Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 26
Ég hef mjög gaman af að taka alls konar próf á netinu, allt frá þessum fáránlega einföldu
skrýtnu, eins og til dæmis „hversu
gömul ertu í alvöru?“ (ég er með
fæðingarvottorð og Íslendingabók
sem staðfestir það, samt tek ég
prófið), yfir í alvöru próf sem krefjast
tíma og athygli, eins og til dæmis
greindarvísitölupróf eða Myers-Briggs
persónuleikaprófið. En fyrir nokkru
rakst ég á mjög áhugavert próf sem
ég gaf mér bessaleyfi til að þýða og ég
vona að þér finnist það jafn gagnlegt
og áhugavert og mér.
1) Nefndu 5 ríkustu menn í heimi.
2) Nefndu síðustu 5 sigurvegara Ung-
frú Heimur.
3) Nefndu 10 einstaklinga sem hafa
unnið Nóbels- eða Pulitzer verð-
laun.
4) Nefndu síðustu 6 Óskarsverðlauna-
hafa fyrir aðalhlutverk karla og
kvenna.
5) Nefndu 10 einstaklinga sem
hafa unnið til gullverðlauna á
Ólympíuleikum síðasta áratug.
Hversu mörg svör eru rétt hjá þér?
Hversu hátt skoraðir þú á prófinu?
Niðurstaðan er sú að mörg
okkar muna ekki eftir sigurvegurum
gærdagsins. Einstaklingarnir sem
eiga sætin hér að ofan eru samt engir
aukvisar. Þau eru þau bestu hvert á
sínu sviði. En fagnaðarlátum linnir.
Árangur, verðlaun og viðurkenningar
gleymast oft um leið og handhafi
þeirra.
Tökum annað próf og sjáum
hversu vel þér gengur í því:
1) Nefndu nokkra kennara sem höfðu
áhrif á þig á þinni skólagöngu.
2) Nefndu 3 vini sem hafa hjálpað þér
á erfiðum tímum.
3) Nefndu 3 einstaklinga sem hafa
kennt þér eitthvað gagnlegt.
4) Nefndu nokkra einstaklinga sem
hafa fengið þig til að líða vel og
finnast þú einhvers virði.
5) Hugsaðu um 3 einstaklinga sem þér
finnst gaman að verja tíma með.
6) Nefndu nokkra einstaklinga sem
eiga sögu að baki sem hefur hvatt
þig til dáða.
Var seinna prófið auðveldara?
Lærdómurinn: Fólkið sem hefur
áhrif í lífi þínu er ekki fólkið með
stærstu viðurkenningarnar, með
mestu fjármunina eða flest verðlaun-
in. Heldur einfaldlega fólkið sem er
annt um þig.
Kveðja Ragna
ragna@dv.is
Persónuleikapróf:
Hversu mörg nöfn
ertu með rétt?
Geir & AdriAnA
í hjónAbAnd
Kannski er ég gamaldags, en ég trúi á hjónabandið,“ segir Geir einlægur. „Mér
finnst það líka skipta miklu máli
fyrir dóttur okkar að foreldrar
hennar séu giftir. Það veitir líka
ákveðið öryggi, Adriana ferðast
mikið erlendis.“
Geir bar upp bónorðið við
Gróttu árið 2013 þegar þau trú-
lofuðu sig, en parið kynntist árið
2009. „Það hefur verið til marks
um herramennsku að maðurinn
biðji konuna um að heitbindast
sér og Adriana er kaþólsk og þar
ber karlmaðurinn upp bónorðið,“
segir Geir. „Í sambandi okkar og á
heimili ríkir gagnkvæm virðing og
vinátta, þó að við höfum haft þann
hátt á að ég bæri upp bónorðið, en
ekki hún.“
Veðrið lék við hjónin á brúð-
kaupsdeginum og segir Geir að
dagurinn hafi tekist vel og verði
lengi í hávegum hafður. Í kirkj-
unni sungu Ingólfur „veðurguð“
Þórarinsson og Kristján Jóhanns-
son. Ingó söng lagið Wonder of you
sem Elvis Presley gerði vinsælt á
sínum tíma og Kristján söng Ave
Maria. „Það var mikill heiður að
fá þá báða, þeir eru ólíkir en báðir
einstaklega hæfileikaríkir. Ingó
söng án hljóðnema við undirleik
Þóris Baldurssonar og hann hefur
alveg þrusurödd.“
Þegar brúðhjónin gengu úr
kirkjunni ómaði lagið For Once
In My Life með Michael Bublé.
