Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Blaðsíða 16
16 Helgarblað 21.–24. apríl 2017fréttir Tíu besTu veiTinga- sTaðir reykjavíkur n notendur Tripadvisor dæma n skiptir miklu máli fyrir veitingastaðina v eitingastaðurinn Restó trónir á toppi lista Trip­ advisor yfir bestu veitinga­ staði Reykjavíkur. DV hef­ ur árlega fjallað um listann sem er síbreytilegur. Til marks um það miðast úttekt blaðamanns við stöð­ una föstudaginn 7. apríl en í vikunni þar á undan hafði annar veitingastað­ ur, Matarkjallarinn, trónað á toppn­ um. Samkeppnin er því hörð. Í fyrra var niðurstaðan sú að veitingastaðurinn Friðrik V var í 1. sæti listans. Staðurinn var í eigu hjónanna Friðriks Vals Karlssonar og Arnrúnar Magnúsdóttur en þau ákváðu að loka staðnum þann 1. júní í fyrra. Ástæð­ an var erfið veikindi Arnrúnar en Frið­ rik lýsti því yfir í viðtali við DV að hann vildi ekki halda áfram án hennar. Það skiptir miklu máli fyrir veitingastaði að vera ofarlega á vef­ síðunni Tripadvisor. Þar gefa gestir veitingastöðum einkunn og jafnvel umsögn eftir heimsóknina. Hátt sæti á listanum er því til marks um ánægju viðskiptavina og hefur mikil áhrif á rekstur veitingahúsanna. „Við lifum á þessum,“ segir annar eigandi Restó, Jóhann Helgi Jóhannsson. Af einstakri hógværð segir Jó­ hann að það sé ofsagt að Restó sé besti veitingastaður landsins. „Að mínu mati snýst listi Tripadvisor um hvar ferðamenn fá mesta virðið fyrir aurinn. Hvað Restó varðar þá er for­ múlan ekki flókin. Við reynum að búa til góðan mat á sanngjörnu verði og veita alúðlega þjónustu. Við erum líka einstaklega heppin með starfs­ fólk,“ segir Jóhann Helgi. Afslappaður fjölskylduandi svífur yfir vötnum því eigin kona Jóhanns Helga, Ragnheiður Helen Eðvarsdóttir, rekur staðinn ásamt eiginmanni sínum og er pottur­ inn og pannan í þjónustunni. Athygli vekur að Dill Restaurant, sem nýlega fékk fyrstu íslensku Michelin­stjörnuna og gerir þar með sterkt tilkall til þess að vera útnefnd­ ur besti veitingastaður landsins, er í grennd við 60. sæti á lista Tripadvisor. Það er í samræmi við stöðuna í Kaup­ mannahöfn en þar er Noma, sem margsinnis hefur verið á lista yfir bestu veitingastaði heims, nálægt 40. sæti í dönsku höfuðborginni. Líklega má draga þá ályktun að þessir stað­ ir séu kannski ekki á ratsjá hins al­ menna ferðamanns heldur frekar matgæðinga og efnaðri viðskipta­ vina. En látum af vangaveltum. Hér eru 10 bestu veitingastaðir í Reykjavík samkvæmt Tripadvisor. n 3 Ostabúðin, skólavörðustígur 8, 101 reykjavík Fyrir tæpum tveimur árum opnaði Ostabúðin nýjan og endurbættan veitingastað í mun stærra rými auk þess sem sælkeraverslunin er enn á sínum stað. Þá fékk staðurinn loks vínveitingaleyfi og ákveðið var að taka við gestum í kvöldmat. Þar veðjuðu eigendurnir svo sannarlega á réttan hest því æ síðan hefur staðurinn verið feikivinsæll, bæði í hádeginu og að kvöldi til. Ef skoðaðar eru nýjustu umsagnir gesta þá sjást lofsamlegir dómar um þjónustuna og matinn, hvort sem um er að ræða kjöt eða fisk. Einn bandarískur ferðamaður, sem heimsótti staðinn ásamt stærri hóp, lýsir því hvernig félagi hans hafi pantað rétt sem innihélt gæs og að þjónn- inn hafi varað hann við að högl gætu leynst í kræsingum. Það hafi reynst rétt því alls fann gesturinn fimm högl í réttinum. „Við skemmtum okkur konunglega. Það er svo gaman að ferðast til annarra landa og upplifa mismunandi matarmenningu,“ sagði gesturinn, sem greinilega á ekki að venjast slíku í Bandaríkjunum. 