Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 31
Splunkuný og fáheyrð lög í boði Nýjasta plata Bubba, Túngumál, kom út þann 6. júní síðastliðinn á 61. afmælisdegi hans. Útgáfutónleikarnir fóru fram í Bæjarbíói, í Hafnarfirði þann 17. ágúst síð- astliðinn og var gerður góður rómur að þeim. Á tónleik- unum mátti heyra ný lög frá Bubba ásamt lögum sem fáheyrð eru á tónleikum hans. Á Túngumál leggur Bubbi áherslu á að hafa hljóðfæra-skipan og flutning eins líf- rænan og kostur er, fáir hljóðgervlar eða ónáttúruleg hjálpartól koma við sögu og sér Bubbi sjálfur um allan gítarleik sem hljóðritaður var. Í viðtali við DV í júní þegar Túngumál kom út hafði Bubbi þetta að segja um hver kveikjan að diskn- um hefði verið: „Þegar ég var ungur maður kynnti elsti bróðir minn, sem nú er látinn, fyrir mér tónlist frá Chile. Þá, í kringum 16–17 ára aldur, fór ég að hlusta á tónlist frá Mið- og Suður-Ameríku. Síðan hef ég alltaf sótt dálítið í þessa tónlist. Þegar ég fór að spekúlera í að gera þessa plötu þá hugsaði ég með mér að það væri gaman að vinna með áhrifin frá Suður-Ameríku, en ekki sem eftiröpun heldur miklu fremur að bræða saman áhrifin í sköpun sem yrði minn hljóðheimur og mín sýn á þessi áhrif. Þetta er kveikjan að þessari plötu, Túngumál.“ Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2, mætti á tónleikana og lét mjög vel af þeim á eftir. „Bubbi var góður, spilaði alla nýju plötuna Túngumál og önnur vel valin lög eins og Love Will Tear Us Apart sem var frábært og önnur sem komu flest á óvart. Hann endaði á Stál og hníf í latin-útgáfu sem var mjög skemmtileg og það var eini „slagari“ kvöldsins. Bandið var frábært, sándið var frábært og allt til fyrirmyndar. Ég tek ofan fyrir Bubba að mæta aðdáendum sínum með rúmum tveimur tímum af splunkunýjum og/eða fáheyrðum lögum,“ sagði Ólafur Páll. „Fyrst og fremst held ég að þetta sé afar heiðarleg plata og laus við stæla. Kannski má segja að tónlistarlega séð sé hún afskaplega rómantísk þótt textarnir séu margir áleitnir og fjalli um óþægilega hluti eins og í laginu Bak við járnaðan himin þar sem ég syng um flótta- fólkið okkar,“ segir Bubbi. Nýtt túNgumál BuBBa í BæjarBíói Einlægur á sviðinu Bubbi sló í gegn á tónleik- unum þar sem að hann tók bæði ný lög og lög sem heyrast sjaldan á tónleikum hans. Elsta dóttirin Gréta Morthens, elsta dóttir Bubba, og Viktor, vinur hennar. tvEir góðir félagar Benedikt Friðbjörnsson og útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson. gEðþEkkur og góður Guðmundur Pétursson, einn af okkar fremstu gítarleikurum. spEnntar fyrir tónlEika Vinkonurnar Hildur og Kolbrún hlakkaði mikið til. ríkur af konum Bubbi er ríkur af konum í sínu lífi. Eiginkonan, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, og dætur hennar og Bubba, Aþena Lind og Dögun París og dóttir Hrafnhildar, Ísabella Ósk Jónsdóttir. afmælistónlEikar Systurnar Aðalheiður og Kolbrún, sem átti afmæli þennan dag og Aðalheiður bauð henni á tónleikana. BuBBi Baksviðs Bubbi stillir gítarinn áður en stigið er á svið. á fjölda Bóka mEð Eiginhandaráritunum Keli hefur í mörg ár safnað eiginhandaráritunum tónlistarmanna í bók og þannig haldið utan um þá tónleika sem hann hefur farið á. Bækurnar skipta orðið nokkrum tugum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.