Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Blaðsíða 40
Helgarblað 24.–27. mars 201740 Heilsa Á að lögleiða fíkniefni? n Umræðan á köflum trúarbragðakennd n Neysla kannabis hefur áhrif á heilann T alsverð umræða hefur verið að undanförnu um fíkniefni, refsirammann og svo það hvort við eigum hreinlega að lögleiða ákveðnar tegundir fíkniefna. Þegar maður skoðar hvað er að gerast í kringum okkur verð- ur ljóst að það er afar mismunandi hvernig þjóðríki taka á málum, sér- staklega varðandi hin svokölluðu mjúku efni. Við getum verið sam- mála um það að stríðið gegn fíkni- efnum hefur ekki gengið sérlega vel almennt, þrátt fyrir tiltölulega stífan refsiramma virðist það ekki hafa sér- stakan fælingarmátt. Aukning í notkun lyfseðilsskyldra lyfja í þeim tilgangi að komast í vímu hefur einnig verið vaxandi víðast hvar um heiminn má segja og í dag eru sprautufíklar mun frekar í slíkri neyslu hérlendis heldur en hinum hefðbundnu hörðu efnum, þó þau séu vissulega enn talsvert í umferð. Margir sammála ráðherra Um þetta málefni má segja að um- ræðan verður á tíðum trúarbragða- kennd, bæði hjá þeim sem eru með og á móti. Við höfum heyrt ráð- herra heilbrigðismála tjá sig um það að afnám refsingar vegna fíkni- efnaneyslu kunni að vera fýsilegur kostur. Margir eru honum sammála þar, sérstaklega þeir sem neyta efn- anna, en fjölmargir aðrir til viðbótar. Staðan er flókin og fléttast saman ekki einungis hin hörmulega að- staða fíkilsins, heldur einnig hin tækifærissinnaða nálgun á líf, lík- ama og frelsi hans af hálfu þess sem selur efnin í þeim tilgangi að græða peninga. Þá er ofbeldi beinn fylgi- fiskur ólöglegs athæfis sem þessa og hafa sumir sagt að lögleiðing vímu- efna myndi kippa stoðunum undan skipulagðri glæpastarfsemi. Umræðuna þarf að aðskilja Ekki er ég svo viss um það. Ég er svosem enginn sérfræðingur um þennan heim, það sem hins vegar kemur fram er að það hefur afger- andi áhrif á heilsufar viðkomandi einstaklings að lenda í neyslu, hver sem hún er. Já, líka neyslu á kanna- bisefnum! Það hefur ekkert með það að gera hvort við lögleiðum eða breytum refsiramma varðandi neyslu ákveðinna efna. Þó svo það sé löglegt að drekka áfengi er ekkert samasemmerki á milli þess og holl- ustu, reyndar síður en svo í mjög mörgum tilvikum eins og við öll þekkjum. Það verður því að aðskilja umræðuna varðandi fíknisjúkdóm annars vegar og refsingu hins vegar. Nýlega hafa nokkur ríki í Banda- ríkjunum opnað fyrir sölu á kanna- bisefnum, slíkt hefur verið leyft í Hollandi um árabil. Áhugavert verð- ur að sjá hvernig það þróast annars staðar. Sú staðhæfing að það sé meinlaust að reykja hass og skyld efni stenst enga skoðun, það er hins vegar algerlega ótengt því hvort eigi að refsa fólki fyrir það eða ekki. Auknar líkur á geðrofi eða -klofa Við skulum skoða áhrif kannabis- reykinga á heilsufar. Það virðist ljóst að við getum ekki tekið undir það að slíkt sé meinlaust, öruggt er að það er háð magni og tíðni reykinganna. Skammtímaáhrifin eru, fyrir utan vímuna, minnisskerðing, aukin matarlyst, hjartsláttur, munnþurrk- ur, sljóleiki og truflun á samhæfingu hreyfinga. Venjulega er tóbak not- að sem burðarefni og því andar fólk að sér öllum þeim skaðlegu efnum sem fyrirfinnast í sígarettum líka, sem eru þekktir áhættuþættir fyrir myndun krabbameina í lungum og víðar. Rannsóknir hafa sýnt að ítrek- uð neysla á kannabis virðist hafa áhrif á starfsemi heilans, blóð- flæði minnkar til stöðva sem sjá um minni og athygli, breyting verður á stærð thalamus sem sér um meðvit- undarstig og úrvinnslu upplýsinga. Þeir sem reykja mikið standa sig verr í prófunum sem tengjast minni og úrvinnslu þar af leiðandi og virka efnið safnast upp í líkamanum að talið er svo áhrifin eru til lengri tíma. Þetta ástand er verra eftir því sem einstaklingurinn er yngri og heilinn óþroskaðri. Líkurnar á að þróa með sér geðklofa eða geðrof eru auknar. Þá er talið að andleg líðan versni, kvíði og depurð aukist og þannig má lengi telja. Samanburðurinn við önnur fíkniefni er erfiður og heimurinn er ekki alveg svarthvítur hvað þetta snertir. Forvarnir og fræðsla eru og verða þau tól sem munu sýna hvað mestan árangur í þeirri viðleitni að viðhalda góðri líkamlegri og and- legri heilsu. Það á að ekki síður við um fíkn en aðra sjúkdóma, hvað sem löggjöfina snertir. n „Sú staðhæfing að það sé meinlaust að reykja hass og skyld efni stenst enga skoðun Kannabis- ræktun Nýlega hafa nokkur ríki í Bandaríkjunum opnað fyrir sölu á kannabisefnum. Mynd 123rf.coM Hættulaust? „Skamm- tímaáhrifin eru, fyrir utan vímuna, minnisskerðing, aukin matarlyst, hjartsláttur, munnþurrkur, sljóleiki og truflun á samhæfingu hreyf- inga.“ Mynd 123rf.coM Teitur Guðmundsson læknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.