Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Blaðsíða 6
Helgarblað 24.–27. mars 20176 Fréttir „Skapa óviSSu og ótta meðal íbúa“ Borgarfulltrúi segir að sala Seljahlíðar hafi verið „bókhaldsbrella“ Þ etta er allt afskaplega loðið og við fáum mismunandi svör úr öllum áttum. Félagsbústað- ir segjast ætla að fara í endur- bætur á íbúðunum en úr annarri átt heyrum við að koma eigi fyrir helluborðum í íbúðunum og þá sé málið leyst. Þessi vinnubrögð geta ekki verið eðlileg og þau skapa óvissu og ótta meðal íbúa og aðstandenda,“ seg- ir baráttukonan Ingibjörg S. Finnboga- dóttir, íbúi í Seljahlíð, í samtali við DV. Blöskraði vinnubrögðin Eins og DV hefur fjallað ítarlega um þá keyptu Félagsbústaðir hf. þjón- ustuíbúðirnar í Seljahlíð af Reykja- víkurborg um áramótin. Málinu var hraðað í gegnum borgarstjórn og ekki var hlustað á úrtöluraddir minni- hlutans sem vildu fresta málinu fram yfir áramót og fara vandlega yfir alla þætti þess án þess að vera undir tíma- pressu. „Fulltrúar meirihlutans sögðu þá að slík frestun kæmi ekki til greina því þeir ætluðu sér að samþykkja yf- irfærslu þessara eigna fyrir áramót og gerðu þeir það á síðasta borgarstjórn- arfundi ársins, 20. desember. Við Sjálfstæðismenn studdum ekki málið heldur sátum hjá við afgreiðslu þess þar sem okkur blöskraði þessi vinnu- brögð,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Eykur á skuldsetningu Að hans mati var tilgangurinn sá að fá fram fjárhagsleg áhrif ákvörðunar- innar fyrir áramót. „Ætlunin var að mynda hagnað hjá borgarsjóði vegna sölu eignanna til B-hluta fyrirtæk- is. Félagsbústaðir munu hins vegar fjármagna kaupin með lántöku og því mun hagur Reykjavíkurborgar í heild ekki batna með þessum bók- haldsbrögðum. Skuldir samstæðunn- ar munu aukast. Eins og áður segir þá var tilgangurinn að bæta slæma stöðu borgarsjóðs fyrir áramót en flýtirinn var svo mikill og vinnubrögðin svo óvönduð að ég er ekki einu sinni viss um að það takist,“ segir Kjartan. Fullyrt að áhrifin yrðu engin Minnihlutinn í borgarstjórn lagði fram fyrirspurn til skrifstofu borgar- stjóra áður en salan gekk í gegn þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort og þá hvaða breytingar umrædd eignasala kynni að hafa í för með sér fyrir íbúa Seljahlíðar. Svarið barst þann 28. febrúar 2017 og þá kom fram að velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafi hingað til „niðurgreitt leigu hjá hluta hópsins en eftir breytingarn- ar á lögum um húsnæðisbætur sem tóku gildi um síðustu áramót öðluð- ust íbúar í umræddum búsetuúrræð- um rétt á að sækja um sérstakan hús- næðisstuðning til Reykjavíkurborgar. Þar sem ekki er um leigusamninga að ræða eins og í skammtímavistun- um og vistheimilum barna er einung- is um eignarhaldsskipti að ræða sem hefur engin áhrif á þá sem nýta sér úr- ræðin,“ segir í svarinu. Íbúar þurftu að hafa vit fyrir Félagsbústöðum Eins og DV greindi frá í síðustu viku þá standast þær fullyrðingar enga skoðun. Staða íbúanna í Seljahlíð er allt önnur eftir gjörninginn. Félags- bústaðir ákváðu að segja upp leigu- samningum íbúanna í Seljahlíð frá og með 1. apríl og eftir tólf mánaða upp- sagnarfrest mun leigan hækka um 80–125%. Það var gert í þeirri trú að húsaleigubætur kæmu á móti hækk- uninni. Ingibjörg benti hins vegar á að samkvæmt lögum þá uppfylltu íbúð- irnar ekki skilyrði í lögum um hús- næðisbætur út af því að séreldunar- aðstaða er ekki til staðar í íbúðunum. Það virtist koma starfsmönnum Fé- lagsbústaða í opna skjöldu og brást fyrirtækið við með því að senda út fréttatilkynningu vegna málsins. Segja leiguna lága Þar kom fram að ráðist verði í endur- bætur á húsnæðinu og að íbúð- irnar verði útbúnar þannig að þær uppfylli skilyrði húsnæðisbóta. Þær endurbætur eiga ekki að hafa áhrif á ákvörðun leiguverðs. „Núverandi húsaleiga í Seljahlíð er afar lág og mun lægri en í öðrum þjónustuíbúð- um á vegum Félagsbústaða, eða um kr. 31 þúsund á mánuði með hita og rafmagni. Húsaleiga í öðrum samb- ærilegum þjónustuíbúðum í eigu Fé- lagsbústaða er á bilinu kr. 63–76 þús- und á mánuði án hita og rafmagns, en þær eru misjafnar að stærð,“ segir í til- kynningunni. Þar kemur einnig fram að húsaleiga í Seljahlíð verði að með- altali 72 þúsund krónur á mánuði fyrir einstaklingsíbúð. „Uppfylli íbúi tekju- og eignaviðmið til að fá hús- næðisbætur greiðir hann, að teknu tilliti til þeirra, 43 þúsund krónur á mánuði í húsaleigu miðað við gild- andi bótakerfi,“ segir enn fremur. Loðnar útskýringar og eignaupptaka „Þeir vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga varðandi þetta mál og það er óásættanlegt að lesa ein- hverjar loðnar útskýringar í dag- blöðum um einhverjar endurbætur sem aldrei hafa verið kynntar eða útskýrðar með neinum hætti. Íbú- ar í Seljahlíð hafa ekki hugmynd um hvernig Félagsbústaðir ætla að út- færa þetta mál þegar vika er í að fyr- irtækið segi upp leigusamningum allra íbúa,“ segir Ingibjörg. Þá ítrekar hún þá skoðun sína að um eignaupptöku hjá hinu op- inbera sé að ræða. „Það eru margir sem dveljast hér sem eiga smá vara- sjóð eftir að hafa selt fasteignirnar sínar. Þessir aurar munu gera það að verkum að þessir íbúar fá ekki húsaleigubætur. Borgaryfirvöld eru með þessum aðgerðum að seilast í þessa sjóði. Ég er viss um að flest- ir íbúar hér kjósa frekar að nota þá peninga í að gera vel við sig og af- komendur sína á meðan heilsan leyfir. Þessi framkoma við aldraða íbúa borgarinnar er til skammar,“ segir Ingibjörg ákveðin. DV hefur ítrekað óskað eft- ir nánari upplýsingum frá Félags- bústöðum hf. varðandi málið en engin svör fengið nema fréttatil- kynninguna sem send var á alla fjöl- miðla. n Kjartan Magnússon Segir að sala Seljahlíðar hafi verið bókhaldsbrella meirihlutans. Ingibjörg S. Finnbogadóttir Segir óásættanlegt að íbúar í Seljahlíð séu engu nær varðandi hugsanlegar endurbætur á íbúðum þeirra þegar vika er í að leigusamn- ingum allra verður sagt upp. Mynd SIgtryggur ArI Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Seljahlíð Aldraðir íbúar í þjónustuíbúðunum eru afar ósáttir við vinnubrögð Félagsbústaða og Reykja- víkurborgar. Mynd SIgtryggur ArI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.