Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 55
KYNNING
Vínylparkett verður
sífellt vinsælla
Harðviðarval, KróKHálsi 4, reyKjavíK
Vegna tækniþróunar síðustu ára og með samstarfi við fram-
leiðendur sem eru fremstir
á sínu sviði getur verslunin
Harðviðarval boðið upp á
vínylparkett og vínylflísar
sem líkir eftir bestu verkum
náttúrunnar.
Mikill vöxtur hefur verið
í sölu á þessari tegund
gólfefna síðastliðin ár, þar
sem mörg af helstu hótel-
um landsins og ýmis önnur
fyrirtæki hafa séð kosti þess
umfram önnur gólfefni. Þeir
kostir sem heilla við þetta
frábæra gólfefni eru mikið
högg- og slitþol auk þess
sem það dempar fótatak.
einnig er efnið mjög vatns-
helt þannig að það má setja
á baðherbergi, forstofu og
eldhús án þess að hafa telj-
andi áhyggjur.
sem dæmi um staði sem
hafa lagt hjá sér vínylefni
frá Harðviðarvali eru Würth
í Norðlingaholti, joe and the
juice, laugavegi og lág-
múla, skuggi hótel, íslands-
banki Norðurturn, Domino's
á selfossi, Tokyo sushi í
Glæsibæ og svo mætti lengi
telja. Gífurleg reynsla er
því komin á vínylparkett og
vínyl flísar á svæðum þar
sem þarf að vanda valið og
velja öflugt og endingargott
gólfefni vegna mikils ágangs.
Þetta frábæra gólfefni er
samt ekki bara hentug lausn
fyrir fyrirtæki í almanna-
rými heldur nýta sífellt fleiri
það á heimilum sínum. sala
vegna íbúðarhúsnæðis
hefur aukist mjög mikið.
sá misskilningur er nokkuð
útbreiddur að vínylefni séu
nýjung á markaðnum sem
verið sé að prófa sig áfram
með en staðreyndin er sú
að komin er góð reynsla á
þetta efni, bæði hér og í
öðrum löndum.
„við erum með eitthvert
mesta úrval landsins af
hágæða vínylparketti og
vínylflísum. við höfum valið
að versla við framleiðendur
sem framleiða öll sín efni í
evrópu, í fullkomnum verk-
smiðjum þar sem gerðar
eru miklar gæðakröfur.
Framleiðendur sem við
kaupum af eru Quick-step í
Belgíu, sem er þekktur fyrir
sitt hágæða harðparkett,
DlW frá Þýskalandi og Ger-
flor frá Frakklandi. Úrvalið
er mikið og bjóðum við upp
á yfir 20 tegundir á lager og
aðra 85 liti til sýnis í sýn-
ingarsal okkar að Krókhálsi
4. við hvetjum fólk til að
skoða þetta framúrskarandi
gólfefni og eru sölusér-
fræðingar okkar meira en
tilbúnir að gefa góð ráð um
val á efni og fleira. Harðvið-
arval hefur, allt frá stofnun
árið 1978, sérhæft sig í
þjónustu við arkitekta, fyrir-
tæki og stofnanir með sölu
á línóleum-dúkum, tepp-
um, teppaflísum, parketti
og hurðum ásamt gólf- og
veggflísum,“ segir einar
andri einarsson rekstrar-
stjóri hjá Harðviðarvali.
Fyrirtækið er til húsa að
Krókhálsi 4, Reykjavík.
Sími er 567-1010.
Opið er virka daga frá kl.
9–18 og laugardaga 11–15.
Sjá nánar vefsíðuna
www.parket.is.