Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Side 20
2 Bílar og verkstæði Helgarblað 30. júní 2017KYNNINGARBLAÐ
„Herr Doktor, kalla þeir mig“
Í Skútuvogi 13 er bílavarahlutaverslunin og bílaverkstæðið Bíla-Dokt-
orinn staðsett. Það sinnir
almennum bílaviðgerðum og
er á sama tíma einnig smur-
stöð. Rúnar Sigurjónsson,
vélvirki og eigandi Bíla-
Doktorsins, segir fyrirtækið
þjónusta mest Mercedes-
Benz, Volkswagen, Audi og
Skoda með viðgerðum og
varahlutasölu, en þeir smyrji
og geri við fjölda annarra
bílategunda.
Áhersla lögð á gæðavörur
„Varahlutaverslun okkar
hefur upp á að bjóða marga
af algengustu varahlutum
og einnig ýmsa sérvöru
fyrir fyrrnefndar tegundir.
Við leggjum áherslu á að
bjóða upp á gæðavörur sem
uppfylla ströngustu kröfur
bifreiðaeigenda og eftirlits-
aðila í Þýskalandi, þaðan sem
megin uppistaða af okkar
vöru kemur,“ segir Rúnar.
„Varahlutaverslunin leggur
áherslu á að nota öflug
upplýsingakerfi til að gera
afgreiðslu varahluta eins ná-
kvæma og rétta og mögulegt
er,“ bætir hann við.
Þekktir fyrir vönduð
vinnubrögð
Bíla-Doktorinn er ört vaxandi
fyrirtæki sem á stóran hóp
tryggra viðskiptavina sem
margir hverjir hafa átt farsæl
viðskipti við verslunina frá
upphafi. „Það er markmið
okkar að veita viðskiptavinum
okkar góða þjónustu byggða
á þekkingu og langri reynslu
á viðhaldi og umhirðu hvers
kyns bifreiða,“ segir Rúnar.
„Okkar aðalsmerki er vönd-
uð vinnubrögð sem skila sér
í betra umferðaröryggi og
áreiðanleika þeirra ökutækja
sem við sinnum viðgerðum
á og seljum varahluti í,“ segir
hann í framhaldinu.
Saga á bak við nafn
fyrirtækisins
Nafn fyrirtækisins var dregið
af viðurnefni Rúnars á meðal
bílaáhugamanna. „„Herr
doktor“, kalla þeir mig,“ segir
Rúnar. Hann hefur unnið
nærri alla sína starfsævi við
bíla og vinnuvélar og er einn
þekktasti áhugamaður um
Mercedes-Benz-bíla á Íslandi
en hann hefur haft það að
áhugamáli að gera upp og
varðveita fornbifreiðar af
þeirri gerð, ásamt því að eiga
einn bíl úr hópi þeirra elstu
hér á landi, Chevrolet árgerð
1931.
Bjóða upp á almennar
bílaviðgerðir
„Við bjóðum upp á flestallar
almennar bílaviðgerðir,“ segir
Rúnar. „Öll umskipti á slithlut-
um og lagfæringar á biluðu
gangverki er eitthvað sem er
okkar daglega starf. Þó svo
að við bjóðum flestar gerðir
bíla velkomnar í viðgerð þá
höfum við að mestu leyti sér-
hæft okkur í Mercedes-Benz,
Volkswagen, Skoda og Audi
eins og áður sagði og búum
við því yfir nokkurri sérþekk-
ingu á þeim,“ segir Rúnar.
Bíla-Doktorinn, Skútuvogi
13, 104 Reykjavík Sími: 552-
5757 Heimasíða: http://www.
doktorinn.is/
BÍlA-DOktORiNN: