Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Page 14
14 Helgarblað 25. ágúst 2017fréttir - erlent
S
mábærinn Sparta í Tenn-
essee er lentur í kastljósi
fjölmiðla vegna aðgerða
dómarans Sam Benning-
field. Benningfield, sem sér um
smáglæpi í réttarsal bæjarins,
tók upp á því að bjóða föngum
upp á 30 daga styttingu afplánun-
ar gegn því að þeir myndu gang-
ast undir ófrjósemisaðgerðir.
Málið hefur vakið mikla reiði en
afhjúpar jafnframt skoðanir sem
eiga sér djúpar rætur í Bandaríkj-
unum.
Þurfti ekki að hugsa sig um
Deonna Tollison stóð fyrir fram-
an Benningfield síðastliðið vor.
Hún var háð ópíumskyldum
lyfjum og hafði brotið skilorð.
Sífelld brot og atvinnuleysi voru
ástæðan fyrir því að Benningfield
dæmdi hana til fangelsisvistar
en henni stóð til boða að stytta
vistina gegn því að þiggja ófrjó-
semislyfið Nexplanon.
Tollison þurfti ekki að hugsa
sig tvisvar um. „Ég er einstæð
móðir þriggja fallegra stúlkna og
nýorðin amma. Móðir mín og
systir mín eru fatlaðar. Þær reiða
sig allar á mig vegna þess að ég er
sú eina með ökuskírteini.“
Þegar hún kom í fangelsið voru
þar eyðublöð þar sem fangar gátu
samþykkt aðgerð. Nexplanon-
lyfjameðferð fyrir konur, sem
virkar í fjögur ár, en varanleg
skurðaðgerð fyrir karla. Tollis-
on var ein 30 kvenna sem skráðu
sig og 38 karlar gerðu slíkt hið
sama. Samanlagt 68 fangar af 221
eða um 30 prósent. Nexplanon-
stauturinn, sem er á stærð við
eldspýtu, var settur undir húð á
vinstri upphandlegg Tollison.
Ekki raunverulegt val
Skömmu eftir að Benningfield
bauð upp á þessar aðgerðir fóru
gagnrýnisraddir að heyrast.
Margir stigu fram og fordæmdu
Benningfield, þar á meðal þing-
menn Tennessee-fylkis, ríkissak-
sóknari og aðrir dómarar. Hann
var sagður leika guð og stíga langt
út fyrir hlutverk sitt. Þrýstingur-
inn var slíkur að verkefninu var
hætt eftir aðeins sex vikur og áður
en nokkur karlfangi lagðist undir
hnífinn.
Benningfield sagði: „Við-
brögðin komu mér algjörlega í
opna skjöldu. Öllum var sama
um þetta þangað til mætt var
með myndavélar á svæðið.“ Hann
segist einungis hafa verið að
hugsa um börnin og tryggja að
sem fæst myndu fæðast vanheil
vegna eiturlyfjanotkunar móð-
urinnar. „Ég áttaði mig á því að
margar konurnar sem ég dæmdi
til fangelsisvistar voru þær sömu
og ég tók börnin af þegar ég vann
hjá fjölskylduréttinum, af því að
þær voru háðar eiturlyfjum.“
Hann sagðist ekki hafa viljað
stjórna því hverjir mættu eignast
börn. Föngum hafi einnig verið
boðið að sækja fyrirlestur í fang-
elsinu um áhrif eiturlyfjaneyslu
á fóstur. Fyrir slíka viðveru voru
tveir dagar teknir af afplánun.
Enginn hafi verið þvingaður til
neins.
Alexandra Stern, sérfræðingur
í kynbótum við Michigan-
háskóla, bendir hins vegar á að
fyrir fangana sé þetta ekki frjálst
val. Þeir séu í svo slæmri stöðu
að þeir neyðist til að taka boð-
inu. „Þess vegna eru ófrjósemis-
aðgerðir bannaðar í fangelsum.“
Þrátt fyrir mikla gagnrýni utan
frá þá fékk Benningfield tölu-
verðan stuðning frá bæjarbúum
í Spörtu. Í bænum og sveitinni
þar um kring býr að mestu leyti
hvítt efnalítið fólk, íhaldssamt og
kirkjurækið. Þetta er svæði sem
þrífst á nautgriparækt og verk-
smiðjuiðnaði.
Christopher Sapp, sem
rekur tölvuverslun í bænum, á
fósturdóttur í fangelsi sem tók
þátt í verkefninu. Hann segir:
„Mér finnst þetta ábyrgt af henni.
