Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Blaðsíða 18
18 sport Helgarblað 25. ágúst 2017
Einar Karl Ingvarsson
Miðjumaður (Valur)
Einar Karl hefur verið frábær í sumar með
Val og stimplað sig inn sem einn öflugasti
miðjumaður deildarinnar, hann hefur alla
tíð haft mikla hæfileika en ekki blómstrað
almennilega fyrr en í sumar. Fátt bendir til
þess að Einar Karl yfirgefi Val nema tilboð
að utan berist í kappann.
Daníel Laxdal
Varnarmaður (Stjarnan)
Hr. Stjarnan er nafn sem á vel við Daníel
Laxdal og erfitt er að sjá hann fyrir sér í öðru
liði á Íslandi. Hann hefur staðið vaktina í
vörn liðsins í mörg ár. Þrátt fyrir að vera
fæddur árið 1986 er Daníel enn að bæta sig
sem leikmaður og verður hann líklega áfram
í Garðabænum á næstu árum.
Atli Guðnason
Sóknarmaður (FH)
Atli hefur síðasta áratuginn verið einn jafn
besti leikmaður Pepsi-deildarinnar en nú
virðist tankurinn vera að tæmast. Atli, sem
er fæddur árið 1984, skoraði aðeins eitt
mark fyrir FH í Pepsi-deild karla á síðustu
leiktíð og það sem af er sumri hefur hann
bara skorað eitt mark í deildinni. Það er hins
vegar ljóst að Atli yrði eftirsóttur tæki hann
þá ákvörðun að yfirgefa uppeldis félag sitt.
Davíð Þór Viðarsson
Miðjumaður (FH)
Lykilmaður í velgengni FH síðustu ár er
Davíð Þór Viðarsson, leiðtogi liðsins, fæddur
árið 1984 en hann hefur ekki sýnt merki þess
að ferill hans sé á niðurleið. Ljóst er að FH
mun leggja mikla áherslu á að halda Davíð
í herbúðum félagsins og er afar fátt sem
bendir til þess að hann sé á leið annað.
Emil Pálsson
Miðjumaður (FH)
Emil var einn besti leikmaður Pepsi-deildar-
innar sumarið 2015 þegar FH varð Íslands-
meistari, en í ár og í fyrra hefur hann ekki
náð sama flugi. Emil er kröftugur leikmaður
sem er öflugur að koma inn í teiginn og mörg
lið gætu hugsað sér að nýta krafta hans fái
hann ekki nýjan samning í Kaplakrika. Emil
er fæddur árið 1993 og er því á besta aldri.
Kassim Doumbia
Varnarmaður (FH)
Draumurinn frá Malí hefur spilað með FH
frá árinu 2014 og átt flotta spretti. Ekki eru
þó allir sammála um ágæti Doumbia sem á
það til að vera villtur á velli. Doumbia hefur
samt marga góða kosti sem hafa nýst FH
vel í mörg ár. Það er hins vegar spurning
hvort félagið framlengi samning við hann
enda er hann einn af launahæstu leikmönn-
um deildarinnar.
Andri Rúnar Bjarnason
Sóknarmaður (Grindavík)
Stjarna sumarsins í Pepsi-deildinni er Andri
Rúnar Bjarnason. Hann á góða möguleika
á að bæta markametið í deildinni og
hefur komið öllum á óvart. Ætla má að
Grindvíkingar reyni allt sem í þeirra valdi
stendur til að framlengja samning Andra,
hann mun hins vegar vilja skoða möguleika
sína í haust. Ekki er ólíklegt að lið í Noregi
eða Svíþjóð hafi áhuga og þá er Gróa á Leiti
byrjuð að orða Andra Rúnar við FH eftir að
félagið seldi Kristján Flóka Finnbogason til
Noregs á dögunum.
Óskar Örn Hauksson
Sóknarmaður (KR)
Óskar hefur síðustu tíu árin líklega verið
besti leikmaður efstu deildar á Íslandi,
sumir ganga svo langt að nefna hann einn
besta leikmann í sögu efstu deildar. Óskar
er áfram lykilmaður í liði KR og er erfitt að
sjá hann yfirgefa Vesturbæinn. Það má hins
vegar vera ljóst að öll stærstu lið landsins
munu bjóða honum samning ef hann er til
í að skoða allt. Þá er einnig möguleiki að
Grindavík freisti þess að fá Óskar aftur til
félagsins en þar hóf hann feril sinn af fullum
krafti í deild þeirra bestu.
