Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Page 2
2 Helgarblað 25. ágúst 2017fréttir
Spurning vikunnar Hvernig líst þér á Mathöllina? (spurt í Mathöllinni á Hlemmi)
Mér finnst hún alveg frábær. Ég var að koma þangað í
fyrsta sinn og keypti tvær brauðsneiðar á Jómfrúnni.
Benedikt Sveinn Kristjánsson
Hún er æðisleg. Ég er búin að fá mér humarloku og hún
var mjög góð.
Ásta Ósk Þorvaldsdóttir
Mér finnst þetta stórglæsilegt. Ég mun storma hingað
bæði í hádegi og eftirmiðdag með kórakonunum mínum
til að njóta.
Margrét Pálmadóttir
Það sem ég hef séð finnst mér mjög fínt. Ég er að fara að
smakka mat hér í fyrsta skiptið og víetnamski maturinn
varð fyrir valinu.
Guðmundur Guðmundsson
48% aukning á lestri DV síðustu tvo mánuði
S
amkvæmt nýbirtum niður-
stöðum Gallup um lestur
prentmiðla jókst lestur
á DV um rúmlega 8,5%
á milli mánaðanna júní og júlí.
Lestur DV mældist 11,4% í júlí en
hafði verið 10,5% í júní. Í maí var
lestur blaðsins 7,7% og hefur hann
því aukist um rúm 48% á síðustu
tveimur mánuðum. DV var eina
blaðið sem mældist með aukinn
lestur í könnuninni. Fréttablaðið
mældist með mestan lestur eða
44,1%, Morgunblaðið með 25,1%
og Viðskiptablaðið 9,1%. Starfs-
fólk DV er ánægt og þakklátt
fyrir þessar góðu viðtökur upp á
síðkastið og mun sem fyrr leitast
við að bæta og styrkja blaðið enn
frekar í hverri viku.
Vigfús Bjarni segir fjölskyldu Birnu ekki hafa búist við svo beinskeyttum fréttaflutningi
Í
byrjun vikunnar hófst aðalmeð-
ferð í máli ákæruvaldsins gegn
Thomas Frederik Møller Olsen
sem er ákærður fyrir að hafa
ráðið Birnu Brjánsdóttur bana.
Mál Birnu vakti mikla athygli og
óhug en Birna hvarf aðfaranótt 14.
janúar. Íslenska þjóðin fylgdist með
og tók þátt í leitinni að Birnu en lík
hennar fannst, eftir viðamikla leit,
við Selvogsvita þann 22. janúar síð-
astliðin. Vigfús Bjarni Albertsson
sjúkrahússprestur sem hefur staðið
þétt við bakið á nánustu aðstand-
endum Birnu frá upphafi gagnrýn-
ir íslenska fjölmiðla harðlega fyrir
óvenju nákvæmar og ítarlegar lýs-
ingar á því sem fram fór í réttar-
sal fyrstu tvo daga aðalmeðferðar-
innar í Héraðsdómi Reykjaness.
Hann segir sumar lýsingarnar þess
eðlis að þær hafi valdið óbærileg-
um sársauka og skapað hryllilegar
myndir í hugskotum þeirra sem
þjást mest; fjölskyldu Birnu Brjáns-
dóttur.
Hryllilegar lýsingar
„Fréttaflutningur undanfarinna
daga hefur verið þess eðlis að hann
ógnar andlegri heilsu fólks sem á
um gríðarlega sárt að binda.“ Þetta
segir Vigfús Bjarni í samtali við DV.
Til dæmis birtust, í nokkrum fjöl-
miðlum, mjög myndrænar lýsingar
á þeim áverkum sem fundust á líki
Birnu. Vigfús Bjarni segir að ná-
kvæmar lýsingar á því hvernig of-
beldi Birna var beitt fyrir andlátið
eigi alls ekki erindi í fjölmiðla.
„Mér finnst að fjölmiðlar hafi,
undanfarna daga, verið að birta
upplýsingar sem tengjast málinu
en koma almannaheill ekkert við.
Margt af því sem kom fram í dóm-
sal er þess eðlis að það getur sært
nánustu aðstandendur. Ég hef
aldrei séð svona lýsingar áður.“
Vigfús vill koma því skýrt á
framfæri að fjölmiðlar hafi oft
staðið sig vel í málinu en því
miður hafi einhverjir þeirra farið
yfir strikið í vikunni. „Það var eins
og einhvers konar sýning væri að
hefjast. Mér finnst að fjölmiðlar
eigi að taka það til sín að það sem
þeir eru að fjalla um er harmleikur
sem tengist persónu og fjölskyldu
sem er í miklum sárum. Fjölmiðlar
eiga ekki að auka á þjáningu þessa
fólks með hryllilegum lýsingum
sem almenningur hefur ekkert
með að gera.“
Enginn bjóst við þessu ferli
Aðspurður hvort hann telji að
þinghaldið hefði átt að vera lokað
kveðst Vigfús ekki geta svarað því.
Þeir sem fara í dóm hafi þó val um
fara þangað eða lesa dómskjöl. En
með því að birta grófar lýsingar á
vefsíðum fjölmiðla, beint úr dóm-
sal, er valið tekið frá almenningi.
„Þær birtast bara fyrir framan aug-
un á okkur. Við ættum frekar að
einbeita okkur að samúð og sam-
hug gagnvart þolendum þessa
máls. Þannig berum við virðingu
fyrir nánustu aðstandendum og
það á að vera í forgrunni.“
Almennt séð segir Vigfús að
erfitt sé að fyrir fjölskyldu í sárum
að fá yfir sig svona upplýsingar.
Enginn vill að fólk minnist sinna
nánustu með þessum hætti. Að-
spurður hvort fjölskylda Birnu hafi
verið búin að undirbúa sig und-
ir svo beinskeyttan fréttaflutning
úr dómsal svarar Vigfús. „Nei, það
gerði hún ekki. Enginn bjóst við að
ferlið yrði svona.“
Vigfús vill að almenningur sam-
mælist um að það hefði ekki þurft
að hafa aðgang að öllum þessum
upplýsingum úr dómsal. Þá von-
ar hann að fyrstu tveir dagar að-
almeðferðarinnar hafi verið lær-
dómsríkir fyrir íslenska fjölmiðla
sem og almenning. n
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Ég hef aldrei séð
svona lýsingar áður“
„Við ættum frekar
að einbeita okkur
að samúð og samhug
gagnvart þolendum
þessa máls. Þannig ber-
um við virðingu fyrir nán-
ustu aðstandendum og
það á að vera í forgrunni.
Vigfús Bjarni
Albertsson
Gagnrýnir frétta-
flutning fjölmiðla.