Fíkn ópíumlyfja er skelfileg á
þessu svæði. Allar fjölskyldur á
svæðinu þekkja þennan vanda.“
Benningfield sýndi þau fjöl-
mörgu stuðningsbréf sem hann
hefur fengið. Eitt þeirra er dæmi-
gert fyrir viðhorf bæjarbúa og í
því stendur „Glæpamenn ættu
ekki að fjölga sér“.
Kynbótahreyfingin
Kynbætur í Bandaríkjunum eiga
sér langa sögu. Einn fyrsti stuðn-
ingsmaðurinn var Alexander
Graham Bell, uppfinningamaður
símans, sem taldi heyrnarleysi
vera arfgengt og vildi því banna
heyrnarlausum að giftast.
Upp úr aldamótunum 1900
börðust margir fyrir kynbótum,
til dæmis prófessorar í virtum
háskólum og Theodore Roose-
velt forseti. Þessi hreyfing byggði
stefnu sína á hugmyndum
Platons og Charles Darwin. Fylki
fóru að lögleiða ófrjósemisað-
gerðir á „óæskilegu fólki“ í stór-
um stíl. Árið 1935 voru slíkar að-
gerðir framkvæmdar í 29 fylkjum,
flestar í Kaliforníu og í Suðurríkj-
unum. Einnig var sumum hóp-
um meinað að giftast, svo sem
þroskaskertum og flogaveikum.
Flestar aðgerðirnar voru
framkvæmdar á geðsjúkrahús-
um, rúmlega 60.000 talsins.
Fangelsi og aðrar refsistofnan-
ir framkvæmdu einnig slíkar
aðgerðir. Dæmi eru um að ung-
lingar allt niður í 14 ára aldur
hafi verið neyddir til að leggjast
undir hnífinn. Aðrir hópar eins
og fangar, fátækt fólk, einstæðar
mæður á velferðarstyrkjum
og samkynhneigðir hafa verið
skotspænir kynbótahreyfingar-
innar í gegnum tíðina.
Kynbætur tengdust einnig
kynþáttahyggju og vildu margir
úr hreyfingunni nota þær á inn-
flytjendur af „óæðri kynstofnum“.
Í upphafi áttunda áratugarins
voru frumbyggjakonur teknar
kerfisbundið úr sambandi. Að-
gerðirnar voru framkvæmd-
ar þegar þær komu í botnlanga-
eða keisarauppskurði og þeim
var aldrei sagt frá þessu. Sumar
fengu ekki læknisaðstoð nema
þær samþykktu ófrjósemisað-
gerð. Einn af helstu stuðnings-
mönnum kynbóta á seinni tím-
um var forsetinn Richard Nixon
en á níunda áratugnum lagðist
þessi siður að mestu leyti af í
Bandaríkjunum.
Aukaverkanir og kæra
Kristi Seibers er ein af þeim sem
þáðu Nexplanon-meðferð í fang-
elsinu í Spörtu. Hún var þá í
fyrsta sinn innan múra, fyrir brot
á skilorði. Seibers, sem er barn-
laus, sagðist einungis hafa hugs-
að um að losna fyrr út. Hún fann
strax fyrir aukaverkunum lyfsins
svo sem krömpum, sýkingu í
leggöngum, þyngdaraukningu og
minni kynhvöt. Þar að auki fékk
hún ekki afsláttinn af dómnum.
Seibers er ein af þeim sem
stefnt hafa yfirvöldum í fangels-
inu í Spörtu fyrir aðgerðirnar, en
16 konur hafa þegar ákveðið að
taka þátt og fleiri munu væntan-
lega bætast í hópinn. Margar
þeirra höfðu aldrei neytt eitur lyfja
og sumar voru komnar af barn-
eignaraldri. Þegar þær vildu losna
við Nexplanon-stautinn var þeim
sagt að það kostaði 250 dollara
eða 60 daga bið.
Deonna Tollison er laus úr
fangelsi núna og sér eftir því að
hafa tekið þátt. „Mér líður eins og
við höfum verið tilraunadýr. Fólk
gerir hvað sem er til að losna úr
fangelsi.“ Þegar hún samþykkti
ófrjósemisaðgerðina þá var hún
ekki að hugsa um eigin líkama
eða rétt sinn til að fjölga sér. Hún
var aðeins að hugsa um þá sem
reiddu sig á viðveru hennar. n
n Boðin styttri fangelsisvist gegn ófrjósemisaðgerð n Kærumál í burðarliðnum
„Glæpamenn ættu
ekki að fjölGa sér“
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is „Fólk
gerir
hvað sem er
til að losna
úr fangelsi
Sam Benningfield „Viðbrögðin komu mér algjörlega í opna skjöldu.“
Deonna Tollison Tók
boðinu en sér eftir því núna.