Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Qupperneq 28
28 Vikublað 9.–11. maí 2017lífsstíll - matur
Bókmenntafræðingur
skrifar matreiðslubók
Heimiliskokkurinn Jón Yngvi komst í vanda þegar dætur hans gerðust grænmetisætur
H
jálp, barnið mitt er græn
metisæta! er fyrsta mat
reiðslubók bókmennta
fræðingsins og lektorsins
Jóns Yngva Jóhannsson
ar. Bókin geymir uppskriftir að fjöl
mörgum grænmetisréttum.
Spurður af hverju hann hafi
ákveðið að skrifa matreiðslubók þar
sem öll áherslan er á grænmetisrétti,
segir Jón Yngvi: „Ég á þrjár dætur og
fyrir nokkrum árum hætti sú elsta að
borða kjöt og yngri systurnar fylgdu
smám saman í kjölfarið. Nú eru þær
allar grænmetisætur. Þar sem ég er
heimiliskokkurinn var ég kominn í
vanda. Frá því við hjónin byrjuðum
að búa höfum við lagt mikla áherslu á
að halda í þá venju að kvöldmatur sé
klukkan sjö og þá setjist fólk niður og
tali saman. Ég vildi ekki fórna þessum
sið og að elda mismunandi rétti fyr
ir heimilisfólkið útheimtir bara ves
en. Lausnin var sú að elda grænmeti
fyrir alla. Þannig breyttist mataræði
og matarvenjur fjölskyldunnar. Við
borðum grænmeti en ef stelpurnar
eru ekki heima stekk ég kannski út í
fiskbúð. Ég sakna fisks miklu meira
en kjöts sem ég sakna nánast ekki
neitt. Ég held að þegar börnin flytja
að heiman þá muni ég borða miklu
meiri fisk en ég geri núna.“
Unga fólkið hefur rétt fyrir sér
Jón Yngvi segist alltaf hafa haft mik
inn áhuga á matargerð. „Ætli hug
myndin að skrifa matreiðslubók sé
ekki orðin næstum því tuttugu ára
gömul. Á tímabili ætlaði ég að stæla
danska bók sem ég eignaðist 1999 og
heitir Kogebog for fattigrøve (Mat
reiðslubók fyrir blanka). Ég var lengi
vel blankur námsmaður þannig að
ég var búinn að koma mér upp alls
kyns ráðum og aðferðum við að
spara peninga. Það eimir svolítið
eftir af því í bókinni, að megninu til
samanstanda uppskriftirnar í bók
inni af mjög ódýrum mat.
Ég held að það sé þörf á bók
eins og þessari. Ég tók eftir því að í
kringum stelpurnar mínar var ann
að ungt fólk sem var líka að taka þá
ákvörðun að hætta að borða fisk og
kjöt eða minnka það verulega við
sig. Þetta unga fólk hefur alveg rétt
fyrir sér. Börnin okkar eru miklu
skynsamari en við vorum á þeirra
aldri. Það eru hins vegar ekki allir
foreldrar tilbúnir til að nördast jafn
mikið í eldhúsinu og ég. Foreldrar
taka því alla vega þegar börn þeirra
hætta að borða fisk og kjöt. Sumir
reyna að halda fiski og kjöti að börn
um, aðrir segja: þá geturðu bara eld
að sjálf(ur) og sumir gefast upp og
kaupa mikið tilbúna rétti. Ég sá að
þarna var fólk sem vantaði bók eins
og þessa og mér heyrist á viðbrögð
unum að svo sé.“
Bók með umhverfisvinkil
Spurður hvort hann eigi sér uppá
haldsuppskrift í bókinni segir Jón
Yngvi: „Ég nota ekki mikið af kjöt
líki í mat. Eina undantekningin er ís
lenska framleiðslan, bulsur, sem ég
nota á sérstakan hátt. Í bókinni er
uppskrift að rétti sem ég kalla baella
og í henni eru bulsur. Þetta er frá
bær matur. Ef ég væri með fólk í mat
þá myndi ég alveg hikstalaust bjóða
upp á baellu. Kosturinn við þessa
uppskrift er líka sá að maður getur
búið hana til alla úr hráefni sem vex
í 100 kílómetra radíus frá Reykjavík.
Það er umhverfisvinkill á bókinni.
