Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 30
LeikgLeðin í fyrirrúmi
Afmælis- og styrktargolfmót Soroptimistasystra á Nesinu
40 ára afmælis- og styrktargolfmót Soroptimistasystra á
Seltjarnarnesi fór fram fyrir stuttu á nesvellinum hjá nes-
klúbbnum á Seltjarnarnesi. yfir 80 konur skemmtu sér
á golfvellinum og var leikgleðin í fyrirrúmi, en þetta var
sjötta styrktargolfmótið sem þær halda.
Golfmótið er ein aðalfjáröflunarleið Soroptimistasystra ásamt happdrætti
á skemmtikvöldi í nóvember
með þeim vinningum sem ekki
ganga út í golfmótinu en Soropt
imistasystur hafa notið góðvildar
fjölmargra fyrirtækja sem styrkja
klúbbinn í góðgerðastarfinu,“ segir
Sjöfn Þórðardóttir, formaður Sor
optimistaklúbbsins, sem einnig var
mótsstjóri golfmótins.
Mótið fór fram í sól og blíðu þar
sem konur spiluðu golf með bros
á vör. Mótið var fullbókað og vel
það þar sem bæta þurfti við hollum
til að koma öllum að enda ávallt
biðlisti eftir að komast að.
Hefð er fyrir því að bjóða
keppendum upp á hressingu þar
sem 5. og 9. teigur á nesinu mætast
í gómsætt heimabakað góðgæti,
drykki og skálað er í freyðivíni sem
ávallt vekur jafn mikla lukku.
„Allar konur ljúka leik á sama
tíma svo það myndast góð og
skemmtileg stemning að móti
loknu þegar allar koma inn eftir
spilið, hressar og glaðar eft
ir skemmtilega útiveru,“ segir
Sjöfn. Boðið var upp á Prosecco í
fordrykk í boði Vífilfells við golf
skálann. Að því loknu var haldið
inn í skálann, þar sem kvöldverður
var snæddur meðan á verðlaunaaf
hendingu stóð.
„Hingað til hefur engin kona
farið heim án verðlauna á mótinu
sem skemmir ekki stemninguna,
en dregið var úr öllum skorkort
um þátttakenda að verðlaunaaf
hendingu lokinni. Einnig voru
dregin úr skorkortum sérstök
afmælisverðlaun sem voru meðal
annars Útsýnisflug með Norður
flugi,“ segir Sjöfn.
Golfkonur skemmtu sér vel á
mótinu.
Margrét Nielsen og
Málfríður Pálsdóttir.
Tvær góðar saman Sjöfn Þórðardóttir, formaður klúbbsins og mótsstjóri golfmótsins, til hægri, ásamt Ragnhildi
Gottskálksdóttur.
Golfkonur skemmtu sér vel á mótinu.
glaTT á hjalla Gullveig Sæmundsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Nýs Lífs, í miðjunni ásamt góðum vinkonum.
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, Áslaug Dóra E
yjólfsdóttir, Eva María Jónsdóttir og Margr
ét Arna
Hlöðversdóttir.