Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Page 26
Ég hef mjög gaman af að taka alls konar próf á netinu, allt frá þessum fáránlega einföldu skrýtnu, eins og til dæmis „hversu gömul ertu í alvöru?“ (ég er með fæðingarvottorð og Íslendingabók sem staðfestir það, samt tek ég prófið), yfir í alvöru próf sem krefjast tíma og athygli, eins og til dæmis greindarvísitölupróf eða Myers-Briggs persónuleikaprófið. En fyrir nokkru rakst ég á mjög áhugavert próf sem ég gaf mér bessaleyfi til að þýða og ég vona að þér finnist það jafn gagnlegt og áhugavert og mér. 1) Nefndu 5 ríkustu menn í heimi. 2) Nefndu síðustu 5 sigurvegara Ung- frú Heimur. 3) Nefndu 10 einstaklinga sem hafa unnið Nóbels- eða Pulitzer verð- laun. 4) Nefndu síðustu 6 Óskarsverðlauna- hafa fyrir aðalhlutverk karla og kvenna. 5) Nefndu 10 einstaklinga sem hafa unnið til gullverðlauna á Ólympíuleikum síðasta áratug. Hversu mörg svör eru rétt hjá þér? Hversu hátt skoraðir þú á prófinu? Niðurstaðan er sú að mörg okkar muna ekki eftir sigurvegurum gærdagsins. Einstaklingarnir sem eiga sætin hér að ofan eru samt engir aukvisar. Þau eru þau bestu hvert á sínu sviði. En fagnaðarlátum linnir. Árangur, verðlaun og viðurkenningar gleymast oft um leið og handhafi þeirra. Tökum annað próf og sjáum hversu vel þér gengur í því: 1) Nefndu nokkra kennara sem höfðu áhrif á þig á þinni skólagöngu. 2) Nefndu 3 vini sem hafa hjálpað þér á erfiðum tímum. 3) Nefndu 3 einstaklinga sem hafa kennt þér eitthvað gagnlegt. 4) Nefndu nokkra einstaklinga sem hafa fengið þig til að líða vel og finnast þú einhvers virði. 5) Hugsaðu um 3 einstaklinga sem þér finnst gaman að verja tíma með. 6) Nefndu nokkra einstaklinga sem eiga sögu að baki sem hefur hvatt þig til dáða. Var seinna prófið auðveldara? Lærdómurinn: Fólkið sem hefur áhrif í lífi þínu er ekki fólkið með stærstu viðurkenningarnar, með mestu fjármunina eða flest verðlaun- in. Heldur einfaldlega fólkið sem er annt um þig. Kveðja Ragna ragna@dv.is Persónuleikapróf: Hversu mörg nöfn ertu með rétt? Geir & AdriAnA í hjónAbAnd Kannski er ég gamaldags, en ég trúi á hjónabandið,“ segir Geir einlægur. „Mér finnst það líka skipta miklu máli fyrir dóttur okkar að foreldrar hennar séu giftir. Það veitir líka ákveðið öryggi, Adriana ferðast mikið erlendis.“ Geir bar upp bónorðið við Gróttu árið 2013 þegar þau trú- lofuðu sig, en parið kynntist árið 2009. „Það hefur verið til marks um herramennsku að maðurinn biðji konuna um að heitbindast sér og Adriana er kaþólsk og þar ber karlmaðurinn upp bónorðið,“ segir Geir. „Í sambandi okkar og á heimili ríkir gagnkvæm virðing og vinátta, þó að við höfum haft þann hátt á að ég bæri upp bónorðið, en ekki hún.“ Veðrið lék við hjónin á brúð- kaupsdeginum og segir Geir að dagurinn hafi tekist vel og verði lengi í hávegum hafður. Í kirkj- unni sungu Ingólfur „veðurguð“ Þórarinsson og Kristján Jóhanns- son. Ingó söng lagið Wonder of you sem Elvis Presley gerði vinsælt á sínum tíma og Kristján söng Ave Maria. „Það var mikill heiður að fá þá báða, þeir eru ólíkir en báðir einstaklega hæfileikaríkir. Ingó söng án hljóðnema við undirleik Þóris Baldurssonar og hann hefur alveg þrusurödd.