Fólk á ekki stöðugt að borða mat sem
losar mikið af kolefni og þar er kjöt
versti kosturinn. Það er heldur ekki
gott að vera alltaf að borða grænmeti
sem er flutt yfir hálfan hnöttinn með
tilheyrandi bensín og olíueyðslu.“
Greinar og samstarfsverkefni
Þar sem Jón Yngvi er afkastamik
ill fræðimaður er ekki hægt að
kveðja hann án þess að forvitn
ast um það hvað hann sé að gera á
fræðasviðinu: „Nýlega flutti ég fyr
irlestur á Höfn í Hornafirði um Að
ventu og Sjálfstætt fólk. Ég er að
skrifa greinar um þessar tvær bæk
ur sem snúast reyndar líka um um
hverfismál og það hvernig þessar
bækur lýsa samskiptum manns og
náttúru og manninum í náttúrunni.
Ég er líka í stóru samstarfsverkefni
sem snýst um rannsókn á íslensku
sem kennslutungu. Annað sam
starfsverkefni er norrænt verkefni
um norræna bókmenntasögu. Þar
er verið að búa til rannsóknarhóp
fólks frá öllum Norðurlöndunum
sem hefur áhuga á bókmenntasögu.
Ætlunin er að skrifa greinasafn sem
fjallar um ólíkar nálganir á bók
menntasögu.“ n
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Jón Yngvi „Ætli hugmyndin
að skrifa matreiðslubók sé ekki
orðin næstum því tuttugu ára
gömul.“ MYnd SiGtrYGGUr Ari
Spænsk paella er réttur sem á sér langa og
merka sögu og um hana gilda, eins og svo
marga fræga evrópska rétti, margvís-
legar reglur, skráðar og óskráðar. Margir
af helstu stjörnukokkum heimsins hafa
móðgað íbúa spænsku borgarinnar Val-
encia gróflega með því að birta uppskriftir
sem þeir kalla paellu en brjóta einhverjar
þessara reglna. Spánverjar eru ekki barn-
anna bestir sjálfir og sá réttur sem seldur
er sem paella á sumum ferðamannastöð-
um er fremur ólystugur grjónagrautur.
Þess vegna er það sérstök ósvífni af
mér að snúa svona út úr nafninu á þessum
fornfræga rétti og snúa öllu á haus í
vali á hráefnum. En það verður bara að
hafa það. Baella með bulsum er frábær
matur. Þetta er veganréttur sem sómir
sér á hvaða veisluborði sem er. Og þegar
hugmyndin var komin að því að búa til rétt
sem líktist paellu úr byggi var fimmaura-
brandarinn sem felst í nafninu hreinlega
ómótstæðilegur.
Setjið byggið í pott með vatni svo fljóti
yfir, látið suðuna koma upp og slökkvið undir.
n 2 ½ DL BYGG
n SAFFRAN MILLI FINGURGÓMA
n 2 LAUKAR
n 4 MSK. ÓLÍFUOLÍA
n 2 HVÍTLAUKSRIF
n ½ RAUTT CHILI
n 1 RAUÐ PAPRIKA
n ½ L GRÆNMETISSOÐ
n 4 BULSUR
n 250 G KIRSIBERJATÓMATAR
n SALT OG PIPAR
Setjið saffranið í skál með 1 dl af sjóðandi
vatni.
Saxið laukinn og mýkið hann í ólífuolí-
unni á stórri pönnu. Bætið mörðum og fínt
söxuðum hvítlauk, fínt söxuðu chili og fínt
skorinni papriku út í og steikið áfram þar
til paprikan er orðin mjúk.
Hellið vatninu af bygginu, hrærið því,
saffraninu (ásamt vatninu sem það lá í)
og grænmetissoðinu saman við græn-
metið á pönnunni og látið sjóða í um það
bil 20 mínútur.
Á meðan má útbúa bulsurnar. Takið
þær úr plastinu, skerið á ská í um ½ cm
þykkar sneiðar og steikið í ólífuolíu.
Bætið tómötunum út í byggið þegar
það hefur soðið í 20 mínútur og hrærið
vel. Sjóðið í 10 mínútur í viðbót, eða þar til
byggið er orðið meyrt.
Bragðbætið með salti og pipar og dreifið
bulsunum yfir. Gott er að dreifa ferskri
steinselju eða basilíku yfir réttinn áður en
hann er borinn fram.
Baella
Uppskrift úr bókinni
„Ég sá að þarna var
fólk sem vantaði bók
eins og þessa og mér heyrist
á viðbrögðunum að svo sé