir Robert
Schumann og fimm eftir nútímatón-
skáldið Wolfgang Rihm. Í fyrstu lotu
átti maður að syngja þrjú lög að eig-
in vali, þeir sem komust áfram fengu
svo að syngja þrjú lög í viðbót sem
dómnefndin valdi auk tveggja laga
að eigin vali. Í úrslitalotunni átti
maður svo að syngja sex lög í við-
bót,“ útskýrir Jóhann.
Dómnefndin, sem var meðal
annars skipuð nokkrum af virtustu
ljóðasöngvurum heims og áhrifa-
fólki innan tónlistarheimsins,
veitti Jóhanni þriðju verðlaun fyrir
frammistöðuna en hann sigraði hins
vegar í kosningu áhorfenda og hlaut
því sérstök áhorfendaverðlaun. „Það
kom alveg flatt upp á mig, en var al-
veg ótrúlega gaman! Mér finnst svo
mikilvægt að fá viðbrögð frá hinum
almenna hlustanda en ekki bara fag-
fólkinu.“
Jóhann hlýtur 5.000 evrur fyrir
hvor verðlaun og mun þar að auki
fá að koma fram ásamt hinum verð-
launahöfunum á sérstökum tón-
leikum á tónlistarhátíðinni Heidel-
berger Frühling í apríl. „Það hefur
auðvitað líka mikla þýðingu að ná að
stimpla sig inn hjá fólki sem hefur
eitthvað að segja í þessum bransa.“
Úr poppinu í klassíkina
Áður en Jóhann sökkti sér almenni-
lega í klassíska sönginn hafði hann
vakið nokkra athygli í íslensku
indítónlistarsenunni fyrir lág-
stemmdar dægurlagasmíðar sínar
sem hann lék reglulega einn með
kassagítar á tónleikum og gaf út á
tveimur plötum. En hefur hann gefið
popptónlistarferilinn upp á bátinn?
„Nei, nei – eða ég veit nú ekki
beint hvort það hafi verið einhver
„ferill“,“ segir Jóhann og hlær. „En
þegar ég byrjaði í masternáminu í
Berlín ákvað ég að einbeita mér al-
veg að því. Maður þarf að leggja svo
ótrúlega hart að sér ef maður ætlar
að ná einhverjum árangri á þessu
sviði, sérstaklega vegna þess hversu
hörð samkeppnin er. Þegar maður
er að fást við tónlist hefur heilinn svo
bara ákveðið þrek í það á hverjum
degi. Það er erfitt að vinna í klassík
heilan vinnudag og fara svo að vinna
að annarri tónlist – þá langar mann
bara að gera eitthvað.“
Eru klassíkin og dægurtónlistin
algjörlega tveir aðskildir hlutir í
þínum huga, eða er eitthvað sem þú
hefur tekið úr dægurtónlistinni sem
þú getur nýtt þér í dag?
„Jaaa, í mínum huga gildir það
sama um alla tónlist, ef hún flæðir
ekki þá er hún óáhugaverð. Það þarf
að vera þessi tilfinning að einhverju
sé sleppt lausu – það er eitthvað
„release“ sem verður alltaf að vera
til staðar. Mér finnst eins og þetta sé
eitthvað sem ég taki úr þeirri reynslu
að hafa búið til tónlist sjálfur. Mér
finnst ég geta sleppt mér í tímalaust
ástand sem er engu að síður í rytma.“
Það er eiginlega óhjákvæmilegt
að spyrja þig út í föður þinn, Kristin
Sigmundsson. Var einhver pressa
heiman frá að fara í þessa átt?
„Alls ekki – foreldrar mínir hafa
alltaf stutt mig í öllu sem ég hef viljað
gera. Pabbi hefur stundum sagt að
bara ef ég geti ekki hugsað mér neitt
annað þá eigi ég að gera þetta. En
það er heldur ekki nein endanleg
ákvörðun að starfa við söng. Þetta
er mjög erfiður bransi og lífið sem
fylgir þessu er erfitt, maður þarf að
hafa þykkan skráp. En ég flýt bara
áfram með þessari öldu núna, leyfi
henni að bera mig þangað sem hún
ber mig – og ef hún stoppar einhvern
tímann þá finnst mér engin uppgjöf
falin í því að snúa mér að einhverju
öðru.“ n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Mér finnst svo
mikilvægt að fá
viðbrögð frá hinum
almenna hlustanda en
ekki bara fagfólkinu.
Uppáhald áhorfenda Jóhann söng í úrslitum Das Lied ljóðasöngvakeppninnar í Heidelberg við undirleik píanistans Ammiel Bushakevitz
og hlaut meðal annars áhorfendaverðlaun keppninnar.
Úr listheiminum
Í upphafi mars var opnuð mál-verkasýning George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
á forsetabókasafninu Háskól-
anum Í Dallas í Texas. Sýningin
nefnist Portraits of courage og
gefur þar að líta 66 andlitsmál-
verk af hermönnum sem særðust
í Íraksstríðinu, sem forsetinn hóf
árið 2003. Hann hefur áður sýnt
málverk sín af ýmsum leiðtog-
um ríkja heims sem hann hitti á
meðan hann gegndi embætti for-
seta.
Efnisveitan og sjón-varps-
þáttaframleið-
andinn Netflix
hefur staðfest að
fyrirtækið vinni nú að þróun
sjónvarpsþáttar sem áhorfendur
geta haft áhrif á með því að velja
hvernig sögunni vindur fram.
Fyrirtækið mun hefja tilraunir á
þessu ári með barnaþáttum þar
sem áhorfendur geta haft áhrif
á ævintýrið og ef tilraunin geng-
ur vel mun það prófa tæknina í
sjónvarpsþáttum fyrir fullorðna.
Þekktasti laumulistamaður heims Banksy hefur opnað 10 herbergja hótel í Betlehem.
Hótelið, sem er allt í senn gisti-
heimili, listasafn, innsetning og
pólitískur mótmælagjörningur,
er staðsett fyrir neðan umdeild-
an múr sem skilur að landsvæði
Palestínumanna og ólöglegar
landnemabyggðir Ísraela. Inn-
volsið er sagt vísa á dystópískan
hátt í nýlendusögu svæðisins og
gluggar allra herbergjanna snúa
út að múrnum, en listamaður-
inn segir raunar að ekkert hótel
í heiminum hafi verra útsýni en
þetta.
Tónlistar-maðurinn Stephin
Merritt og
hljómsveit
hans The
Magnetic Fields
eru þekkt fyrir
þematíska nálgun á metnaðar-
full popptónlistarverkefni. Árið
1999 gaf sveitin til að mynda út
þreföldu plötuna 69 Love Songs,
sem innihélt 69 frumsamin ást-
arlög. Í dag, 10. Mars, kom út
nýjasta plata sveitarinnar en fyrir
hana samdi Merritt eitt lag fyrir
hvert þeirra 50 ára sem hann hef-
ur lifað. Platan nefnist 50 Song
Memoir og kemur út hjá No-
nesuch Records.