“ Þegar brúðhjónin gengu úr kirkjunni ómaði lagið For Once In My Life með Michael Bublé. „Adriana var búin að óska eftir því lagi, en átti síðan frekar von á að Sinatra myndi hljóma.“ Brúðkaupsferð bíður aðeins betri tíma. Adriana og dóttirin Anna Rós eru farnar til Kólumbíu, meðan Geir fer í að undirbúa næstu verkefni. „Þær verða úti í tvo mánuði, svo fer ég út til þeirra og kem með litlu heim í lok október og fer þá að undirbúa jólatónleik- ana mína, The Las Vegas Christmas Show, sem verða í Gamla bíói 8. desember næstkomandi.“ Um er að ræða stórtónleika, þar sem verður kvöldverður og sýning, að hætti Las Vegas. Uppselt var á sýninguna í fyrra. „Strax eftir sýninguna í fyrra, fórum við yfir hvernig til tókst og ákváðum þá næstu,“ segir Geir. Með Geir í sýningunni verður stórsveit frá Las Vegas og íslenskir söngvarar, bæði þekktir og aðrir, sem munu stíga sín fyrstu spor í sýningunni. „Með hljómsveitinni munu sjást hlutir sem hafa ekki sést áður hér á landi, innanborðs eru hljóðfæra- leikarar sem hafa spilað með mörgum af þekktustu söngvurum heims, eins og Celine Dion og Barbra Streisand. Don Randi er líklega búinn að spila með stærstu stjörnum Bandaríkjanna. Ég get boðið fólki upp á gæði á heimsvísu og mér finnst það mjög gaman. Við munum endurlífga Elvis Presley, en hann býr á Íslandi og kemur og syngur,“ segir Geir og brosir. Guðrún Árný og Ingó veðurguð munu koma fram og einnig koma fram ungir söngvarar sem ekki hafa komið fram áður. „Fyrir 15–20 árum þá hefði ég sjálfur viljað eiga sama tækifæri. Með þessu er ég að setja mig í spor unga fólksins og gefa því tækifæri. Ef allt gengur að óskum og tónleikarnir verða árleg- ir, þá er stefnan að gefa alltaf ungu tónlistarfólki tækifæri til að koma fram. Ég myndi segja að það vanti aðeins meiri kærleika í samfélagið, maður er bara að stækka flóruna með því að gefa öðrum tækifæri, ef menn halda að þeir eigi bransann þá verða þeir bara hrokafullir og gleyma að það er fólkið sem skiptir máli.“ Geir segir mikilvægt að gleyma sér ekki. „Ég á góða konu og yndis- legt barn, en það er mikilvægt að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur og vakandi yfir því sem maður er að gera. Hver hæfileiki er guðs gjöf og svo er það okkar mannanna að greiða leið fyrir aðra og skoða hvað maður er að gera. Það er svo gaman að samgleðjast öðrum fyrir hæfileika þeirra. Mað- ur er líka að ýta undir að viðkom- andi líði betur. Maður þarf alltaf að ná því besta úr fólki og það gerir maður með því að bera virðingu fyrir fólki,“ segir Geir Ólafsson, nýkvæntur og hamingjusamur og byrjaður að hugsa til jóla. Það var glatt á hjalla og skemmtileg atriði í brúðkaups- veislunni. Geir söng sjálfur nokkur lög og Furstarnir, hljómsveit hans, spilaði og söng. „Már Gunnarsson Söngvarinn Geir Ólafsson og markaðsfræðingurinn Adriana Patricia Sánchez Krieger gengu í hjónaband sunnudaginn 20. ágúst síðastliðinn. Athöfnin fór fram í Bústaðakirkju og gaf séra Pálmi Matthíasson þau saman. Síðan var haldið í Petersen-svítuna í Gamla bíói, þar sem gestir nutu veitinga og skemmtiatriða. Gleði og góðir gestir í Petersen-svítunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.