Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Side 31
menning 31Vikublað 9.–11. maí 2017 „Oft eru þetta fjölskyldufyrirtæki, en mér sýnist að í mörgum þeirra sé enginn í fjölskyldunni tilbúinn að taka við af þeim sem er í dag. Í gegnum tíðina hefur það verið álitin mikil virðingarstaða að vera kaup- maður en þetta þykir ekki eins eft- irsóknarvert í dag, enda getur ver- ið erfitt að reka slíkar búðir eins og markaðurinn er í dag.“ Félagsmiðstöð og sálfræði- þjónusta En hvernig fólk er það sem heldur áfram að reka sjálfstæðar kjörbúðir? „Þetta er mjög mismunandi fólk, en ég held að allt þetta fólk eigi það sameiginlegt að vera mjög félags- lynt. Til að reka svona búð þarftu að vera mjög „sósjal“ enda verða þetta yfirleitt eins og félagsmiðstöðvar fyrir nærumhverfið.“ Er þetta það sem þær hafa helst fram að færa fram yfir stórmarkað- ina? Já, það er fyrst og fremst nándin og þetta mannlega. Til kaup- mannanna koma mjög margir inn til að fá félagsskap, til dæmis margir einstæðingar sem koma og hitt- ast. Sumir kaupmenn lýsa sér eins og sálfræðingum. Í Kjötborg geyma þeir lykla fyrir fólk í hverfinu, í aðr- ar búðir koma krakkar sem læsast úti og fá að hringja í foreldra sína og fá eitthvað að drekka á meðan þeir bíða. Þetta er ákveðið öryggi. Þetta er því miklu meira en bara verslan- ir,“ segir Sigríður. „Hjá kaupmanninum er allt svo persónulegt. Uppstillingarnar eru til dæmis ekki eftir neinu kerfi heldur eru þær augljóslega gerðar af ákveðinni manneskju. Þetta eru rosalega ólíkar búðir og mótast eftir karakter hvers og eins kaupmanns, maður getur eiginlega lesið í karakt- erinn hans með því að skoða búð- ina. Hjá Einari í Einarsbúð á Akra- nesi er allt mjög snyrtilega upp raðað og allir mjög settlegir og fín- ir. Í Gunnubúð á Raufarhöfn er hins vegar skipulagt kaos sem hvorki Gunna né viðskiptavinirnir myndu vilja breyta. Það er miklu kaldara að fara í stórmarkaði, þar sem öllu er raðað eftir sama kerfinu og allar búðirnar því nánast eins.“ Er það þessi karakter og óskipulagða fagurfræði sem er það sem gerir þessar verslanir sérstak- lega áhugavert myndefni? „Já, mér finnst þær myndast rosalega vel og því sá ég þetta tæki- færi í að búa til myndverk. Þetta eru oft mjög litríkar verslanir og margar skemmtilegar uppstillingar. Ólík- um hlutum er blandað saman svo oft verður þetta hálf súrrealískt, til dæmis tók ég mynd í Kjötborg þar sem heildarverkum Tómasar Guð- mundssonar hafði verið stillt upp við hliðina á tómatsósuflöskum.“ n „Þetta eru rosalega ólíkar búðir og mótast eftir karakter hvers og eins kaup­ manns, maður getur eiginlega lesið í karakt­ erinn hans með því að skoða búðina. Einarsbúð Einar J. Ólafsson rekur Einarsbúð á Akra- nesi, en það var faðir hans og nafni, Einar Ólafsson, sem opnaði versl- unina árið 1934. Mynd Sigríður rut Marrow Verzlun H. Júlíussonar Bjarni Haraldsson situr bak við búðarborðið í versluninni sem faðir hans stofnaði á Sauðárkróki árið 1919. Mynd Sigríður rut Marrow Kjötborg Bræðurnir Gunnar og Kristján Jónassynir hafa rekið verslunina Kjötborg á Ásvallagötu í Reykjavík frá ár- inu 1988 en búðin var stofnuð af föður þeirra árið 1956. Mynd Sigríður rut Marrow Bjarnabúð Stefanía Birgisdóttir rekur Verslun Bjarna Eiríkssonar á Bolungarvík. Mynd Sigríður rut Marrow Ferskt kjöt í verslun Einars Hafsteinn Kjartansson kjötiðnaðarmaður hefur umsjón með kjöt- og fiskborðinu i Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi. Mynd Sigríður rut Marrow

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.