Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Side 49
Helgarblað 24.–27. mars 2017 Menning Sjónvarp 49
Mánudagur 27. mars
RÚV Stöð 2
16.45 Silfrið (8:35)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Barnaefni
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.30 Veður
19.35 Kastljós
20.05 Jörðin (1:6) (Planet
Earth II) Önnur
þáttaröð af þessum
geysivinsæla breska
heimildarmynda-
flokki með Sir David
Attenborough þar
sem brugðið er upp
svipmyndum af
Jörðinni, náttúru
hennar og dýrarlífi
í áður óséðum
gæðum. Áhorf-
endur eru teknir
með í stórkostlegt
ferðalag um Jörðina
á öllum árstíðum
og þeim eru sýnd
undur hennar í allri
sinni dýrð, meðal
annars hrikaleg fjöll
og gljúfur, hellar og
eyðimerkur og hugað
að erfiðri lífsbaráttu
sjaldséðra dýra sem
oft á tíðum verða að
bjarga sér við afar
óblíðar aðstæður.
21.10 Nóbel (7:8)
Spennuþáttaröð um
norskan hermann
sem kemur aftur
heim eftir stríðið í
Afganistan. Nýja
fjölskyldulífið reynist
honum flókið og upp
kemur spurningin
hversu langt á að
ganga í nafni friðar.
22.00 Tíufréttir
22.15 Veðurfréttir
22.20 Músíktilraunir
2016
23.25 Scott og Bailey
00.10 Kastljós
00.35 Dagskrárlok
07:00 The Simpsons
07:20 Tommi og Jenni
07:45 2 Broke Girls (5:24)
08:10 The Middle (5:24)
08:35 Ellen
09:15 Bold and the
Beautiful
09:35 Doctors (46:175)
10:20 Who Do You Think
You Are? (7:10)
11:20 Sullivan & Son
11:45 Mayday (10:10)
12:35 Nágrannar
13:00 American Idol
16:35 Bold and the
Beautiful
17:20 Nágrannar
17:45 Ellen
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Íþróttir
19:05 Fréttir Stöðvar 2
19:20 Brother vs.
Brother (2:6)
20:05 Um land allt (8:10)
20:35 NCIS (19:24)
21:20 The Path (2:13)
Önnur þáttaröð
þessara dramatísku
þáttaraðar með
Aaron Paul (Break-
ing Bad) í hlutverki
Eddie Lane sem
hrífst með kenning-
um sértrúarsöfnuðar
eftir heimsókn á
miðstöð þeirra,
skömmu síðar snýst
veröld hans á hvolf
og hann stendur
frammi fyrir erfiðum
ákvörðunum.
22:10 Vice (5:29)
22:45 Girls (2:10)
23:15 Bones (20:22)
00:00 Mistresses
02:10 Mad Dogs (4:0)
03:05 100 Code (3:12)
03:50 Murder In The
First (6:10)
04:35 The Player
06:00 Síminn + Spotify
08:00 America's
Funniest Home
Videos (1:44)
08:25 Dr. Phil
09:05 90210 (21:24)
09:50 Melrose Place
(8:18)
10:35 Síminn + Spotify
13:35 Dr. Phil
14:15 Rachel Allen: All
Things Sweet
(12:12)
14:40 Chasing Life (8:13)
15:25 Black-ish (11:24)
15:50 Jane the Virgin
(13:20)
16:35 The Tonight Show
starring Jimmy
Fallon
17:15 The Late Late
Show with James
Corden
17:55 Dr. Phil
18:35 King of Queens
(3:25)
19:00 Arrested
Development
(21:22) Bráðfyndin
gamanþáttaröð um
hina stórfurðulegu
Bluth-fjölskyldu.
19:25 How I Met Your
Mother (10:24)
19:50 Superstore (3:22)
20:15 Top Chef (6:17)
21:00 Hawaii Five-0
(18:25)
21:45 24: Legacy (8:12)
22:30 The Tonight Show
starring Jimmy
Fallon
23:10 The Late Late
Show with James
Corden
23:50 Californication
(5:12)
00:20 CSI (6:23)
01:05 Scorpion (10:24)
01:50 Madam Secretary
(14:23)
02:35 Hawaii Five-0
(18:25)
03:20 24: Legacy (8:12)
Sjónvarp Símans
L
eikkonan Gillian Anderson
sendi nýlega frá sér sjálfs-
hjálparbókina We: A Manife-
sto for Women Everywhere.
