Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Side 13
Helgarblað 24.–27. mars 2017 Fréttir 13
Eitt af sönnunargögnum í kærumálinu
gegn lögreglunni vegna aðgerðanna á
Strawberries eru myndskeið úr eftirlits-
myndakerfi staðarins. Blaðamenn DV
fengu við vinnslu þessarar umfjöllunar að
sjá brot úr umræddum myndskeiðum sem
sýna annars vegar það sem fullyrt er að
séu óeinkennisklæddir lögreglumenn við
barinn á kampavínsklúbbnum að panta
sér og drekka ótæpilega af áfengi.
Líkt og fram hefur komið fylgdu mynd-
skeiðin kærunni til héraðssaksóknara
síðastliðið sumar þar sem lögreglu-
mennirnir voru sakaðir um að hafa verið
drukknir við skyldustörf og framkvæmt
fyrstu handtökur í málinu eftir að hafa
setið að sumbli á staðnum. Mennirnir sjást
panta sér og greiða fyrir fjölmarga bjóra
og drekka þá. En ekki aðeins bjór, heldur í
að minnsta kosti tvö skipti sjást mennirnir,
sem fullyrt er að séu lögreglumenn, fá sér
eitthvað sem líklega er koníak eða viskí í
glas. Sjást þeir velta glasinu um í lófanum,
þefa af því og drekka í botn. Að minnsta
kosti einn mannanna virðist síðar vera
orðinn áberandi ölvaður við barinn.
Hitt sem myndskeiðin sýna er aðdrag-
andi aðgerða lögreglu á Strawberries þar
sem farið var í handtökur á starfsmönnum
staðarins þegar verið er að loka umrætt
kvöld. Þar sjást tveir menn, sem síðar
er ljóst að eru lögreglumenn. Búið er að
kveikja ljósin á staðnum vegna lokunar og
dyravörður og barþjónar að vísa gestum
staðarins á dyr.
Annar lögreglumannanna er með
bjórflösku í hönd þegar þeir ráðfæra sig
hvor við annan, og miðað við það sem síðar
gerist eru þeir að skipuleggja handtöku-
aðgerðir. Lögreglumaðurinn með bjórinn
í hönd, fær sér síðan gúlsopa, leggur
flöskuna á barborðið og virðist líta eftir
félögum sínum sem von er á. Eftir stutta
stund snýr dyravörðurinn aftur í mynd
eftir að hafa brugðið sér frá, en þá er annar
lögreglumannanna að handtaka barþjón
við barinn og dyravörðurinn athugar málið.
Þá vindur sér upp að honum hinn
lögreglumaðurinn sem nýbúinn var að
leggja frá sér bjórflöskuna og grípur í
frakka dyravarðarins sem bakkar. Einhver
orðaskipti verða þeirra á milli en dyravörð-
urinn virðist spakur og lítt ógnandi. Af
myndbandinu verður ekki annað ráðið en
að lögreglumaðurinn keyri dyravörðinn,
sem var að hörfa aftur á bak, í jörðina, með
þeim afleiðingum að hann fellur harkalega
aftur fyrir sig á gólfið af nokkru afli. Lendir
meðal annars illa á litlu sviði sem þar er.
Myndbönd af þessum atvikum, sem
blaðamenn DV hafa fengið að sjá, eru
meðal þeirra gagna sem lögð voru fram
með kæru um aðgerðir lögreglu. Sem fyrr
segir eru lögreglumennirnir sakaðir um
að hafa verið undir áhrifum áfengis við
aðgerðirnar og handtökur í kjölfarið inni
á staðnum. Umrædd myndbönd virðast
renna stoðum undir þær ásakanir.
n Eftirlitsmyndbönd sýna lögreglumenn panta og drekka fjölmarga bjóra n Dyravörður keyrður harkalega í gólfið
Fóru í handtökur eftir drykkju
Handtaka í gangi Hér má sjá þegar einn lögreglumannanna handtekur barþjóninn.
Í forgrunni er lögreglumaður að þamba bjór sinn.
Lögreglumaður á barnum Hér má sjá einn óeinkennisklæddu lögreglumannanna
við barinn á Strawberries þjóra.
Bjórinn sullast Hér eru lögreglumennirnir tveir, annar sullar niður drykk sínum og
ekki verður um villst að hann er að drekka bjór.
Dyravörður keyrður í gólfið
Hér má sjá augnablikið þegar lögreglu-
maðurinn, sem á fyrri mynd hafði verið
að klára bjórinn sinn, gengur hart fram
gegn dyraverði sem í þessum ramma er
við það að skella harkalega í gólfið.
„Niðurstaða úr
athugun á þessu hlýtur
að leiða eitthvað í ljós, hvaða
ástæður liggja að baki því að
þessir munir finnast ekki
Verðmæti
finnast ekki
Eftir tálbeituað-
gerðir lögreglu inni
á Strawberries-
staðnum voru
eigandi og
fjórir starfsmenn
handteknir og
framkvæmdar
húsleitir. Lagt
var hald á mikið
af munum sem
til stóð að gera
upptæka. Munirnir
hurfu síðan
úr geymslum
lögreglu.