Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Page 2
2 Helgarblað 30. júní 2017fréttir
K
lofningur innan Fram
sóknarflokksins er ekki leng
ur helsta fyrirstaðan í því
að stjórnarandstaðan gæti
tekið við stjórnartaumunum, félli
ríkis stjórn Bjarna Benediktssonar.
Það er ósamstaða, skipulagsleysi
og klofningur innan raða Pírata
sem stendur í vegi fyrir því. Þetta er
skoðun fjölda þingmanna stjórnar
andstöðunnar sem DV hefur rætt
við. Innanmein Pírata eru sögð slík
að þingmenn annarra stjórnarand
stöðuflokka þakka fyrir að ekki hafi
tekist að setja saman fimm flokka
stjórn, svo sem reynt var. Sú stjórn
væri vísast sprungin margsinnis,
sökum þessa. Líkt og greint var frá
í DV um síðustu helgi er Ásta Guð
rún Helgadóttir, þingkona Pírata,
einangruð frá hinum í þingflokkn
um. Þá hefur því verið haldið fram
að persónulegar deilur og lausatök
í stjórnun valdi erjum, bæði innan
flokksins en einnig í samstarfi við
aðra stjórnarandstöðuflokka. Þing
menn annarra stjórnarandstöðu
flokka eru þessu sammála.
Hafnar ekki Framsókn
Smári McCarthy, þingmaður Pírata,
segir ekki ríkja neinn málefna
ágreining innan þingflokks Pírata
en deilt sé um vinnulag. Unnið sé
að því að leysa þau mál og hann
er bjartsýnn á að það muni takast.
Hann segir enn fremur að hann geti
ekki kvartað undan samvinnunni
innan stjórnarandstöðunnar, hann
hafi verið býsna ánægður með hana.
Ef sitjandi stjórn hins vegar félli seg
ir Smári ekki sjálfgefið að stjórnar
andstaðan í heild, og þá með stuðn
ingi einhvers flokkanna í núverandi
ríkis stjórn eða í það minnsta ein
hverra þingmanna hennar, ætti
að taka við. „Ef stjórnin félli þyrfti
að skoða allar stöður upp á nýtt.
Stjórnarandstaðan hefur, eins og
ég segi, verið að vinna ágætlega
saman og það þyrfti bara að skoða
þá möguleika sem upp væru komn
ir. Ég get hins vegar ekki sagt hér og
nú að þessi 31 manns hópur þing
manna væri lausnin. Vandinn ligg
ur í því hvernig þingmannafjöldinn
dreifðist í síðustu kosningum, þess
vegna er flókið að mynda stjórn.
Ég útiloka svo sem ekkert á þessum
tímapunkti.“
Píratar höfnuðu því algjörlega
í stjórnarmyndunarviðræðum að
vinna með Framsóknarflokknum.
Er afstaða flokksmanna breytt frá
því þá?
„Það hefur ekki komið til um
ræðu en ef ég svara fyrir mig sjálf
an, en ekki fyrir Pírata sem heild,
að ef til kæmi myndi ég horfa á alla
valkosti. Ég myndi hins vegar úti
loka þá valkosti sem alls ekki kæmu
til greina frekar hratt.“
Og hvaða valkostir væru það?
„Ég veit það ekki, það þyrfti að
koma í ljós.“
Þvertaka fyrir að samvinnu
Innan Framsóknarflokksins ríkir
veruleg tortryggni í garð Pírata og
afstaða þeirra eftir kosningar, þegar
þingmenn Pírata lýstu því ítrekað
yfir að það kæmi ekki til greina að
vinna með Framsókn, hefur ekki
hjálpað. Þó er nokkur munur á því
eftir því við hvern er talað innan
þingflokksins hvort talið sé mögu
legt að flokkarnir geti unnið saman.
Nokkur hópur þingmanna Fram
sóknarflokksins þvertekur þannig
fyrir að hægt að sé að vinna með
Pírötum, ekki sé hægt að treysta
þeim þrátt fyrir að ákveðið hafi
verið að ganga í takt. Sömu þing
menn taka einnig undir þá skoðun
að ríkis stjórnin geti setið í þægind
um sökum þess hversu sundruð
stjórnar andstaðan er. Aðrir þing
menn Framsóknarflokksins eru ekki
jafn afdráttarlausir í þessum efnum
og telja að mögulegt sé að stjórnar
andstaðan gæti unnið saman en til
þess þyrfti verulegar málamiðlanir.
Þreyta í VG
Innan Vinstri grænna ríkir talsverð
þreyta í garð Pírata. Þar er tilfinn
ingin sú að þingmenn séu umboðs
lausir að því marki að þeir búi ekki
við fastmótaða stefnu, alla hluti
þurfi að fara með til umræðu inn
an þingflokksins og þar af leiðandi
taki allar viðræður milli stjórnar
andstöðuflokkanna mjög langan
tíma og ekki hægt að taka ákvarð
anir nema eftir dúk og disk.