Tobias Thomsen
Sóknarmaður (KR)
Danski framherjinn hefur sýnt á köflum í
sumar að hann er afar öflugur leikmaður, ef
svo ber undir. Hann hefur ekki verið alveg
nógu stöðugur en líklega mun KR reyna að
halda í hann fyrir næstu leiktíð. Tobias er
klókur leikmaður sem getur á góðum degi
unnið leiki upp á eigin spýtur.
Pálmi Rafn Pálmason
Miðjumaður (KR)
Dvöl Pálma í KR hefur verið misjöfn, hann
hefur stigið upp á stórum augnablikum en
oft og tíðum hefur hann ekki staðið undir
væntingum. Hann er að klára sitt þriðja
ár í Vesturbænum, fyrsta árið var slakt en
síðan hefur verið uppgangur í spilamennsku
hans. Margir telja að Pálmi gæti haldið til
Akureyrar og spilað fyrir KA en hann hafnaði
góðu tilboði frá KA þegar hann kom heim úr
atvinnumennsku og ákvað þá að fara í KR.
Geoffrey Castillion
Sóknarmaður (Víkingur)
Ef hollenski framherjinn hefði ekki meiðst á
tímabilinu eru allar líkur á að Víkingur væri
að berjast ofar í töflunni. Eftir að hann náði
fullum styrk hefur Castillion reynst Víking-
um afar öflugur. Sterkur og snöggur með
auga fyrir marki, stærri lið hér heima gætu
reynt að semja við Castillion í haust.
Martin Lund Pedersen
Sóknarmaður (Breiðablik)
Tímabilið í ár hefur ekki verið gott fyrir Martin
Lund eins og flesta aðra sem spila í grænu
treyjunni í Kópavogi. Hann er hins vegar með
marga hæfileika sem geta nýst mörgum liðum.
Hann var frábær með Fjölni fyrir ári og enn lifir
sú von að þeir hæfileikar líti dagsins ljós aftur.
Þórður Ingason
Markvörður (Fjölnir)
Þórður Ingason er einn besti markvörður
Pepsi-deildarinnar. Hann hefur heldur betur
bætt leik sinn eftir að hann tók til í lífi sínu
utan vallar. Þórður hefur sýnt mikinn aga í leik
sínum og gerir sig sjaldan sekan um dýrkeypt
mistök. Ef allt fer á versta veg gæti Fjölnir fall-
ið úr deildinni og þá er ljóst að Þórður myndi
reyna að koma sér í sterkara lið.
Árni Snær Ólafsson
Markvörður (ÍA)
Er að koma til baka eftir erfið meiðsl, er frábær
spyrnumaður og getur verið öflugur á milli
stanganna. Ekki er ólíklegt að lið í deild þeirra
bestu reyni að klófesta Árna, ef ÍA fellur.
Þ
að er aðeins rúmur mánuður
eftir af Pepsi-deild karla og
félögin sem þar verða að ári
eru án nokkurs vafa byrjuð
að skoða leikmannamarkaðinn.
Það gerist ekki oft á Íslandi að leik-
menn séu keyptir og seldir á milli
félaga heldur færa menn sig yfirleitt
um set þegar samningur þeirra er á
enda. Margir öflugir leikmenn eru
án samnings í haust en önnur félög
geta ekki byrjað að ræða við þá fyrr
en 15. október. Það er þó hins vegar
þekkt stærð að félög byrja að koma
áhuga sínum áleiðis miklu fyrr og
gætu einhverjir leikmenn nú þegar
vitað af væntanlegum tilboðum frá
öðrum félögum. Hér í þessari sam-
antekt má lesa um 14 leikmenn
sem verða samningslausir í haust
og verða mjög eftir sóttir ef þeir
ákveða að róa á önnur mið. n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
n Knattspyrnusumarið er senn á enda n Félagaskiptamarkaðurinn verður fjörugur
14 heitir bitar
á lausu í haust
Á lausu í haust Davíð
Þór, fyrirliði FH, gæti
orðið mjög eftirsóttur
skyldi hann yfirgefa FH.