Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Síða 40
Helgarblað 24.–27. mars 201740 Heilsa
Á að lögleiða fíkniefni?
n Umræðan á köflum trúarbragðakennd n Neysla kannabis hefur áhrif á heilann
T
alsverð umræða hefur verið
að undanförnu um fíkniefni,
refsirammann og svo það
hvort við eigum hreinlega að
lögleiða ákveðnar tegundir
fíkniefna. Þegar maður skoðar hvað
er að gerast í kringum okkur verð-
ur ljóst að það er afar mismunandi
hvernig þjóðríki taka á málum, sér-
staklega varðandi hin svokölluðu
mjúku efni. Við getum verið sam-
mála um það að stríðið gegn fíkni-
efnum hefur ekki gengið sérlega vel
almennt, þrátt fyrir tiltölulega stífan
refsiramma virðist það ekki hafa sér-
stakan fælingarmátt.
Aukning í notkun lyfseðilsskyldra
lyfja í þeim tilgangi að komast í vímu
hefur einnig verið vaxandi víðast
hvar um heiminn má segja og í dag
eru sprautufíklar mun frekar í slíkri
neyslu hérlendis heldur en hinum
hefðbundnu hörðu efnum, þó þau
séu vissulega enn talsvert í umferð.
Margir sammála ráðherra
Um þetta málefni má segja að um-
ræðan verður á tíðum trúarbragða-
kennd, bæði hjá þeim sem eru með
og á móti. Við höfum heyrt ráð-
herra heilbrigðismála tjá sig um
það að afnám refsingar vegna fíkni-
efnaneyslu kunni að vera fýsilegur
kostur. Margir eru honum sammála
þar, sérstaklega þeir sem neyta efn-
anna, en fjölmargir aðrir til viðbótar.
Staðan er flókin og fléttast saman
ekki einungis hin hörmulega að-
staða fíkilsins, heldur einnig hin
tækifærissinnaða nálgun á líf, lík-
ama og frelsi hans af hálfu þess sem
selur efnin í þeim tilgangi að græða
peninga. Þá er ofbeldi beinn fylgi-
fiskur ólöglegs athæfis sem þessa og
hafa sumir sagt að lögleiðing vímu-
efna myndi kippa stoðunum undan
skipulagðri glæpastarfsemi.
Umræðuna þarf að aðskilja
Ekki er ég svo viss um það. Ég er
svosem enginn sérfræðingur um
þennan heim, það sem hins vegar
kemur fram er að það hefur afger-
andi áhrif á heilsufar viðkomandi
einstaklings að lenda í neyslu, hver
sem hún er. Já, líka neyslu á kanna-
bisefnum! Það hefur ekkert með
það að gera hvort við lögleiðum
eða breytum refsiramma varðandi
neyslu ákveðinna efna. Þó svo það
sé löglegt að drekka áfengi er ekkert
samasemmerki á milli þess og holl-
ustu, reyndar síður en svo í mjög
mörgum tilvikum eins og við öll
þekkjum. Það verður því að aðskilja
umræðuna varðandi fíknisjúkdóm
annars vegar og refsingu hins vegar.
Nýlega hafa nokkur ríki í Banda-
ríkjunum opnað fyrir sölu á kanna-
bisefnum, slíkt hefur verið leyft í
Hollandi um árabil. Áhugavert verð-
ur að sjá hvernig það þróast annars
staðar. Sú staðhæfing að það sé
meinlaust að reykja hass og skyld
efni stenst enga skoðun, það er hins
vegar algerlega ótengt því hvort eigi
að refsa fólki fyrir það eða ekki.
Auknar líkur á geðrofi eða
-klofa
Við skulum skoða áhrif kannabis-
reykinga á heilsufar. Það virðist ljóst
að við getum ekki tekið undir það að
slíkt sé meinlaust, öruggt er að það
er háð magni og tíðni reykinganna.
Skammtímaáhrifin eru, fyrir utan
vímuna, minnisskerðing, aukin
matarlyst, hjartsláttur, munnþurrk-
ur, sljóleiki og truflun á samhæfingu
hreyfinga. Venjulega er tóbak not-
að sem burðarefni og því andar fólk
að sér öllum þeim skaðlegu efnum
sem fyrirfinnast í sígarettum líka,
sem eru þekktir áhættuþættir fyrir
myndun krabbameina í lungum og
víðar.
Rannsóknir hafa sýnt að ítrek-
uð neysla á kannabis virðist hafa
áhrif á starfsemi heilans, blóð-
flæði minnkar til stöðva sem sjá um
minni og athygli, breyting verður á
stærð thalamus sem sér um meðvit-
undarstig og úrvinnslu upplýsinga.
Þeir sem reykja mikið standa sig
verr í prófunum sem tengjast minni
og úrvinnslu þar af leiðandi og virka
efnið safnast upp í líkamanum að
talið er svo áhrifin eru til lengri tíma.
Þetta ástand er verra eftir því sem
einstaklingurinn er yngri og heilinn
óþroskaðri. Líkurnar á að þróa með
sér geðklofa eða geðrof eru auknar.
Þá er talið að andleg líðan versni,
kvíði og depurð aukist og þannig má
lengi telja.
Samanburðurinn við önnur
fíkniefni er erfiður og heimurinn
er ekki alveg svarthvítur hvað þetta
snertir. Forvarnir og fræðsla eru og
verða þau tól sem munu sýna hvað
mestan árangur í þeirri viðleitni að
viðhalda góðri líkamlegri og and-
legri heilsu. Það á að ekki síður við
um fíkn en aðra sjúkdóma, hvað
sem löggjöfina snertir. n
„Sú staðhæfing að
það sé meinlaust
að reykja hass og skyld
efni stenst enga skoðun
Kannabis-
ræktun Nýlega
hafa nokkur ríki
í Bandaríkjunum
opnað fyrir sölu á
kannabisefnum.
Mynd 123rf.coM
Hættulaust? „Skamm-
tímaáhrifin eru, fyrir utan
vímuna, minnisskerðing,
aukin matarlyst, hjartsláttur,
munnþurrkur, sljóleiki og
truflun á samhæfingu hreyf-
inga.“ Mynd 123rf.coM
Teitur Guðmundsson
læknir