„Adriana var búin að óska eftir því
lagi, en átti síðan frekar von á að
Sinatra myndi hljóma.“
Brúðkaupsferð bíður aðeins
betri tíma. Adriana og dóttirin
Anna Rós eru farnar til Kólumbíu,
meðan Geir fer í að undirbúa
næstu verkefni. „Þær verða úti í tvo
mánuði, svo fer ég út til þeirra og
kem með litlu heim í lok október
og fer þá að undirbúa jólatónleik-
ana mína, The Las Vegas Christmas
Show, sem verða í Gamla bíói 8.
desember næstkomandi.“
Um er að ræða stórtónleika,
þar sem verður kvöldverður og
sýning, að hætti Las Vegas. Uppselt
var á sýninguna í fyrra. „Strax
eftir sýninguna í fyrra, fórum við
yfir hvernig til tókst og ákváðum
þá næstu,“ segir Geir. Með Geir í
sýningunni verður stórsveit frá Las
Vegas og íslenskir söngvarar, bæði
þekktir og aðrir, sem munu stíga
sín fyrstu spor í sýningunni.
„Með hljómsveitinni munu sjást
hlutir sem hafa ekki sést áður hér
á landi, innanborðs eru hljóðfæra-
leikarar sem hafa spilað með
mörgum af þekktustu söngvurum
heims, eins og Celine Dion og
Barbra Streisand. Don Randi er
líklega búinn að spila með stærstu
stjörnum Bandaríkjanna. Ég get
boðið fólki upp á gæði á heimsvísu
og mér finnst það mjög gaman. Við
munum endurlífga Elvis Presley,
en hann býr á Íslandi og kemur og
syngur,“ segir Geir og brosir.
Guðrún Árný og Ingó veðurguð
munu koma fram og einnig koma
fram ungir söngvarar sem ekki hafa
komið fram áður. „Fyrir 15–20
árum þá hefði ég sjálfur viljað eiga
sama tækifæri. Með þessu er ég að
setja mig í spor unga fólksins og
gefa því tækifæri. Ef allt gengur að
óskum og tónleikarnir verða árleg-
ir, þá er stefnan að gefa alltaf ungu
tónlistarfólki tækifæri til að koma
fram. Ég myndi segja að það vanti
aðeins meiri kærleika í samfélagið,
maður er bara að stækka flóruna
með því að gefa öðrum tækifæri, ef
menn halda að þeir eigi bransann
þá verða þeir bara hrokafullir og
gleyma að það er fólkið sem skiptir
máli.“
Geir segir mikilvægt að gleyma
sér ekki. „Ég á góða konu og yndis-
legt barn, en það er mikilvægt að
vera þakklátur fyrir það sem maður
hefur og vakandi yfir því sem
maður er að gera. Hver hæfileiki
er guðs gjöf og svo er það okkar
mannanna að greiða leið fyrir aðra
og skoða hvað maður er að gera.
Það er svo gaman að samgleðjast
öðrum fyrir hæfileika þeirra. Mað-
ur er líka að ýta undir að viðkom-
andi líði betur. Maður þarf alltaf að
ná því besta úr fólki og það gerir
maður með því að bera virðingu
fyrir fólki,“ segir Geir Ólafsson,
nýkvæntur og hamingjusamur og
byrjaður að hugsa til jóla.
Það var glatt á hjalla og
skemmtileg atriði í brúðkaups-
veislunni. Geir söng sjálfur nokkur
lög og Furstarnir, hljómsveit hans,
spilaði og söng. „Már Gunnarsson
Söngvarinn Geir Ólafsson og markaðsfræðingurinn
Adriana Patricia Sánchez Krieger gengu í hjónaband
sunnudaginn 20. ágúst síðastliðinn. Athöfnin fór fram
í Bústaðakirkju og gaf séra Pálmi Matthíasson þau
saman. Síðan var haldið í Petersen-svítuna í Gamla
bíói, þar sem gestir nutu veitinga og skemmtiatriða.
Gleði og góðir gestir
í Petersen-svítunni