Ágæt reynsla af samstarfinu
Logi Már Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir að sín
reynsla af samstarfinu við Pírata sé
ágæt. „Það að þau eru nýr og óhefð
bundinn stjórnmálaflokkur getur
vissulega valdið því að sum þeirra
útspil geta verið óvænt en ég get
ekki tekið undir að ekki sé hægt að
vinna með þeim, ég treysti mér vel
til þess. Mér finnst þetta vera, heilt
yfir, áhugaverðir stjórnmálamenn.
Stjórnarandstaðan hins vegar
glímir við það, eðlilega, að þetta
eru ólíkir flokkar. Það er líka þannig
að félli stjórnin er ekki sjálfgefið að
eini valkosturinn væri að stjórnar
andstaðan tæki við, heimurinn er
ekki þannig svarthvítur.“
Ósættið stendur
flokknum fyrir þrifum
Eiríkur Bergmann, stjórnmála
fræðiprófessor við Háskólann á Bif
röst, segir merkilegt hversu vel Pírat
ar hafi haldið flugi, flokkur sem í eðli
sínu sé andstöðu og jaðarflokk
ur en hafi þrátt fyrir það notið mik
ils fylgis og það lengi. „Öll skapalón
í stjórnmálafræði segja að flokkur
sem þessi ætti að vera sprunginn
í loft upp en hann hefur ekki gert
það, þrátt fyrir að fregnir berist af
erfiðleikum innan hans. Ósætti inn
an Pírata stendur samt flokknum
fyrir þrifum, þetta er flokkur sem má
ekki við neinu slíku. Til þess að virka
þurfa Píratar að vera, eða alla vega
líta út fyrir að vera, samstíga því þeir
eru andstaðan við, og því valkostur
við, hinn hefðbundna stjórnmála
flokk. Sýni þeir ekki fram á að vera
samstíga innan flokks þá er hætt við
að þeir tapi trúverðugleika sínum.“
Stjórnin stendur sterk
Eiríkur segir augljóst að meira en
lítill krytur sé milli Pírata og Fram
sóknarflokksins, sem meðal annars
valdi því að óraunhæft sé að ætla að
stilla stjórnarandstöðunni upp sem
valkosti til að taka við stjórnartau
munum. „Hinir stjórnarandstöðu
flokkarnir hafa ekki treyst Pírötum,
eða í það minnsta hefur ríkt tor
tryggni í þeirra garð um hvort þeir
séu stjórntækir. Það er þó að ég tel
ansi mismunandi milli flokka. Það
er auðvitað langlengst á milli Pírata
og Framsóknarflokks af þessum
stjórnarandstöðuflokkum og hæpið
að þessir tveir flokkar geti undir
nokkrum kringumstæðum unnið
saman.
Stjórnarandstaðan sem heild er
því algjörlega ótrúverðugur valkostur
til að taka við stjórnar taumunum.
Það er helsti styrkur ríkisstjórnar
innar, að stjórnarandstaðan sem
heild er óstjórntæk. Þingmenn ríkis
stjórnarinnar gera sér glögga grein
fyrir þessu og leyfa sér því meiri deil
ur en oftast hefur verið, bæði milli
óbreyttra þingmanna en einnig inn
an ráðherraliðsins. Það virðist ekki
valda henni umtalsverðum vand
ræðum, þó að það séu auðvitað
mál sem þeim mun aldrei takast að
hrinda í framkvæmd vegna þess að
það er ósætti milli flokkanna um þau.
En það hversu ósamstíga stjórnar
andstaðan er gerir það að stjórnin
stendur í raun sterkum fótum, sterk
ari en í raun mætti ætla af öllum ytri
merkjum.“ n
Fallegir að innan sem utan
Gluggagerðin framleiðir fyrsta flokks tréglugga og hurðir þar sem
saman fer fallegt útlit, góð ending og vandaður frágangur.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
SÉRSMÍÐAÐIR ÍSLENSKIR GLUGGAR
Vandaðir
gluggar sem hannaðir
eru til að þola
íslenska veðráttu
Píratar eru fyrirstaðan
n Stjórnarandstaðan er óraunhæfur valkostur n Stjórnin í þægilegri stöðu
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Segir engan málefnaágreining Smári
McCarthy, þingmaður Pírata, neitar að
málefnaágreiningur ríki innan þingflokksins
en segir að deilt sé um vinnulag.
Reynslan ágæt Logi Már Einarsson, for-
maður Samfylkingarinnar, segir að reynsla
hans af samstarfi við Pírata sé ágæt.
Mega ekki við ósætti Eiríkur Bergmann
stjórnmálafræðiprófessor segir Pírata ekki
mega við ósætti innan sinna raða, annars sé
hætt við að þeir tapi trúverðugleika sínum.
Kátir þá Píratar voru kátir
á kosninganótt. Ýmislegt
bendir til að kætin sé eitt-
hvað í rénun. Mynd SiGtRyGGuR ARi