Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 52
28 sakamál Helgarblað 25. ágúst 2017
Níu börN
Níu dauðsföll
n Tinning-hjónin eignuðust átta börn og ættleiddu eitt n Ekkert þeirra náði fimm ára aldri
Þ
að var ekki einleikið hve
erfitt það reyndist Mary
beth Tinning í borginni
Schenectady, í samnefndri
sýslu í Bandaríkjunum, að koma
börnum sínum á legg.
Á þrettán ára tímabili, frá
1972–1985, missti hún níu börn
og úrskurðuðu læknar, í ein
hverjum tilvika, að vöggudauða
væri um að kenna. Einnig var
hjartastopp nefnt til sögunnar og
ýmislegt fleira.
Dauði tveggja barna
Dóttir Marybeth, Jennifer, var
rétt rúmra átta daga gömul þegar
hún dó 3. janúar 1972. Í tilfelli
hennar var skuldinni skellt á
væga heilahimnubólgu og þar
sem stúlkubarnið hafði aldrei
yfir gefið St. Claresjúkrahúsið
eftir fæðingu þótti ekki ástæða
til að beina sjónum að grunsam
legu athæfi.
Innan við þremur vikum síð
ar kom Marybeth með Joseph
yngri, tveggja ára son sinn, á
Ellis sjúkrahúsið í Schenectady.
Rannsókn leiddi ekkert í ljós og
mæðginin voru send heim.
Örfáum klukkustundum síðar
komu þau aftur, en í það skipt
ið var drengurinn allur. Dánar
orsök var sögð veirusýking, en
engin krufning var þó fram
kvæmd til að fá það staðfest með
óyggjandi hætti.
Endurtekið efni
Það er aldrei nema önnur hver
bára stök, eins og einhver sagði,
og einum og hálfum mánuði
síðar, 20. mars, var Marybeth
Tinning enn og aftur komin á
neyðarmóttökuna á Ellissjúkra
húsinu. Var hún með fjögurra
ára dóttur sína, Barböru, og sagði
hana hafa fengið krampaköst.
Læknar vildu halda Barböru
yfir nótt og fylgjast með henni,
en Marybeth mátti ekki heyra
á slíkt minnst. Einhverju síðar
kom hún aftur á sjúkrahúsið, þá
með Barböru meðvitundarlausa.
Við krufningu sást ekkert sem
augljóslega kynni að hafa valdið
dauða stúlkunnar og læknar
sögðu banameinið hjartastopp.
Þegar þarna var komið sögu
stóðu Tinninghjónin uppi barn
laus.
Vöggudauði og lungnabjúgur
Eðli málsins samkvæmt fór
sjúkrahúsheimsóknum Mary
beth fækkandi og fátt um tíðindi
af Tinninghjónunum um skeið.
Á þakkargjörðardaginn 1973
ól Marybeth sveinbarn, afar smá
gert, sem fékk nafnið Timothy.
Þann 10. desember kom hún með
andvana son sinn á sjúkrahús.
Sagðist hún hafa komið að honum
lífvana í vöggunni. Læknar úr
skurðuðu að um vöggudauða
hefði verið að ræða.
Nú varð hlé á barnadauða hjá
Tinninghjónunum enda barn
laus enn og aftur.
Á því varð breyting árið 1975
og 2. september það ár dó sonur
þeirra hjóna, Nathan, fimm
mánaða og úrskurðað að lungna
bjúgur hefði leitt hann til dauða.
Ættleiðing og frekari barneignir
Árið 1978 sóttu Tinninghjónin
um leyfi til að ættleiða barn og í
ágúst það ár fengu þau Michael í
hendur. Þá var Marybeth barns
hafandi og tveimur mánuðum
síðar ól hún sjötta barn þeirra
hjóna, stúlku sem fékk nafnið
Mary Frances.
Mary Frances varð ekki
langrar ævi auðið. Í janúar 1979
kom Marybeth með dóttur sína
á St. Claresjúkrahúsið sem var
gegnt heimili Tinninghjón
anna. Með miklu snarræði tókst
læknum að bjarga lífi stúlkunn
ar. Þar reyndist þó um gálgafrest
að ræða því tveimur mánuðum
síðar birtist Marybeth aftur á
sjúkrahúsinu, þá með Mary
heiladauða í fanginu; hafði að
eigin sögn komið að henni líf
vana í vöggunni. Dánarorsök:
vöggudauði.
Tvö dauðsföll á innan við ári
Það var vart búið að kasta rekun
um þegar Marybeth varð barns
hafandi á ný og í nóvember 1979
fæddist Jonathan. Þess ber að
geta að Michael var þá enn á lífi,
orðinn þrettán mánaða og við
ágæta heilsu.
Í mars 1980 dó Jonathan og
innan við ári síðar, í febrúar
1981, var röðin komin að
Michael. Vottur af lungnabólgu
kom í ljós þegar Michael var
krufinn og þrátt fyrir að læknar
teldu hana ekki nógu mikla til
að vera banvæn var engu öðru
til að dreifa.
Blóð á kodda
Í ágúst 1985 fæddist Tinning
hjónunum dóttir, Tami Lynne, og
í desember það ár dró til tíðinda.
Að sögn Marybeth kom hún að
Tami meðvitundarlausri í vöggu
sinni og var blóð á koddanum.
Læknum á St. Claresjúkra
húsinu tókst ekki að bjarga
lífi stúlkunnar og þrátt fyrir
að þeir teldu um vöggudauða
að ræða höfðu þeir samband
við lögregluna. Rannsókn
lögreglunnar leiddi til hand
töku Marybeth 4. febrúar 1986
og Marybeth játaði að hafa þrýst
kodda yfir vit Tami, sem hefði
verið „erfið og grátið“.
Þrátt fyrir allt og allt var
Mary beth einungis sakfelld fyrir
morð á Tami og fékk fyrir vikið
lífstíðardóm 1. október 1987.
Kæfði grunsemdir
Eiginmaður Marybeth sagði
í blaðaviðtölum að vissu
lega hefðu öðru hverju vaknað
grunsemdir hjá honum í garð
eiginkonunnar. Hann hefði ýtt
þeim til hliðar. „Þú verður að
treysta eiginkonu þinni. Hún
hefur ýmislegt á sinni könnu og
svo lengi sem hún sinnir því, þá
spyrðu engra spurninga,“ sagði
hann.
Marybeth hefur nokkrum sinn
um verið neitað um reynslulausn,
meðal annars í í febrúar 2015. Við
það tækifæri sagði hún: „Ég bara –
ég held að ég hafi ekki haft það sem
til þarf til að vera góð móðir.“ n
„Svo lengi sem
hún sinnir því, þá
spyrðu engra spurninga
„Marybeth
játaði að
hafa þrýst kodda
yfir vit Tami, sem
hefði verið „erfið
og grátið“.
Marybeth
Tinning Var
sakfelld fyrir
eitt morð.
Ásamt eiginmanni
sínum Maður
Marybeth ýtti öllum
grunsemdum frá sér.