Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 42
Helgarblað 24.–27. mars 201742 Menning M ottóið sem við höfum haft að leiðarljósi allan tímann er að þetta verð- ur að skítlúkka,“ seg- ir Loji Höskuldsson tón- og myndlistarmaður og Tanja Huld Leví Guðmundsdóttir fatahönnuður tekur undir. Á Hönnunarmars um helgina munu þau frumsýna nýja línu landsliðsbúninga íþrótta og lista, sem þau hafa hannað og nefna „Upp með sokkana!“ Þau vonast til að búningarnir, sem eru innblásn- ir af séríslenskum hversdagsleika: brauðtertum, stormviðvörunum og kaotískum gólfflötum íslenskra íþróttahúsa, muni nýtast jafnt af- reksfólki sem áhugamönnum í bæði list- og íþróttaheiminum. Tilbúin þegar ÍSÍ hefur samband „Þetta er tillaga að nýjum landsliðs- búningi fyrir íþróttir og listir, sam- einingartákn fyrir þessar greinar,“ segir Tanja Huld en þau Loji eiga það sameiginlegt að starfa á sviði listarinnar en vera mikið áhugafólk um íþróttir – Loji spilaði fótbolta með Fram upp alla yngri flokkana en Tanja handbolta með Gróttu. Þau segja að þessum tveimur sviðum hafi of oft verið stillt upp sem and- stæðum sem fólk þurfi að velja á milli en með nýju búningunum vilja þau sameina listamenn og íþrótta- fólk. Þau benda á að þessar grein- ar séu í raun ekki svo frábrugðnar: íþróttir snúist um leikni, fimi, snilld eða list, á sama tíma og listin sé ein- faldlega sú íþrótt að búa til eitthvað fagurt eða eftirtektarvert. „Ég myndi vilja sjá Egil Sæ- björnsson mæta í þessum bún- ingi á Feneyjatvíæringinn, sjá svo kvennalandsliðið í fótbolta og alla stuðningsmennina þeirra mæta í honum á EM í sumar. Svo gæti Svala mætt í honum á Eurovision-keppn- ina,“ segir Tanja og hlær. „En músan okkar var Óli Stef. Hann er bæði íþróttamaður og mjög skapandi, það má því segja að hann sameini þetta tvennt. Ef hann er til í að mæta á opn- unina þá verður hann heiðursgestur.“ Hvaða fagurfræði eruð þið að vinna með í búningunum? „Við erum að vinna með myndefni sem er íslenskt án þess að vera með einhverja þjóðrembu. Þetta er ekki íslenski fáninn, lundinn eða þessi týpísku tákn,“ svarar Tanja. „Við sækjum frekar innblástur í ís- lenskan hversdagsleika og sjáum fegurðina í honum. Þetta eru þeir hlutir sem sameina okkur án þess að við tökum eftir því, til dæmis brauðtertur og stormurinn Diddú...“ „... og línurnar á parketum í íþróttahúsum,“ skýtur Loji inn í. „Það eru alltaf alveg sjötíu línur á gólfinu út um allt svo það sé hægt að samnýta salinn og spila allar íþróttir. Þetta er mjög íslenskt.“ „Já, og svo hefur Loji verið að nálaþæfa með íslenskum lopa,“ bæt- ir Tanja við. Það hljómar svolítið eins og út- litið skipti meira máli en þægindin. Munu íþróttamenn alveg vilja nota búningana? „Jájájá, þetta er lífræn bómull, mjög þægilegt!“ svarar Tanja. „Síðan erum við að nota endur- unnið pólýester, þannig að við erum líka að velja umhverfisvænni kost- inn. Við erum sem sagt að sameina fagurfræði og praktík. Við verðum með tvö sett til sýnis á föstudaginn, annars vegar buxur, hettupeysu og jakka, og svo hins vegar stuttbux- ur og stuttermabol. Svo verðum við líka með sundskýlur og handklæði. Seinna meir erum við alveg opin fyr- ir því að taka þetta lengra og gera sérhæfða búninga fyrir hverja íþrótt. Við verðum tilbúin þegar ÍSÍ hefur samband,“ segir hún og Loji bæt- ir við: „Núna erum við að einbeita okkur að þessum sýningarhlutum sem verða allir gerðir í höndun- um og sérstaklega vandað til verks. Draumurinn væri svo að fá að klæða íslensku íþróttamennina sem ganga inn á hlaupabrautina við opnunar- athöfn næstu Ólympíuleika í heil- galla frá okkur Tönju.