Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Side 6
6 Vikublað 9.–11. maí 2017fréttir
Bocciaheimurinn
á Akureyri nötrar
n Klofningur í Akri n Iðkandi sakar fyrrverandi formann um nauðgun n Maðurinn neitar sök
B
occia-heimurinn á Akureyri
er klofinn og átök eiga sér
stað á milli tveggja klúbba í
bænum. Hafa 16 fyrrverandi
liðsmenn Akurs, sem glíma
við þroskaskerðingu af einhverju tagi,
gengið úr félaginu í nýtt ósamþykkt
félag sem heitir BFA sem stendur fyr-
ir Bocciafélag Akureyrar. Málið er
sérstakt en ágreininginn sem upp er
kominn má rekja til þess þegar fyrr-
verandi formaður Akurs, Vigfús Jó-
hannesson, ákvað að stíga til hlið-
ar eftir að skjólstæðingur hans kærði
hann fyrir nauðgun. Tekið skalt skýrt
fram að ekki hefur verið dæmt í því
máli og þvertekur Vigfús fyrir að hafa
beitt konuna ofbeldi. Áður hafði Vig-
fús verið ávíttur af réttargæslumanni
fatlaðra á Akureyri þar sem hann
þótti sýna af sér ósæmilega hegðun
sem þjálfari í garð stúlkunnar haustið
2014, en samkvæmt heimildum DV
kvörtuðu milli fimm og sjö manns,
sem urðu vitni að hegðun Vigfúsar á
móti á Seyðisfirði. Vigfús segir í sam-
tali við DV að hann hafi ekki gert neitt
rangt. Réttargæslumaður fatlaðra
hefur einnig dregist inn í deilurnar og
var kvartað undan honum til velferð-
arráðuneytisins eftir að hann sam-
þykkti að Vigfús yrði talsmaður stúl-
kunnar.
Vigfús hélt áfram þjálfun eftir
að hafa verið kærður en þegar lög-
regla fór að rannsaka málið af full-
um þunga í byrjun árs 2016 og birti
Vigfúsi kæru steig hann til hlið-
ar sem formaður og varaformaður
tók tímabundið við stjórnartaum-
um. Þá hætti Vigfús einnig þjálfun. Í
maí það sama ár var kosin ný stjórn.
Var megn óánægja á fundinum. Vig-
fús hafði áður verið formaður, eigin-
kona hans gjaldkeri og aðrir stjórn-
armenn voru þroskaskertir iðkendur
í íþróttafélaginu. Í nýrri stjórn var ein
kona sem hafði kvartað undan Vig-
fúsi vegna dóttur sinnar þegar hann
fór með hana eina í sund og svo móð-
ir stúlkunnar sem hafði kært Vigfús
fyrir kynferðisbrot.
Mikil óánægja var á meðal iðkenda
hjá Akri og sögðu sextán manns sig þá
þegar úr félaginu. Forsvarsmenn Ak-
urs segja iðkendurna hafa farið yfir í
nýtt og ósamþykkt félag sem sé á veg-
um Vigfúsar. Skráður formaður BFA
er Ásgeir Vilhelm Bragason. Vigfús
segist hvergi koma nálægt félaginu og
þá komi hann ekki nálægt þjálfun en
viðurkennir að hann sé leiðbeinandi.
Þá er félagið skráð til húsa á sama stað
og fyrirtæki Vigfúsar.
Forsaga
Vigfús Jóhannesson er vinsæll
kennari í boccia. Þá naut hann mik-
illa vinsælda hjá skjólstæðingum sín-
um bæði í Akri og hinu nýja félagi
BFA en þangað virðist fjöldi iðkenda
hafa fylgt honum, en tekið skal fram
að hann segir sjálfur að iðkendur hafi
átt frumkvæði að því að stofna nýtt
félag. Vigfús hefur verið sakaður um
að vera í óeðlilega miklum samskipt-
um við skjólstæðinga sína þegar hann
stýrði Akri, fara með þeim í sund og
halda samkvæmi en hann gerir lítið
úr slíku tali. Þá hefur hann verið sak-
aður um að rúnta um með iðkendur
sína á Lödusportbifreið á eftir iðk-
endum sem enn æfa með Akri og sýnt
þannig af sér ógnandi tilburði. Vigfús
hlær að þessum ásökunum:
„Ég á gamla Lödu Sport sem ég
„Ég viðurkenni að
ég hef farið rúnt
stundum með tvo til þrjá
úr félaginu. Þá erum við
að leita að pókemon
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Borinn þungum sökum
Vigfús Jóhannesson er sakaður um
kynferðisbrot. Hann neitar sök.
Hvað er boccia?
Boccia er keppnisíþrótt sem líkist keiluspili og bocca. Hún er hugsuð fyrir hreyfihaml-
aða einstaklinga. Hún er meðal annars ein af opinberum greinunum sem keppt er í á
Ólympíuleikum fatlaðra og er spiluð í yfir 40 löndum á heimsvísu. Heimild: Wikipedia