Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Qupperneq 31
Splunkuný og fáheyrð lög í boði
Nýjasta plata Bubba, Túngumál, kom út þann 6. júní
síðastliðinn á 61. afmælisdegi hans. Útgáfutónleikarnir
fóru fram í Bæjarbíói, í Hafnarfirði þann 17. ágúst síð-
astliðinn og var gerður góður rómur að þeim. Á tónleik-
unum mátti heyra ný lög frá Bubba ásamt lögum sem
fáheyrð eru á tónleikum hans.
Á Túngumál leggur Bubbi áherslu á að hafa hljóðfæra-skipan og flutning eins líf-
rænan og kostur er, fáir hljóðgervlar
eða ónáttúruleg hjálpartól koma við
sögu og sér Bubbi sjálfur um allan
gítarleik sem hljóðritaður var.
Í viðtali við DV í júní þegar
Túngumál kom út hafði Bubbi þetta
að segja um hver kveikjan að diskn-
um hefði verið: „Þegar ég var ungur
maður kynnti elsti bróðir minn,
sem nú er látinn, fyrir mér tónlist
frá Chile. Þá, í kringum 16–17 ára
aldur, fór ég að hlusta á tónlist frá
Mið- og Suður-Ameríku. Síðan hef
ég alltaf sótt dálítið í þessa tónlist.
Þegar ég fór að spekúlera í að gera
þessa plötu þá hugsaði ég með mér
að það væri gaman að vinna með
áhrifin frá Suður-Ameríku, en ekki
sem eftiröpun heldur miklu fremur
að bræða saman áhrifin í sköpun
sem yrði minn hljóðheimur og mín
sýn á þessi áhrif. Þetta er kveikjan
að þessari plötu, Túngumál.“
Ólafur Páll Gunnarsson,
útvarpsmaður á Rás 2, mætti á
tónleikana og lét mjög vel af þeim á
eftir. „Bubbi var góður, spilaði alla
nýju plötuna Túngumál og önnur
vel valin lög eins og Love Will
Tear Us Apart sem var frábært og
önnur sem komu flest á óvart. Hann
endaði á Stál og hníf í latin-útgáfu
sem var mjög skemmtileg og það
var eini „slagari“ kvöldsins. Bandið
var frábært, sándið var frábært og
allt til fyrirmyndar. Ég tek ofan fyrir
Bubba að mæta aðdáendum sínum
með rúmum tveimur tímum af
splunkunýjum og/eða fáheyrðum
lögum,“ sagði Ólafur Páll.
„Fyrst og fremst held ég að
þetta sé afar heiðarleg plata og laus
við stæla. Kannski má segja að
tónlistarlega séð sé hún afskaplega
rómantísk þótt textarnir séu margir
áleitnir og fjalli um óþægilega hluti
eins og í laginu Bak við járnaðan
himin þar sem ég syng um flótta-
fólkið okkar,“ segir Bubbi.
Nýtt túNgumál BuBBa í BæjarBíói
Einlægur á sviðinu
Bubbi sló í gegn á tónleik-
unum þar sem að hann tók
bæði ný lög og lög sem
heyrast sjaldan á tónleikum
hans.
Elsta dóttirin Gréta Morthens, elsta dóttir Bubba, og
Viktor, vinur hennar.
tvEir góðir félagar
Benedikt Friðbjörnsson og
útvarpsmaðurinn Ólafur
Páll Gunnarsson.
gEðþEkkur og góður Guðmundur Pétursson, einn
af okkar fremstu gítarleikurum.
spEnntar fyrir tónlEika
Vinkonurnar Hildur og Kolbrún
hlakkaði mikið til.
ríkur af konum Bubbi er ríkur af konum í sínu lífi. Eiginkonan, Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir, og dætur hennar og Bubba, Aþena Lind og Dögun París og
dóttir Hrafnhildar, Ísabella Ósk Jónsdóttir.
afmælistónlEikar Systurnar Aðalheiður og Kolbrún, sem átti
afmæli þennan dag og Aðalheiður bauð henni á tónleikana.
BuBBi Baksviðs Bubbi stillir
gítarinn áður en stigið er á svið.
á fjölda Bóka mEð Eiginhandaráritunum Keli hefur í
mörg ár safnað eiginhandaráritunum tónlistarmanna í bók og þannig
haldið utan um þá tónleika sem hann hefur farið á. Bækurnar skipta
orðið nokkrum tugum.