Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2017, Blaðsíða 35
Nýjasta mynd kvik-myndaseríunnar Fast and the Furious og sú
áttunda í röðinni, The Fate of
the Furious, er nú í sýningu í
kvikmyndahúsum hér á landi,
sem og erlendis. Myndin hefur
fengið feiknagóðar viðtökur hjá
kvikmynda aðdáendum og þykir
hafa endurvakið eiginleika fyrstu
myndanna, en serían dalaði
aðeins um miðbik hennar. Í FF8
ferðast hópurinn heimshorna á
milli til að koma í veg fyrir hamfar-
ir á heimsvísu.
Myndin er veisla fyrir aðdá-
endur flottra og hraðskreiðra
bíla, fallegra sköllóttra manna og
föngulegra kvenna. Sagan hefst á
Kúbu og fyrsti kappaksturinn á sér
stað í höfuðborginni Havana. Ljós-
myndari blaðsins hefur margoft
ferðast til Kúbu og fangað þar
stemningu eyjunnar, sem hér get-
ur að líta í máli og myndum. Það er
um að gera fyrir kvikmyndaaðdá-
endur að skella sér í bíó með popp
og kók og upplifa rússíbanaferð
FF8 með eigin augum.
Myndir BB
SKRIÐDREKI CASTRO Í bakgrunni
má sjá skriðdrekann sem Castro keyrði inn í
Havana þegar hann tók völd á Kúbu og steypti
þáverandi forseta, Fulgencio Batista, af stóli.
VIÐGERÐ Í VEGKANTINUM
Það er algeng sjón á Kúbu að sjá menn gera
við bíla sem bilað hafa í umferðinni.
KELLURNAR Á KÚBU Hefðbundin
eldri kona á Kúbu með vindil.
HEIMABAR HEMINGWAY Barinn
La Floridita, þar sem rithöfundurinn Ernest
Hemingway sat alla daga, drakk, borðaði og
skrifaði, er mjög vinsæll meðal ferðamanna.
Hemingway sagði að þar fengist heimsins besti
daquiri. Barnum er haldið í upprunalegri mynd.
FJÖLSKYLDUFERÐ Veggspjald af
byltingarmanninum Che Guevara trónir yfir fjölskyldu
sem undirbýr sig fyrir bæjarferð á rússneskri vespu.
KABARETTKLÚBBURINN Kabarett- og næturklúbburinn Tropicana var opnaður 1939, mafían á Kúbu gerði hann síðar að sínum heimastað. Klúbburinn fékk að starfa alla tíð án afskipta Castro, fyrrverandi einræðisherra, og er í dag vel sóttur af ferðamönnum og léttir pyngju þeirra.
VANTAR ÞIG TAXA?
Hér er Hreyfill Kúbumanna, glæsi-
legur og forn leigubílafloti.