Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 11
Helgarblað 25. ágúst 2017 fréttir 11 „Bankahrunið“ innan gæsalappa 4. Þáttur VERNDARENGLARNIR 7. Þáttur EFTIR Á AÐ HYGGJA 5. Þáttur „HRUNIГ 6. Þáttur EkkI BENDA Á mIG „Eftirlitið átti bara að vera þarna, en það átti náttúrlega bara helst að vera lítið og sætt og sinna bara svona einhverjum lykilverkefnum.“ - Jónas Fr. Jónsson, fyrrv. forstjóri FME fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „Bara þarna alveg fram, þangað til seint í september að þá bara var maður alveg grandalaus fyrir því að það væri bara allt að hrynja, það mundi vera hrunið bara nokkrum vikum seinna.“ - Ragnar Hafliðason, fyrrv. aðstoðarforstjóri FME, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „Samráðshópur þessi var á forræði forsætis- ráðherra og málefni fjármálakerfisins á forræði annarra ráðuneyta, og stofnana þeirra, þ.e. Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitisins, eins og áður segir, en ekki fjármálaráðuneyt- isins. Því var ekki tilefni fyrir mig til þess að taka málefni [samráðshópsins] upp við aðra ráðherra án sérstakrar ástæðu.“ - Árni M. Mathiesen, fyrrv. fjármálaráðherra, í bréf til rannsóknarnefndar Alþingis 2010. „Eins og ég hef sagt áður, lausafjár- eftirlitið er hjá Seðlabankanum [...].“ - Jónas Fr. Jónsson, fyrrv. forstjóri FME, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „ ... the Icelandic government, believe it or not, have told us, they told me yesterday, they have no intention of honouring their obligations here.“ - Alistair Darling, 8. október 2008 á BBC Radio 4. „Sigurjón [Árnason] er nú mikill stærð- fræðingur og teiknaði upp fyrir mig einhver box sem ég skildi nú ekki helminginn af hvernig ætti að með pílum og örum að sem sagt ná í pening út úr Seðlabanka Evrópu.“ - Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „Það er nú eitt sem maður saknar svolítið, mér finnst að við hefðum getað gert meira, við Íslendingar, á þessu blómaskeiði okkar. Það ætti að liggja meira eftir okkur, stór verk.“ - Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrv. forstjóri Kaup- þings, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „Og þegar að þessum ólgusjó linnir, af því að auðvitað linnir öllum slíkum fárviðrum fyrr eða síðar, þá mun þessi banki standa vel og þá geri ég ráð fyrir því að ríkið muni losa sig við sinn eignarhlut og þá geri ég ráð fyrir því að ríkið, og þar með skattborgararnir munu hagnast á öllu saman.“ - Davíð Oddsson í viðtali við fréttastofu RÚV 29. september 2008. „Teningunum er kastað“ - Davíð Oddsson, 30. september 2008, (að sögn Jónínu S. Lárusdóttur í skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis). „[...] hafna ég því eindregið að hafa sýnt vanrækslu vegna þeirra atriða sem [...] annars vegar lúta að því að hafa ekki tekið málefni bankanna til formlegrar umræðu innan ríkis- stjórnar og hins vegar að því að hafa ekki með formlegum hætti lagt mat á fjárhagslega áhættu íslenska ríkisins vegna starfsemi fjármálafyrirtækja hér á landi. Hvorugt framan- greindra atriða getur fallið undir starfsskyldur mínar [...]“ - Björgvin G. Sigurðsson, fyrrv. viðskiptaráðherra, í bréfi til rannsóknarnefndar Alþingis 2010. „Af öllu framansögðu er ljóst, að eftirlits- skylda með bönkum og öðrum fjármálafyr- irtækjum hvílir afdráttarlaust hjá Fjármála- eftirlitinu en ekki Seðlabanka Íslands.“ - Davíð Oddsson, fyrrv. Seðlabankastjóri, í bréfi til rannsóknarnefndar Alþingis 2010. „[Þ]ú gerir yfirleitt ráð fyrir því að fólk sé svona sæmilega heiðarlegt, sérstaklega fólk sem velst í svona stöður, er að reka svona fyriræki, hefur starfsleyfi, þú átt í sjálfu sér von á því að svona það sé í grunninn allavega heiðarlegt.“ - Jónas Fr. Jónsson, fyrrv. forstjóri FME, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „Okkar stærsta sök er að vera hluti af íslensku samfélagi sem trúði þessu og var í ákveðnu meðvitundarleysi.“ - Jón Kaldal, fyrrv. ritstjóri Fréttablaðsins, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „Menn [voru] farnir að velta því fyrir sér að al- þjóðasamfélagið, [...] hefði verið búið að ákveða það að við færum á hausinn. Hingað kom maður, sem var [hagfræðingur hjá] BIS [...] mjög merki- legur maður og hafði oft verið á undan öðrum að sjá hluti. Hann borðaði hérna með okkur eitt kvöldið í júlí [2008] [...]. Þá sagði hann: Það er búið að ákveða að einn stór banki verður látinn fara á hausinn, það verða Lehman-bræður, og síðan eitt land, og það verðið þið. [...] Ég verð að viðurkenna að þegar Lehmans-bræður fóru á hausinn komu þessi ummæli upp í hugann.“ - Davíð Oddsson, fyrrv. seðlabankastjóri, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „[...] ef að það er þannig að þessir menn sem að skrifuðu upp á reikninga bankanna hafi verið í algerri þoku um hvað væri hér að gerast í íslenskum bankaheimi þar til í október 2008, að þá nátt- úrulega voru þeir ekki að vinna vinnuna sína, það er svo einfalt [...].“ - Stefán Svavarsson, fyrrv. aðalendurskoðandi Seðlabankans, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „En vandinn var sá [...] hvað átti að gera? Hvaða úrræði hafði ríkið? Ef við gefum okkur það að við höfum vitað það þarna eða í ársbyrjun 2008 að þetta myndi allt fara til andskotans, hvað áttum við að gera? Það voru engin úrræði [...].“ - Indriði, afsakið Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráð- herra, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009. „Þetta er stærsta bankarán Íslandssögunnar og augljóslega hluti af stærri átökum sem hafa ekki farið framhjá neinum.“ - Jón Ásgeir Jóhannesson, 30. september 2008. „Ég meina, ég stóð allsber í búningsklefanum í World Class, var að fara í gufubað á sunnudegi og var að halda mér sérstaklega til því að ég var í fyrsta skipti á ævinni að fara til klæðskera. Og leit á símann minn í fötunum áður en ég fór í gufuna og þá sá ég bara að þar voru ógeðslega mörg símtöl og sms frá Einari Karli sem var staddur í Glasgow og sagði að það væru allir að leita að mér, það væri einhver krísa og ég yrði að hringja í Ingibjörgu Sólrúnu þannig að ég klæddi mig og hringi í hana. Þá sagði hún mér það að ég ætti að fara niður í Glitni og það væri krísa þar og hún sagði mér hvað væri um að ræða, Glitnir væri að fara niður. Hún sagði mér af tillögunni sem lægi fyrir, ég man ekki betur, 75 prósentunum, og ég sagði við hana: Bíddu, á ég að fara þarna? Ég meina, [ég hef] hvorki áhuga né vit á þessu, ...“ - Össur Skarphéðinsson, fyrrv. iðnaðarráðherra, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 2009.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.