Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 52
Helgarblað 24.–27. mars 2017
23. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hélt hann
þræði?
Vatnagörðum 24-26 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is
Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 • Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535
Honda HR-V
kostar frá kr. 3.840.000
MEÐ SJÁLFSKIPTINGU
Öruggur, fullkomið skipulag, nákvæmur frágangur
og betri í alla staði. Honda HR-V er ekki bara fimm
stjörnu bíll hvað varðar öryggi, í HR-V á hver hlutur
sinn stað og hlutverk. Við hönnuðum nýjan Honda
HR-V með þetta að leiðarljósi. Útkoman er fallegur
borgarjeppi, með frábæra eiginleika innan sem utan.
Nýr Honda HR-V, fullkominn fyrir þig.
ALLT Á SÍNUM
FULLKOMNA STAÐ
Opið laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00
Sótti pott til
London
n Nanna Rögnvaldardóttir er
landsþekktur matgæðingur. Slík-
ir þurfa vitanlega að eiga góð
áhöld, tæki og tól, sem þörf er á
við matseldina. Flestir láta sér
líklega nægja að arka í húsbún-
aðarverslanir í næsta nágrenni
sé þörf á að kaupa slíkt. Nanna
hins vegar lætur ekki haf og
lönd stöðva sig. Á dögunum átti
Nanna stórafmæli, en hún varð
sextug 20. mars síðastliðinn.
Hún ákvað að gefa sjálfri sér
glæsilega pottjárnspotta í ýms-
um litum. Þrjá fékk hún senda
frá Bandaríkjunum en þann
fjórða gerði hún sér ferð út til
London og sótti.
Sá er líka
einkar glæsi-
legur og vel
ferðarinnar
virði.
Brynjar
syrgir Sven
n Brynjar Níelsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, syrgir
nú lát sænska dægurlagasöngv-
arans Svens-Ingvars, en hann
lést síðastliðinn miðvikudag, 74
ára að aldri. Brynjar lýsir því á
Facebook-síðu sinni að aðdáun
hans á söngvaranum hafi ekki
verið vandkvæðalaus. Þannig
hafi eiginkona hans, Arnfríður
Einarsdóttir, megnustu andúð
á tónlistinni og hann hafi þurft
að fela geisladiskana fyrir henni.
Þá neiti Arnfríður að
dansa við Brynjar
undir tónlistinni,
ekki einu sinni við
hið fræga lag Jag
ringer på fredag
þar sem sungið er:
„Segðu ekki nei,
segðu kannski,
kannski,
kannski.“ Arn-
fríður segi
bara þvert
nei.
Margþræddur Illugi
n Samfélagsrýnirinn beinskeytti
og blaðamaðurinn Illugi Jökul-
sson fór á miðvikudag í sína átt-
undu hjartaþræðingu á tíu árum.
Greindi hann frá aðgerðinni á
Facebook-síðu sinni og gaf glett-
inn í skyn að þarna væri nánast
um árlega ferð hans á Landspítal-
ann að ræða þar sem hjartalækn-
ir smeygi „snuðrandi vélum inn
í hjartað á mér. Sem betur fer er
það stórt - hahaha!“ skrifaði Illugi.
Blessunarlega gekk allt sem
skyldi og kvaðst Illugi þakklátur
fyrir allar þær hlýju kveðjur sem
honum bárust. Birti hann síðar
mynd með orðunum:
„Þetta virkar
kannski eins og
frekar illyrmisleg
kónguló, en þetta eru
kransæðarnar í sjálf-
um mér, marg-
þræddar
fram og til
baka!“
R
étt tæplega átta árum eftir að
kaupsýslumaðurinn Magn-
ús Þorsteinsson var úrskurð-
aður gjaldþrota með úrskurði
Héraðsdóms Norðurlands eystra
þann 4. maí 2009 hefur loks verið
greint frá skiptalokum á búinu í Lög-
birtingablaðinu. Kröfur í þrotabú
Magnúsar, sem var viðskiptafélagi
Björgólfsfeðga í Rússlandi og hluti
af Samson-hópnum sem keypti kjöl-
festuhlut í Landsbankanum á sínum
tíma, námu 24,5 milljörðum króna.
DV hefur fjallað um hin langdregnu
gjaldþrotaskipti en Magnús hefur áður
í samtali við DV gagnrýnt harðlega
hversu langan tíma skiptin hafa tekið
og líkt þeim við skuldafangelsi.
Skiptastjórinn, Ingvar Þóroddsson,
hefur borið því við að skiptin hafi ekki
tekið óeðlilega langan tíma í ljósi þess
að um sé að ræða eitt stærsta persónu-
lega gjaldþrot Íslandssögunnar, umfang
málsins hafi verið mikið, flækjustig hátt
og það teygt anga sína víða erlendis.
DV greindi frá því að skiptafund-
ur hafi verið boðaður þann 20. mars
síðastliðinn þar sem skiptastjórinn
kynnti kröfuhöfum frumvarp til út-
hlutunar. Andmælum við því var
greinilega ekki hreyft því tilkynnt var
um skiptalokin þann dag.
Í Lögbirtingablaðinu segir að veð-
kröfur hafi samtals verið rúmir 4,5
milljarðar en að ekkert hafi fengist
greitt upp í þær sérstaklega, sam-
þykktar almennar kröfur hafi síð-
an numið rétt tæplega 20 milljörð-
um króna og að upp í samþykktar
veðkröfur og almennar kröfur hafi
greiðst 0,103279%.
Ljóst er því að afraksturinn er
einkar rýr miðað við rétt tæplega
átta ára vinnu við endurheimtur fyr-
ir kröfuhafa.
Líkt og DV hefur áður fjallað um
þá bætast nú alltaf tvö ár hið minnsta
við skuldafangelsið svokallaða eft-
ir skiptalok. Ástæðan er sú að skuldir
sem ekki fást greiddar við gjaldþrota-
skipti falla ekki niður fyrr en að liðnum
tveimur árum frá skiptalokum. Með
það í huga er ljóst að Magnús mun
hafa verið í títtnefndu skuldafangelsi í
hartnær áratug þegar yfir lýkur. n
mikael@dv.is
Átta ára gjaldþrotaskiptum loks lokið
Tilkynnt hefur verið um skiptalok í þrotamáli Magnúsar Þorsteinssonar