Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Side 20
20 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson Fréttastjóri: Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Sigurvin Ólafsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Vikublað 9.–11. maí 2017
Stöðluð viðbrögð
Þorsteini Víglundssyni
jafnréttismálaráðherra hefur
ekki gengið sem skyldi að
koma í gegn frumvarpi sínu um
jafnlaunavottun. Þrátt fyrir að
frumvarpið sé afurð eins af helstu
kosningamálum Viðreisnar og
sé tiltekið í samstarfssáttmála
ríkisstjórnarinnar hefur
ráðherrann mátt þola það að
kollegar hans í ríkisstjórn,
þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
hafi komið í fjölmiðla og lýst því að
þeir muni ekki styðja frumvarpið.
Engu að síður stympast Þorsteinn
við og ætlar sér að koma málinu
í gegn. En í síðustu viku lenti
Þorsteinn í óvæntum mótbyr
þegar að Staðlaráð Íslands, hvorki
meira né minna, skilaði umsögn
sinni um frumvarpið. Það er
skemmst frá því að segja að ráðið
finnur frumvarpinu flest til foráttu.
Þannig sé ekki staðlað hvað vottun
sé og ekki sé heldur staðlað hvort
verið sé að vísa til nýjustu útgáfu
jafnlaunastaðals. Þá er ráðið hið
argasta yfir að aldrei hafi verið
leitað til þess við samningu
frumvarpsins, þrátt fyrir að ráðið
eigi höfundar- og nýtingarrétt á
jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og
sé útgefandi hans. Ætli þetta séu
stöðluð viðbrögð?
Ég er hætt í feluleik
Vala Ósk hefur stundað sjálfsskaða frá 13 ára aldri. – DV
Smiðjuvegi 4C 202 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Skal ég láta orðsveðju hvína
yfir stjórnarmönnum.
Bjarni Bernharður var lokaður inni á geðdeild eftir ummæli á Facebook. – Facebook
Þeir byrja að drekka um
leið og þeir vakna.
Sveinn Allan, forstöðumaður Gistiskýlisins, vill rukka fyrir mat og gistingu. – DV
Þ
að er ekki algengt í kosning-
um að valkostir séu jafn skýr-
ir og þeir voru í frönsku for-
setakosningunum. Þar stóð
valið milli tveggja gjörólíkra fram-
bjóðenda og himinn og haf voru
á milli stefnumála þeirra. Skiljan-
lega beindust augu umheimsins að
þessum kosningum því mikið var í
húfi. Frjálslynt fólk um allan heim
andvarpaði léttar þegar ljóst var
að miðjumaðurinn Emmanuelle
Macron hefði unnið stórsigur á and-
stæðingi sínum, þjóðernissinnanum
Marie Le Pen. Mannúðin sigraði en
það breytir hins vegar ekki því að það
er verulegt áhyggjuefni
að þriðjungur kjós-
enda hafi viljað sjá Le
Pen á forsetastóli.
Það er umhugsun-
arefni fyrir alla þá sem
láta sig stjórnmál ein-
hverju varða hversu
lítil kjörsókn var í þess-
um mikilvægu kosn-
ingum. Vissulega er
það svo að víða um
heim ríkir tortryggni
í garð hefðbundinna
stjórnmálaflokka og
traust á stjórnmála-
mönnum er lítið. Al-
gengt er að litið sé á
þá sem varðhunda
kerfisins og eigin-
hagsmunaseggi sem
láti sig kjör venjulegs
fólks litlu varða. Það
verður hins vegar ekki
sagt að Macron og Le
Pen séu sama tóbakið.
Sá fyrrnefndi er full-
trúi hófsemi og um-
burðarlyndis meðan
sá seinni er fulltrúi
öfga og fordóma.
Þegar valkostirnir eru jafn skýrir og
í frönsku forsetakosningunum (og
ekki má gleyma þeim bandarísku þar
sem úrslitin voru hörmuleg) þá hafa
kjósendur ekki efni á að sitja heima.
Stundum er afar mikilvægt að gera
sér grein fyrir því hvað maður vill
alls ekki og bregðast við samkvæmt
því. Það var siðferðileg skylda allra
franska kjósenda sem vilja standa
vörð um mikilvæg húmanísk gildi að
kjósa Macron og kjósa þannig gegn
fasískri hugmyndafræði Le Pen.
Þeir kjósendur sem sátu heima
eða skiluðu auðu í frönsku forseta-
kosningunum voru í reynd að segja
að þeim væri svosem sama þótt
hin öfgasinnaða Le Pen yrði for-
seti. Myndin af Donald Trump og Le
Pen hjala saman um gæluverkefni
sín og gera sameiginlegar áætlan-
ir í Hvíta húsinu og Elysée-höllinni
hafa greinilega ekki verið hrollvekj-
andi í hugum þessara kjósenda –
sem er vissulega einkennilegt. Þetta
eru ekki beinlínis einstaklingar sem
hafa frelsi, jafnrétti og bræðralag í
hávegum.
Stundum er vissulega freistandi
fyrir kjósanda að yppta öxlum þegar
kemur að kjördegi og tauta að engu
skipti hvað hann kjósi, ekkert muni
breytast. En það getur ansi mikið
breyst á stuttum tíma komist full-
trúi mannfjandsamlegra viðhorfa í
æðstu valdastöðu. n
Hættulegt afstöðuleysi
Ís í blíðunni Veður hefur verið skaplegt um land allt og margir hafa nýtt það til útivistar, inni í borg eða úti í sveit. Eitthvað kann að kólna í veðri þegar líður á vikuna.
mynd Sigtryggur Ari
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin
„Stund-
um er afar mik-
ilvægt að gera sér grein
fyrir því hvað maður vill
alls ekki og bregðast við
samkvæmt því.