Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Síða 38
Helgarblað 24.–27. mars 201738 Skrýtið Sakamál
L
am Luong, 38 ára atvinnu-
laus víetnamskur flóttamaður,
hafði verið í óvígðri sambúð
með Kieu Phan, 23 ára. Þegar
þessi frásögn hefst, 7. janúar
árið 2008, áttu Lam og Kieu þrjú börn
saman; Hönnuh, tveggja ára, Lindsey,
eins árs, og Danny, fjögurra mánaða.
Að auki átti Lam soninn Ryan, þriggja
ára, frá fyrra sambandi. Þau bjuggu í
Mobile-sýslu í Alabama í Bandaríkj-
unum og Lam hafði unnið við rækju-
veiðar, en þegar þarna var komið
sögu hafði hann mælt göturnar um
nokkurt skeið og virst sáttur við það.
Rauk burt í fússi
Fyrrnefndan dag sló í brýnu með
Lam og Kieu og lauk deilum þeirra
á þann veg að Lam ók að heiman
í fússi. Leið hans lá að brúnni sem
tengir strönd Alabama við Dauphin-
ey í Mexíkóflóa.
En Lam Loung var ekki einn í
bílnum því í aftursætinu voru börnin
fjögur, ráðvillt og vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið. Þegar Lam var kom-
inn á brúna tók hann börnin, hvert á
fætur öðru, og fleygði þeim fram af
25 metra hárri brúnni.
Sakleysið uppmálað
Þegar Lam var handtekinn var hann
sakleysið uppmálað. Hann hélt því
fram fullum fetum að tvær asískar
konur hefðu rænt börnunum. Sú
fullyrðing féll í grýttan jarðveg hjá
laganna vörðum.
Lík þriggja barnanna fundust á
næstu dögum, en fjórða líkið fannst
ekki fyrr en hálfum mánuði síðar.
Lam, sem hafði haldið fast við upp-
haflegu skýringar sínar, játaði að lok-
um á sig ódæðið en dró síðar játn-
ingu sína til baka.
Landeyða
Við réttarhöldin tók Lam ekki til varna
fyrir sjálfan sig en bað Kieu fyrirgefn-
ingar. Kieu bar vitni og sagði að Lam
væri í sambandi við aðra konu og að
hann væri óttaleg landeyða; hann
hefði til að mynda ekki sýnt nokkurn
áhuga á að finna sér nýjan starfa eft-
ir að fjölskyldan flutti aftur til Mobile-
sýslu frá Georgíu, en þangað hafði
fjölskyldan flutt í kjölfar fellibyljarins
Katrina.
Báðu dómarann að sýna miskunn
Verjendur Lam sögðu hann háðan
fíkniefnum og þunglyndan í þokka-
bót og biðluðu til dómarans, Charles
Graddick, að láta lífstíðardóm, án
möguleika á reynslulausn, duga.
En Graddick var ekki á þeim bux-
unum, sagði enda að allt mælti með
þyngri refsingu. Sagði dómarinn að
börnin hlytu að hafa verið „skelfingu
lostin“ þegar þau féllu 25 metra niður í
kaldan sjóinn og þau hefðu verið á lífi
þegar þau skullu á vatnsyfirborðinu.
Viðbótarrefsing
Í mars 2009 kvað kviðdómur upp sinn
úrskurð og mælti með dauðarefsingu
og 30. apríl sama ár var Lam Luong
dæmdur til dauða og skyldi dómnum,
þegar þar að kæmi, fullnægt með ban-
vænni sprautu.
En Charles Graddick dómari bætti
um betur og gaf fangavörðum þau fyr-
irmæli að þeir skyldu sýna Lam ljós-
myndir af börnunum sem hann hafði
myrt. Þetta skyldi gert daglega til
skapadægurs Lam.
Snúningur í lokin
En ekki var málinu þó lokið því í febr-
úar 2013 komst áfrýjunardómstóll að
þeirri niðurstöðu að Lam Luong hefði
ekki fengið sanngjarna málsmeðferð
og ógilti hvort tveggja sakfellinguna og
dauðadóminn.
Var það mat áfrýjunardómstóls-
ins að öll athyglin og umfjöllunin um
morðin í Mobile-sýslu á sínum tíma
hefði haft áhrif á réttarhöldin og allt
sem þeim tengdist.
Það kom til kasta Hæstarétt-
ar Alabama að fá botn í málið og sá
botn fékkst um miðjan mars árið 2014.
Niðurstaða hæstaréttar var að ekkert
hefði verið ámælisvert í réttarhöldun-
um yfir Lam og að upphaflegur dóm-
ur skyldi standa. n
Myrti börn sín fjögur
n Rifrildi Lam og Kieu hafði alvarlegar afleiðingar n Börnin féllu 25 metra
Brúin Vett-
vangur ódæðis
Lam Luong.
„Sagði dómarinn
að börnin hlytu
að hafa verið „skelfingu
lostin“ þegar þau féllu 25
metra niður í kaldan sjóinn.
Lam Luong Full-
yrti að börnunum
hefði verið rænt.