Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Síða 52
28 sakamál Helgarblað 25. ágúst 2017 Níu börN Níu dauðsföll n Tinning-hjónin eignuðust átta börn og ættleiddu eitt n Ekkert þeirra náði fimm ára aldri Þ að var ekki einleikið hve erfitt það reyndist Mary­ beth Tinning í borginni Schenectady, í samnefndri sýslu í Bandaríkjunum, að koma börnum sínum á legg. Á þrettán ára tímabili, frá 1972–1985, missti hún níu börn og úrskurðuðu læknar, í ein­ hverjum tilvika, að vöggudauða væri um að kenna. Einnig var hjartastopp nefnt til sögunnar og ýmislegt fleira. Dauði tveggja barna Dóttir Marybeth, Jennifer, var rétt rúmra átta daga gömul þegar hún dó 3. janúar 1972. Í tilfelli hennar var skuldinni skellt á væga heilahimnubólgu og þar sem stúlkubarnið hafði aldrei yfir gefið St. Clare­sjúkrahúsið eftir fæðingu þótti ekki ástæða til að beina sjónum að grunsam­ legu athæfi. Innan við þremur vikum síð­ ar kom Marybeth með Joseph yngri, tveggja ára son sinn, á Ellis­ sjúkrahúsið í Schenectady. Rannsókn leiddi ekkert í ljós og mæðginin voru send heim. Örfáum klukkustundum síðar komu þau aftur, en í það skipt­ ið var drengurinn allur. Dánar­ orsök var sögð veirusýking, en engin krufning var þó fram­ kvæmd til að fá það staðfest með óyggjandi hætti. Endurtekið efni Það er aldrei nema önnur hver bára stök, eins og einhver sagði, og einum og hálfum mánuði síðar, 20. mars, var Marybeth Tinning enn og aftur komin á neyðarmóttökuna á Ellis­sjúkra­ húsinu. Var hún með fjögurra ára dóttur sína, Barböru, og sagði hana hafa fengið krampaköst. Læknar vildu halda Barböru yfir nótt og fylgjast með henni, en Marybeth mátti ekki heyra á slíkt minnst. Einhverju síðar kom hún aftur á sjúkrahúsið, þá með Barböru meðvitundarlausa. Við krufningu sást ekkert sem augljóslega kynni að hafa valdið dauða stúlkunnar og læknar sögðu banameinið hjartastopp. Þegar þarna var komið sögu stóðu Tinning­hjónin uppi barn­ laus. Vöggudauði og lungnabjúgur Eðli málsins samkvæmt fór sjúkrahúsheimsóknum Mary­ beth fækkandi og fátt um tíðindi af Tinning­hjónunum um skeið. Á þakkargjörðardaginn 1973 ól Marybeth sveinbarn, afar smá­ gert, sem fékk nafnið Timothy. Þann 10. desember kom hún með andvana son sinn á sjúkrahús. Sagðist hún hafa komið að honum lífvana í vöggunni. Læknar úr­ skurðuðu að um vöggudauða hefði verið að ræða. Nú varð hlé á barnadauða hjá Tinning­hjónunum enda barn­ laus enn og aftur. Á því varð breyting árið 1975 og 2. september það ár dó sonur þeirra hjóna, Nathan, fimm mánaða og úrskurðað að lungna­ bjúgur hefði leitt hann til dauða. Ættleiðing og frekari barneignir Árið 1978 sóttu Tinning­hjónin um leyfi til að ættleiða barn og í ágúst það ár fengu þau Michael í hendur. Þá var Marybeth barns­ hafandi og tveimur mánuðum síðar ól hún sjötta barn þeirra hjóna, stúlku sem fékk nafnið Mary Frances. Mary Frances varð ekki langrar ævi auðið. Í janúar 1979 kom Marybeth með dóttur sína á St. Clare­sjúkrahúsið sem var gegnt heimili Tinning­hjón­ anna. Með miklu snarræði tókst læknum að bjarga lífi stúlkunn­ ar. Þar reyndist þó um gálgafrest að ræða því tveimur mánuðum síðar birtist Marybeth aftur á sjúkrahúsinu, þá með Mary heiladauða í fanginu; hafði að eigin sögn komið að henni líf­ vana í vöggunni. Dánarorsök: vöggudauði. Tvö dauðsföll á innan við ári Það var vart búið að kasta rekun­ um þegar Marybeth varð barns­ hafandi á ný og í nóvember 1979 fæddist Jonathan. Þess ber að geta að Michael var þá enn á lífi, orðinn þrettán mánaða og við ágæta heilsu. Í mars 1980 dó Jonathan og innan við ári síðar, í febrúar 1981, var röðin komin að Michael. Vottur af lungnabólgu kom í ljós þegar Michael var krufinn og þrátt fyrir að læknar teldu hana ekki nógu mikla til að vera banvæn var engu öðru til að dreifa. Blóð á kodda Í ágúst 1985 fæddist Tinning­ hjónunum dóttir, Tami Lynne, og í desember það ár dró til tíðinda. Að sögn Marybeth kom hún að Tami meðvitundarlausri í vöggu sinni og var blóð á koddanum. Læknum á St. Clare­sjúkra­ húsinu tókst ekki að bjarga lífi stúlkunnar og þrátt fyrir að þeir teldu um vöggudauða að ræða höfðu þeir samband við lögregluna. Rannsókn lögreglunnar leiddi til hand­ töku Marybeth 4. febrúar 1986 og Marybeth játaði að hafa þrýst kodda yfir vit Tami, sem hefði verið „erfið og grátið“. Þrátt fyrir allt og allt var Mary beth einungis sakfelld fyrir morð á Tami og fékk fyrir vikið lífstíðardóm 1. október 1987. Kæfði grunsemdir Eiginmaður Marybeth sagði í blaðaviðtölum að vissu­ lega hefðu öðru hverju vaknað grunsemdir hjá honum í garð eiginkonunnar. Hann hefði ýtt þeim til hliðar. „Þú verður að treysta eiginkonu þinni. Hún hefur ýmislegt á sinni könnu og svo lengi sem hún sinnir því, þá spyrðu engra spurninga,“ sagði hann. Marybeth hefur nokkrum sinn­ um verið neitað um reynslulausn, meðal annars í í febrúar 2015. Við það tækifæri sagði hún: „Ég bara – ég held að ég hafi ekki haft það sem til þarf til að vera góð móðir.“ n „Svo lengi sem hún sinnir því, þá spyrðu engra spurninga „Marybeth játaði að hafa þrýst kodda yfir vit Tami, sem hefði verið „erfið og grátið“. Marybeth Tinning Var sakfelld fyrir eitt morð. Ásamt eiginmanni sínum Maður Marybeth ýtti öllum grunsemdum frá sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.