Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 23
Helgarblað 24.–27. mars 2017 Umræða 23 rithöfunda sem tengdust útgáfunni.“ Það er alveg þess virði að skoða þessa bók Ólafs, sem reyndar er þriðja bindi endurminninga hans; hinar tvær hétu Ævintýraþorpið, og segir frá æskuárum í Keflavík, og Byltingamenn og bóhemar, sem vís- ar til áranna í Æskulýðsfylkingunni. Lystræningi og vond listaskáld Ef við segjum að Lystræninginn og fólkið í kringum hann sé svona annar armur þeirrar óformlegu ungskálda- hreyfingar sem var í gangi á þess- um tíma, þá mætti kannski segja að Listaskáldin vondu væri hinn. Jafn- vel myndu sumir tala um efra og neðra lagið, og þá lítill vafi um hvort er hvað. Á þessum árum var ég ung- ur og feiminn aðdáandi umræddra skálda, fylgdist með listgjörningum þeirra eldri úr lotningarfullri fjar- lægð og setti mig ekki úr færi um að verða áheyrsla þegar þau lásu upp. Einn slíkur upplestur var í Norræna húsinu svona hálfu ári áður en Lista- skáldin fóru í Háskólabíó, en dag- skráin í Norræna húsinu var und- ir hinu frægasta viðurnefninu sem seinni tíma menn höfðu um Jónas Hallgrímsson, í fleirtölu reyndar: Ástmegir þjóðarinnar. Það var heill eftirmiðdagur í sal Norræna hússins, og ég held að stefnan þá hafi verið að leyfa öllum að vera með; bara smala inn sem flestum þeirra ungskálda sem voru að byrja að birta verk sín eða gefa út ritlinga. Allt varð þetta fyrir vikið miklu umfangsmeira en nokkur hefur eflaust reiknað með: áheyrendur tróðu sér inn í hús- ið meðan þess var nokkur kostur og fylltu alla kima, fjöldi upplesara var slíkur að dagskráin gekk þindarlaust klukkutímum saman, og kannski var skipulagið ekki niður njörvað, í það minnsta voru sumir, kannski að vonum, svo ánægðir með text- ann sinn að þeir gátu ekkert hætt að lesa: sumir byrjuðu bara fremst í sinni ljóðabók og hættu ekkert fyrr en hún var öll upplesin, og það þótt langt væri liðið á dag og margir enn á mælendaskrá. Stúdentspróflausir menn Svona feiknaleg velgengni og all- ur þessi áhugi sem Ástmögunum var sýndur kveikti trúlega þá hug- mynd að þetta mætti endurtaka, og þá með sal sem rúmaði fleiri, betra skipulagi og færri upplesurum. Ég held að frumkvæðið hafi komið frá MR-ingunum, sem höfðu langa reynslu af samstarfi og voru sumir hverkir komnir á samning hjá stóru forlögunum: áðurnefndir Pétur Gunn og Siggi Páls og svo Steinunn Sig, Hrafn Gunnlaugs og Þórarinn Eldjárn. Þau fengu svo til liðs við sig eldri skáld sem þegar höfðu skapað sér nafn eins og þá Guðberg Bergs- son og Megas. Þetta munu einhverj- ir hafa upplifað svo að það væri ver- ið að velja úrvalsdeild, svona eins og þegar kapplið er valið í lands- leik úr mun stærri æfingahóp. Ein af fjölmörgum frábærum sögum frá þessum tíma sem ég hef heyrt stór- vin minn Ólaf Gunnarsson segja var einhvern veginn eins og hér fer á eft- ir, en Óli var einn af Ástmögunum. Hann og annað ungskáld, gott ef ekki Bjarni Bernharður sem oft var kall- aður Beddi, hafi verið í heimsókn hjá Degi Sigurðarsyni; skáldið Dagur sat við skrifborð en gestirnir á dívan þar í herberginu. Þá hafi komið inn tve- ir af MR-ingunum og væntanlegum Listaskáldum, þeirra erinda að biðja Dag um að vera með í því tiltæki. Óli sagði að Degi hefði greinilega sár- langað að slá til, en ekki kunnað við það af tillitssemi við Ástmegina á dívaninum, sem hann gjóaði aug- unum ótt og títt á meðan hann hugs- aði sig um, en fengu semsé ekki sams konar boð. Dagur hafi á endanum sagt við MR-ingana, sinni hrjúfu röddu: „Nei, ætli ég verði ekki bara áfram í Lystræningjanum, með hin- um tossunum.“ Seinna, sagði Óli mér einnig, hafi Dagur svo verið pínulítið spældur yfir því að svona fór, og sagt við marga: „Það var auðvitað ekki hægt að hafa Óla og Bedda með, því þeir eru ekki með stúdentspróf!