4 Messinn, Lækjargata 6b, 101 reykjavík Annar nýliði í hópi hinna bestu, Messinn, var opnaður formlega þann 21. júní 2016. Þar er aðaláherslan lögð á fisk og hefur veitingamaðurinn, Jón Mýrdal, sagt að markmið staðarins sé að fanga anda rómaðs veitingastaðar á Ísafirði, Tjöruhússins. „Ég og Maggi, eigandi Tjöruhússins, erum systkina- börn og ég kokkaði þar í dálítinn tíma. Hann hefur lagt blessun sína yfir staðinn og ætlar meira að segja að koma í heimsókn og elda fyrir okkur,“ sagði Jón í viðtali við Veitingageirann þegar Messinn var opnaður. Viðskiptavinir lofsama réttina sem í boði eru sem og þjónustuna. Sérstaklega virðist fiskipanna, þar sem koli er í aðalhlutverki, vera vinsæl. Þá þykja skammtastærðir ríflegar og verðið sanngjarnt. 1 restó, rauðarárstígur 27–29, 101 reykjavík Veitingastaðurinn Restó kom með hvelli inn í íslenska veitingahúsa-menningu í lok árs 2014. Í úttekt DV í maí 2015 kom í ljós að staðurinn var efstur á blaði hjá notendum Tripadvisor. „Ég átti nú ekki von á þessum viðtökum því ég er bara gamall melur að reyna að búa mér til skemmtilega vinnu,“ sagði yfirkokkurinn og eigandinn Jóhann Helgi Jóhannsson við það tilefni. Eins og áður segir þá rekur Jóhann Helgi staðinn ásamt eiginkonu sinni, Ragnheiði Helenu, og saman leggja þau áherslu á fiskrétti auk einlægrar þjónustu. „Þetta er ánægjulegt því ég veit að það hefur verið flökt á efstu sætum. Þetta er samt tvíeggja sverð því að toppsætið þýðir mun meiri væntingar viðskiptavina, jafnvel óraunhæfar,“ segir Jóhann Helgi, sáttur við sitt. Restó landaði silfrinu í fyrra og hefur því geirneglt stöðu sína á toppnum. 2 Matarkjallarinn - The Food Cellar, aðalstræti 2, 101 reykjavík Matarkjallarinn var opnaður um miðjan maí 2016 í húsnæði sem hýst hefur allnokkra veitingastaði í gegnum árin. Eigendur eru þeir Lárus Gunnar Jónasson, Gústav Axel Gunnlaugs- son, Guðmundur Hansson, Valtýr Bergmann og Ari Freyr Valdimarsson, sem er einnig yfirkokkur staðarins ásamt Iðunni Sigurðardóttur. Þau eru, ásamt vöskum hópi starfsfólks, að gera eitthvað rétt því staðurinn hefur verið geysivinsæll frá fyrstu tíð og flaug fljótt upp á toppinn á lista Tripadvisor. „Brasserie matargerð ræður ríkjum í eldamennskunni þar sem áherslan er á íslenskt hráefni,“ segir á heimasíðu Matarkjallarans en á meðan gestir njóta matarins þá hlýða þeir á lifandi tónlist frá Bösendorf-flygli sem var smíðaður árið 1880 í Vínarborg. 5 kaffivagninn, grandagarður 10, 101 reykjavík Kaffivagninn gekk í endurnýjun lífdaga þegar matreiðslumeistarinn Guðmundur Viðarsson og eiginkona hans, Mjöll Daníelsdóttir, keyptu staðinn í lok árs 2013. Þau breyttu áherslum staðarins og síðan þá hefur hann notið mikilla vinsælda. Kaffivagninn nýtur þeirrar sérstöðu á listanum að þar er aðeins opið til kl.18.00 á hverjum degi. Veitingastaðurinn einblínir því á morgun- og hádegismat auk kaffiveitinga þess á milli. Erlendir gestir virðast afar hrifnir af því að innlendir viðskiptavinir eru áberandi í flóru matargesta. Skammtastærðir eru sagðar ríflegar og verðið afar hóflegt miðað við aðra íslenska veitingastaði. Þá er gestum tíðrætt um „fish & chips“-rétt staðarins sem á að vera sérstaklega ljúffengur. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Restó Trónir á toppnum þetta árið en samkeppnin er afar hörð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.