Í viðtölum í tengslum við
bókina hefur leikkonan rætt um
þunglyndi sitt. Hún segir að þegar
henni hafi liðið sem verst hafi hún
ekki viljað fara úr húsi. Hún seg-
ist vonast til að bókin, sem hún
skrifaði með blaðakonunni Jenni-
fer Nadel, gagnist þeim sem glími
við lágt sjálfsmat, eins og hún hafi
sjálf gert. Hún segist segja frá og
fjalla um eigin erfiðleika því hún
telji mikilvægt að konur deili sam-
eiginlegri reynslu sinni. Leikkonan
segist glíma við minnisleysi, hún
hreinlega gleymi hlutum en eigi þó
í engum erfiðleikum með að muna
texta sinn þegar hún er að leika.
Nýjasta kvikmynd hennar er
Viceroy's House. Þar leikur hún
lafði Edwinu Mountbatten og Hugh
Bonneville leikur eiginmann henn-
ar, Louis Mountbatten. Myndin
gerist árið 1947 á Indlandi þar sem
Mountbatten var landstjóri. Ed-
wina lést í svefni árið 1960, 58 ára
gömul, og eiginmaður hennar var
myrtur af liðsmönnum írska lýð-
veldishersins árið 1979. n
kolbrun@dv.is
Gillian skrifar
sjálfshjálparbók
Gillian Anderson
Hefur glímt við þunglyndi
og lágt sjálfsmat.
Magnaður lokaþáttur
Kvíði og ótti sótti á mann við áhorf á Horfin
L
okaþátturinn af Horfin var
magnaður. Ég sat í sófanum
full af kvíða og óttaðist að allt
væri illa. Ekki fór þó þannig.
Það má segja að þátturinn hafi
endað jafnvel betur en búast mátti
við. Allavega var mér mjög létt. Ein
aðalpersónan dó reyndar, fremur
þreytandi manngerð að mínu áliti,
þannig að ég syrgði hana ekkert sér-
staklega. Ekki er svo fullkomlega ljóst
um örlög dauðvona lögreglumanns-
ins, Julien Baptiste. Undir lok þátt-
ar sagði læknir að hann væri gerð-
ur úr sterkara efni en flestir. Þau orð
vöktu hjá mér von um að gerð yrði ný
þáttaröð af Horfin með Baptiste í að-
alhlutverki og yrði þá sú þriðja í röð-
inni. Ég spái því að Baptiste deyi í lok
hennar, verði hún gerð. Það er mjög
af honum dregið.
Mikið voru þessi þættir annars
vel gerðir! Leikararnir stóðu sig all-
ir frábærlega og hlutverkin buðu
sannarlega upp á tilþrifamikla túlk-
un. Þarna var franski lögreglumað-
urinn með andlit sem sagði manni
að hann hefði átt tíðindamikið líf.
Þarna voru niðurbrotnir foreldr-
ar sem misstu gjörsamlega fótanna,
ekki eftir að dóttir þeirra hvarf held-
ur eftir að hún virtist hafa komið í
leitirnar. Við sáum siðblindan barn-
aníðing sem sveifst einskis og drap
til að hylja slóð sína. Og svo voru það
brottnumdu stúlkurnar tvær. Önnur
var stúlka sem varð svo háð ræningja
sínum að hún gat ekki hugsað sér
að hverfa aftur til fyrra lífs. Hin var
stúlkan sem við sáum í lok þáttar-
aðarinnar og var sterk allan tímann.
Leikkonan sem lék hana fékk ekki
margar mínútur en skapaði eftir-
minnilega persónu sem manni þótti
samstundis vænt um og bar virðingu
fyrir. Svo var þriðja stúlkan sem við
kynntumst ekki, en var sagt frá. Hún
tókst á við ræningja sinn og var myrt.
Einnig hún varð manni minnisstæð
þótt hún sæist aldrei.
Það var ekki erfitt að lifa sig inn
í þessa þætti, maður sogaðist inn í
þá og var kvíðinn og hræddur með-
an á áhorfi stóð. Ansi mögnuð upp-
lifun. n
„Það má
segja að
þátturinn hafi
endað jafnvel
betur en búast
mátti við.
Horfin Lokaþátturinn
bauð upp á mikla spennu
og sorg í bland við gleði.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið