Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Blaðsíða 24
24 umræða Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson Fréttastjóri: Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Sigurvin Ólafsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. aðalnúmer: 512 7000 auglýsingar: 512 7050 ritstjórn: 512 7010 fréttaskot 512 70 70 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Sandkorn Helgarblað 21.–24. apríl 2017 Ókeypis auglýsing Nýr stjórnmálaflokkur hlýtur að fagna allri þeirri athygli sem hann fær. Gunnar Smári Egilsson, sem boðar stofn­ un Sósíalista­ flokks Íslands hinn 1. maí, get­ ur sannarlega verið ánægður með þá kynn­ ingu sem fram­ boð hans hefur fengið. Oddný G. Harðardóttir, fyrrverandi formað­ ur Samfylkingarinnar og einn af örfáum þingmönnum flokksins, fór á taugum vegna framboðsins og bað forsvarsmenn Sósíalista­ flokksins að ganga til liðs við Samfylkinguna fremur en að stofna nýjan flokk. Gunnar Smári var fljótur að svara og sagði Sam­ fylkinguna vera mesta eyðingar­ afl vinstrisins. Eðalkratinn Jón Baldvin Hannibalsson eyddi síðan miklu púðri í að ræða um Sósíal­ istaflokk Gunnars Smára í viðtali í Harmageddon og sagði stefnu­ mál þess flokks nokkuð sem jafnaðarmenn hefðu barist fyrir. Enn ein ókeypis auglýsingin fyrir Gunnar Smára og félaga. Titring­ ur vegna flokks Gunnars Smára er greinilegur meðal Samfylk­ ingarmanna en flokkurinn mælist svo smár í skoðanakönnunum að Sósíalistaflokkurinn þyrfti ekki mikið fylgi til að verða stærri. Ég er ekki hryðjuverkamaður Guðlaugur Þór Þórðarson hefur síðustu daga átt fundi með ráða­ mönnum í Bretlandi, sem eink­ um hafa snúist um framtíðar­ samskipti Íslands og Bretlands eftir að útganga Bretlands úr Evrópusambandinu verður að veruleika. Í öllum viðtölum og fréttum þar sem rætt hefur verið við Guðlaug Þór hefur komið fram að hann hafi ekkert greint nema jákvæðni, samhljóm og hlýhug í garð Íslendinga. Það er því greinilega af sem áður var þegar Gordon Brown, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, beitti hryðjuverkalöggjöf til að frysta eignir íslensku bankanna í Bret­ landi, í miðju efnahagshruninu. Íslendingar brugðust hinir sár­ ustu við og birtu ógrynni mynda af sér með orðunum „Ég er ekki hryðjuverkamaður herra Brown“. Guðlaugur Þór lítur sannarlega ekki út fyrir að vera hryðjuverka­ maður, er þvert á móti hinn sett­ legasti. Það er spurning hvernig viðtökurnar hefðu verið ef Smári McCarthy væri utanríkisráðherra, svona með tilliti til nýlegra mynd­ birtinga af honum með byssu. Ég vil halda spenn- unni inni í mér Hafþór Júlíus stundar ekki kynlíf fyrir keppni. – DV Núna lifi ég í lit Birna Kristel vann bug á áfengis- og eiturlyfjafíkn. – DV Fyrir mér var þetta laugardagurinn langi Bifreið Ágústs Dearborn var lögð í rúst um helgina. Þ að er ekkert einkennilegt við það að umhverfisráðherra sé andstæðingur stóriðju. Mun einkennilegra væri ef hann skilgreindi sig sem sérstakan tals­ mann hennar og reyndar teldist það saga til næsta bæjar. Það er auðvelt að hafa skilning á því að Björt Ólafs­ dóttir umhverfisráðherra hafi lýst því yfir að loka ætti kísilmálmverk­ smiðjunni í Helguvík meðan mikil­ vægir þættir sem varða starfsemina væru kannaðir. Umhverfisráðherra er að segja nákvæmlega það sem fjölmargir hugsa. Á það hefur verið bent að ráðherrann hafi með orðum sínum, sem féllu á Facebook, farið út fyrir valdsvið sitt til þess að hafa áhrif á ákvarðanir Umhverfisstofnunar. Þetta hefur örugglega ekki verið ætl­ un ráðherrans, mun líklegra er að orðin hafi verið skrifuð í tilfinninga­ hita þess sem hefur sterka sannfær­ ingu í umhverfismálum. Reyndar er það svo að hver sá einstaklingur sem lætur sig umhverfisvernd einhverju varða getur illa setið þegjandi hjá þegar kemur að máli kísilmálmverk­ smiðjunnar í Helguvík. Umhverfisstofnun hefur örugg­ lega ekki þurft sérstaka hvatningu frá umhverfisráðherra til að ákveða að United Silicon hafi ekki heim­ ild til að gangsetja kísilverið á ný án samþykkis stofnunarinnar. Á síðustu vikum og mánuðum hafa þær fréttir sem tengjast verksmiðjunni verið hin mestu ótíðindi. Allt virðist hafa verið í ólagi í kísilmálmverksmiðj­ unni í Helguvík. Í verksmiðju eins og þessari er mikilvægt að vel sé gætt að öllum öryggisþáttum. Þarna er stað­ an hins vegar sú að starfsmenn hafa verulegar áhyggjur af öryggismálum. Ekki kemur síðan á óvart að þeir kvarta undan mengun, sem er hinn klassíski fylgifiskur stóriðju. Íbúar í grennd við verksmiðjuna telja sig einnig finna verulega fyrir mengun. Það er vitaskuld óþolandi að mengandi verksmiðju sé plantað í grennd við mannabyggð og fólk þurfi að líða líkamleg óþægindi þess vegna. Grunur leikur á að skaðleg efni streymi yfir byggðina þótt ekki sé vitað hver þau eru. Þetta þarf að rannsaka ofan í kjölinn. Heilsa starfs­ manna og íbúa í grenndinni skiptir sannarlega meira máli en stundar­ gróði. Mengandi stóriðja er ekki það sem við Íslendingar þurfum á að halda. Það á að vera hluti af skyldu stjórn­ valda að sporna við henni. Þessi kís­ ilmálmverksmiðja hefur á stuttum tíma valdið skaða. Við höfum ekk­ ert við hana að gera. Umhverfisráð­ herra gerir sér glögga grein fyrir því og tjáði því skoðun sína á afdráttar­ lausan hátt. Björt Ólafsdóttir hefði verið að bregðast skyldu sinni ef hún hefði ekki lýst skoðun sinni á jafn alvarlegu máli. Hún á skilið lof, ekki skammir. Þjóðinni er svo von­ andi orðið ljóst að stór­ iðja er ekki allra meina bót. Þvert á móti getur hún verið stórhættuleg – og er það venjulega. n Stórhættuleg stóriðja Myndin Sumar Nú sumarið formlega gengið í garð og sólin tekin til við að verma fólkið og landið. Þetta er oft góður tími til að iðka ýmsar vetraríþróttir, eins og þessi vaski fjallgöngumaður vitnar um á leið sinni á Hólshyrnu við Siglufjörð. mynD SiGtryGGur Ari Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Mengandi stóriðja er ekki það sem við Íslendingar þurfum á að halda. mynD HOrDur SvEinSSOn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.