Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 25. ágúst 2017
M
annskepnan hefur unun
af því þegar hið ósenni
lega gerist, þegar smá
lið hafa betur gegn stór
liðum í íþróttakeppnum eða
þegar íþróttamenn stökkva fram,
fullskapaðir úr loftinu og vinna
glæsta sigra. Þessu efni hafa oft
verið gerð skil í kvikmyndum,
til að mynda kvikmyndinni um
hnefaleikakappann Rocky Balboa
sem Sylvester Stallone túlkaði svo
eftirminnilega. Rocky, lítt þekktur
áhugaboxari, fær þá óvænt tæki
færi lífs síns til að takast á við
heimsmeistarann Apollo Creed
og vinnur móralskan sigur þó að
heimsmeistaranum sé dæmdur
sigurinn. Íþróttamaðurinn sem
enginn þekkti rís til hæstu met
orða og öðlast frægð og frama.
Til eru ýmsar þjóðsögur um
slíka sigra í íþróttaheiminum en
sjaldnast er nú sagan alveg jafn
klippt og skorin og af er látið. Þó
eigum við Íslendingar nú íþrótta
mann hvers saga er helst farin
að líkjast Hollywoodkvikmynd.
Tryggvi Snær Hlinason, 19 ára
gamall sveitastrákur úr Bárðardal,
sem hafði varla snert körfubolta
fyrir þremur og hálfu ári er nú á
leið með landsliðinu í lokakeppni
Evrópumótsins í Finnlandi, er
búinn að semja við Spánarmeist
ara Valencia um að leika sem at
vinnumaður með liðinu næstu
ár og taldar eru verulegar líkur á
að hann verði valin í NBAnýliða
valinu á næsta ári og verði þar
með aðeins annar Íslendingurinn
í sögunni til að spila í langsterku
stu körfuknattleiksdeild í heimi.
„Sagan mín er sérstök, það er
líklega alveg rétt,“ segir bónda
sonurinn úr Bárðardalnum, sem
„fannst úti í hlöðu og fór í at
vinnumennskuna“, í viðtali við
DV.
Svartárkot fallegasti
staður landsins
Tryggvi er alinn upp í Svartár
koti í Bárðardal, fallegasta stað
á landinu að hans sögn. Svartár
kot er innsti bær í dalnum, í um
400 metra hæð yfir sjávarmáli,
og langur vegur að fara í næsta
þéttbýli. „Fjölskyldan mín býr
þar með um 450 vetrarfóðraðar
kindur en stundar alls konar aðra
vinnu samhliða búskapnum.
Fyrir utan þessi hefðbundnu
sveitastörf rekur fjölskyldan mín
gistiheimili í dalnum, Kiðagil,
og svo tínist ýmislegt til, önnur
ferðaþjónusta og þjónusta við
rannsóknir til dæmis.“
Tryggvi segir að uppvöxturinn
í Svartárkoti hafi verið ljúfur, það
hafi verið forréttindi að alast
upp í sveit. „Ég gekk auðvitað til
allra verka með foreldrum mín
um, í gegningar, heyskap, smala
mennsku og svo framvegis, ég tók
þátt í þessu öllu eins og flest börn
til sveita gera nú. Ég er heimakær
og stoltur af minni sveit, þar líður
mér vel.“
Hafði aldrei æft íþróttir
Tryggvi gekk í grunnskólann á
StóruTjörnum og þurfti að fara
með skólabíl um klukkutíma
leið til að komast þangað.
Hann segist hafa verið orðinn
mjög fær í að sofa báðar leið
irnar. Tryggvi segir að hann
búi að því að hafa unnið
heima við og hreyft sig
alla tíð í sveitastörfunum.
Hann stundaði íþróttir í
skólanum en ekki með
skipulögðum hætti. „Ég
æfði aldrei körfubolta þótt
ég hafi kannski skotið eitt
hvað smá á körfu í íþrótta
tímum. Ég hafði því aldrei æft
skipulega neina íþróttagrein
þegar ég flutti til Akureyrar og
hóf námið. Ég fylgdist ekki einu
sinni neitt sérstaklega með körfu
bolta, ég fylgdist með landsliðun
um þegar verið var að sýna leiki
í sjónvarpinu og helst handbolt
anum.“
„Held ég sé hættur núna“
Tryggvi er 216 sentimetrar á hæð
og hefur alla tíð verið stór. Spurð
ur hvort það hafi verið erfitt að
vera svona hávaxinn unglingur,
og þá ekki síst varðandi það að
fá föt sem pössuðu, gefur Tryggvi
lítið fyrir það. Það hafi alltaf redd
ast og núna á seinni árum sé
orðið auðvelt að panta af netinu.
Hann segist alltaf hafa verið há
vaxinn og vaxið jafnt og þétt. „Ég
var alltaf aðeins hærri en hin
ir strákarnir en þeir hættu að
vaxa og ég hélt áfram. Ég held nú
samt að ég sé hættur núna,“ segir
Tryggvi glottandi um alla sína 216
sentimetra.
Kemur vel til greina
að verða bóndi
Tryggvi fór að loknum
grunnskóla til náms við
Verkmenntaskólann á
Akureyri og útskrifaðist
þaðan sem rafvirki
auk stúdents prófs
síðasta vor. Tryggvi
segir að partur af
ástæðunni fyrir því
að hann valdi raf
virkjann hafi ver
ið að það nám
myndi nýtast
vel í sveitinni
heima í Svart
árkoti. „Það
var partur
af því, já.
Pabbi er
svona
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is „Ég horfði
á þessa
stráka þá og
hugsaði með
mér: Þetta
ætla ég að
gera, ég ætla á
Evrópumótið.
sem fannst úti í hlöðu
n Sveitastrákurinn sem hafði aldrei snert körfubolta orðinn atvinnumaður
n Talið líklegt að Tryggvi Snær verði valinn í NBA n Ætlaði að verða bóndi
Stjarnan
m
y
n
d
iR
þ
o
R
m
a
R
v
ig
n
iR