“ Þorlákshafnarrenesans En þótt Dagur hafi að sögn tekið svona til orða um tímaritið Lystræn- ingjann, þá fer því fjarri að hann hafi verið eitthvert tossablað. Öðru nær; hann var fullur af alls kyns merkileg- um skáldskap og myndlist og grein- um um alls konar kúnst, auk þess sem uppsetning blaðsins var oft frumleg og skemmtileg. Hann var fyrst um sinn gefinn út af skáldahópi úr röðum Ástmaganna, en þegar þurfti meira og betra skipulag og skýrari forystu tók útgáfuna að sér lítill vinahópur, þar á meðal áður- nefndur Ólafur Ormsson, Þorsteinn Marelsson og svo Vernharður Linnet, sem þá var búsettur í Þorlákshöfn og varð held ég prímusmótor svona í því praktíska. Þorlákshöfn varð þannig nokkurs konar heimahöfn og varnarþing Lystræningjans, og þar á milli varð skýr tenging í hugum fólks; gott ef það var ekki Ólafur heit- inn Jónsson sem í blaðagrein talaði um „Þorlákshafnarrenesansinn.“ Ég hef heyrt þá sögu frá fólki nákomnu sjálfu nóbelsskáldinu á Gljúfrasteini að glanstímarit eitt afar smart hafi beðið hann um viðtal, gott ef það var ekki Nýtt líf. Halldór var þá far- inn að verða spar á slíkt, en var samt spenntur fyrir að fara í spjall við um- rætt blað, sem kom einhverjum á óvart því að áherslan þar á bæ var meira á ungt og frægt fólk og tísku og hönnun og þess háttar. En Halldór á að hafa svarað: „Jú, ég hef heyrt vel af þessu blaði látið; mér skilst það sé gefið út í Þorlákshöfn.“ „Boðið upp í dans“ Svo við snúum okkur aftur að bók- inni Skáldaspegill eftir Ólaf Ormsson þá er sjálfsagt að mæla með henni við alla sem hafa áhuga á menn- ingarsögu okkar tíma. Þar er margt áhugavert; stundum minnir hún að- eins á hrakfallasögur af því tagi sem við þekkjum frá til dæmis höfundum á borð við Jóhannes Birkiland, og á það ekki síst við um eilíf íbúðakaup Ólafs; mig minnir að fyrstu 100 síð- urnar gerist á ekki löngum tíma, en þó nær hann að flytja að minnsta kosti þrjátíu sinnum, eflaust í von um að kaupa jafnan og selja svo aft- ur með hagnaði, án þess að maður fái á tilfinninguna að það hafi lán- ast til fulls. Þarna eru tragískar senur, eins og um kvennamál höfundarins, annað er drepfyndið eins og frásögn af ferð og dvöl þeirra nokkurra lista- manna í íbúðarhús Guðmundar heitins Böðvarssonar að Kirkjubóli á Hvítársíðu, sem Rithöfundasam- bandið hafði um árabil til umráða fyrir sína félagsmenn. Í þeirri ferð var gripið til þess þegar menn sak- ir ölvunar voru ekki lengur ökuhæf- ir að láta þann minnst fyllsta, Ólaf sjálfan, aka bílnum, og hafði hann þó ekki bílpróf og aldrei fyrr sest undir stýri. Og urðu ferðir þeirra eftir því. Gallalaus er bókin ekki, hún hefði þolað betri yfirlestur og ritstjórn, hún verður sums staðar sundurlaus og langdregin. Og svo gerir höfund- urinn fullmikið af því að segja heldur frá með lýsingarorðum en frásögn; mönnum er oft lýst mjög hlýlega án þess að maður fái nokkra hug- mynd um karakterinn. Má þar nefna að sameiginlegur vinur okkar Ólafs Ormssonar, nafni hans Gunnars- son sem áður er hér getið um, fær að vonum loflega einkunn, sagt eitt- hvað á þá leið að það væri „dauð- ur maður“ sem ekki hefði hrifist af hans sagnalist, en hvergi er til henn- ar vitnað eða dregið upp hvers kyns hún var. En margt er semsé stórmerki- legt. Má þar nefna frásagnir af til- raun höfundarins til að græða með því að vingast við hægri vænginn; lengst af var hann mjög róttækur og vinstrisinnaður og vitnar í ljóð eftir sig þar sem er lína eitthvað á þessa leið: „Það vaxa hvergi rósir, nema í sporum Rauða hersins.“ En hann semsé gerir útgáfusamning við AB um skáldsögu þar sem flett yrði ofan af skuggalegum áformum byltingar- sinnanna í Fylkingunni, og geng- ur þá svo langt að skrá sig einnig í Sjálfstæðisflokkinn og fara að sækja fundi í Valhöll með hinum brodd- borgurunum. Bókin kom svo út und- ir titlinum Boðið upp í dans; þar eru sögupersónur undir dulnefni, sem þó má stundum grilla í gegnum; mig minnir að þar heiti Þorsteinn frá Hamri „skáldið Sigurður Óli frá Hóli“. En höfundurinn sem ætlaði að gleðja hægri vænginn hefur lítið upp úr krafsinu annað en heldur úrillan dóm um bókina í Morgunblaðinu. Semsé: Ein af þessum bókum sem er með öllu óþarft að gleymist og týnist. n Halldór Laxness Halldór á að hafa svarað: „Jú, ég hef heyrt vel af þessu blaði látið; mér skilst það sé gefið út í Þorlákshöfn.“ „Sumir byrjuðu bara fremst í sinni ljóðabók og hættu ekkert fyrr en hún var öll upples- in, og það þótt langt væri liðið á dag og margir enn á mælendaskrá. Bjarni Blöndal Löggiltur fasteignasali bjarni@fastlind.is Sími 662 6163 Ég kann að meta eignina þína

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.