“ Vindsegl og strigapokar En hvað er það við íþróttabúninga sem er svona spennandi? „Mér finnst íþróttabúningar svo- lítið magnað fyrirbæri,“ segir Loji. „Liðið er sameinað með einhverj- um ákveðnum lit. Það er alltaf ein- hver áhugaverð saga á bakvið litinn og búninginn. Á hverju ári breyt- ist svo eitthvað örlítið í búningnum og smám saman þróast þeir. Í dag er krafa um að þeir séu þröngir og þægi- legir en á tíunda áratugnum voru þeir eiginlega eins og vindsegl. Ég á til dæmis gamlan Aston Villa-búning sem mamma keypti á mig níutíu og eitthvað. Ég var bara tíu ára þegar ég fékk hann, en enn þann dag í dag er hann of stór á mig. Það er eiginlega fáránlegt,“ segir Loji og hlær. „Það er líka áhugavert hvernig búningurinn fór úr því á einhverj- um tímapunkti að vera bara eitthvað sem aðskildi tvö lið á vellinum og þróuðust í það að vera sameiningar- tákn fyrir alla sem tengjast liðinu. Fyrst þegar byrjað var að hanna svona fótbolta-„kitt“ var þetta bara hugsað fyrir krakka, en í dag er það aðallega fullorðið fólk sem kaupir búningana til að geta stutt liðið sitt,“ segir Tanja. Ég hugsa að íþróttabúningar séu kannski fyrstu hönnunarvörurn- ar sem kveiki virkilegan áhuga hjá sumum krökkum, ég man sjálfur eftir því að hafa haft mikinn áhuga á fót- boltabúningum, teiknað hina ýmsu búninga og búið til mína eigin. „Já, fólk hugsar kannski ekki oft um það en hönnun er alls staðar í kringum okkur, það er ekki bara Dolce & Gabbana og einhver svo- leiðis merki. Ég held í raun að flest- ir hafi áhuga á hönnun á einhverju sviði þótt þeir fylgist ekki með tísku- vikunni í París.“ Þetta er fyrsta hönnunarverk- efnið þitt, Loji, en hefur þú lengi haft áhuga á hönnun? „Já, þetta er alveg nýtt fyrir mér en ég man hvað mér þótti hönnun geðveikt spennandi þegar ég var yngri. Ég man til dæmis eftir að hafa gert flík í hannyrðum í barnaskóla, ég sett eitthvert logo á strigapoka og gerði bol úr honum. Það var reynd- ar einn óþægilegasti bolur sem ég hef prófað, striginn stakk svo mik- ið, en það hefur alltaf blundað í mér sú hugmynd að gera meira af þessu. Þess vegna var mjög skemmtilegt að Tanja stakk upp á þessu samstarfi.“ „Loji er mjög góður hönnuður, hann skynjar alveg hvað skítlúkkar og hvað ekki,“ bætir Tanja við. n Landsliðsbúningarnir verða frumsýndir í anddyri Vesturbæjar- laugar á föstudag klukkan 17.00 en þar verður einnig boðið upp á heimabakaða brauðtertu frá mömmu Loja. Landsliðsbúningar sem „skítlúkka“ Tanja Huld og Loji hanna landsliðsbúninga fyrir íþrótta- og listafólk Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Þetta eru þeir hlutir sem sam- eina okkur án þess að við tökum eftir því, til dæmis brauðtertur og stormur- inn Diddú ... Loji og Tanja hafa unnið landsliðsbúninga fyrir íslenskt íþrótta- og listafólk. MYND SIGTRYGGUR ARI Metsölulisti Eymundsson 16.– 22. mars 2017 Allar bækur 1 LögganJo Nesbø 2 Stúlkurnar á Englandsferjunni Lone Theils 3 Konan sem hvarf Anna Ekberg 4 Andartak eilífðar Paul Kalanithi 5 Handan fyrirgefningarÞórdís Elva Þorvaldsdótir / Tom Stranger 6 Dalalíf 4 - Logn að kvöldi Guðrún frá Lundi 7 Örvænting B.A. Paris 8 Binna B Bjarna Stóra systir Sally Rippin 9 Planet Iceland - minni Sigurgeir Sigurjónsson 10 Eftir að þú fórstJojo Moyes Handbækur / Fræði- bækur / Ævisögur 1 Andartak eilífðarPaul Kalanithi 2 Handan fyrirgefningar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir/ Tom Stranger 3 Svefn Dr.Erla Björnsdóttir 4 Leitin að svarta víkingnum - kilja Bergsveinn Birgisson 5 Hrakningar á heiðavegum kilja Pálmi Hannesson/Jón Eyþórsson 6 Norður yfir VatnajökulWilliam Lord Watts 7 Siggi og Sigrún hugleiða Hrafnhildur Sigurðardóttir/ Unnur Arna Jónsdóttir 8 Sálmabók Ýmsir höfundar 9 Ráð handa kvíðnum krökkum Ronald M. Rapee 10 Ráð handa kvíðnum krökkum - vinnubók Ronald M. Rapee

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.