Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Qupperneq 20
20 sport Helgarblað 25. ágúst 2017
E
inn stærsti hnefaleikabar-
dagi sögunnar fer fram
á laugardag þegar Floyd
Mayweather Jr. berst við
Conor McGregor í Las Vegas. Lík-
lega er um að ræða einn tekju-
hæsta bardaga sögunnar en
hans hefur verið beðið með mik-
illi eftir væntingu. Bardaginn er
nefndur „Peningabardaginn“
enda munu báðir kappar þéna
hreint ótrúlegar upphæðir. Bar-
daginn er þó ekki hefðbundinn
enda er Conor McGregor ekki
boxari að upplagi eins og Maywe-
ather heldur hefur hann orðið
stjarna i íþróttaheiminum í gegn-
um blandaðar bardagaíþróttir.
Bardaginn fer fram í T-Mobile
höllinni í Nevada í Bandaríkj-
unum en mikil læti hafa verið í
kringum bardagann og þeir fé-
lagar skipst á að stela sviðsljósinu
með umdeildum ummælum.
Mayweather er líklegri til sigurs
enda keppa þeir í hans íþrótt.
Sumir sérfræðingar telja þó að
Írinn kjaftfori eigi möguleika á
að knýja fram sigur því hann sé
höggþyngri en Mayweather.
Hver er Conor McGregor?
Conor Anthony McGregor er fullt
nafn kappans en hann er fæddur
árið 1988 í Dublin á Írlandi, hann
hóf feril sinn í blönduðum bar-
dagaíþróttum árið 2008 og keppti
um hina ýmsu titla áður en UFC,
stærsta sambandið í blönduðum
bardagaíþróttum, samdi við hann
árið 2013. Frá fyrsta degi hefur
hann verið stjarna UFC enda vek-
ur hann athygli hvar sem hann
kemur. Stíll hans innan vallar og
kjafturinn á honum utan vallar
hefur gert hann að einum fræg-
asta íþróttamanni dagsins í dag.
Ljóst er að á brattann er að sækja
fyrir McGregor í þessum bardaga
enda er hann að mæta einum öfl-
ugasta hnefaleikakappa sögunn-
ar á laugardaginn í Las Vegas.
Hver er Floyd Mayweather?
Mayweather er fæddur árið 1977
en þegar hann kom í heiminn var
hann skírður Floyd Joy Sinclair.
Í dag ber hann nafnið Floyd
Mayweather og er orðinn fertug-
ur. Hann hefur aldrei á atvinnu-
mannsferli sínum tapað bardaga
en hann hefur barist 49 sinnum.
Hann hefur 26 sinnum rotað and-
stæðing sinn og 23 sinnum hefur
hann unnið á dómaraúrskurði.
Hann hefur hins vegar ekki barist
í rúm tvö ár og einnig gæti aldur-
inn verið farinn að segja til
sín. Mayweather er þekkt-
ur fyrir að vera mjög öfl-
ugur tæknilega og læt-
ur ekki góma sig með
buxurnar á hælunum.
Sjaldnast ná and-
stæðingar hans að
veita honum mörg högg og síð-
ustu ár hefur Mayweather oftar
en ekki unnið á stigum. Maywe-
ather leggur mikið upp úr lífs-
stíl sínum og lifir hátt. Hann ber
gælunafnið „Money“ og nefn-
ist liðið sem er í kringum hann
„The Money Team“. Mayweather
er hins vegar mjög umdeildur
maður og þurfti að sitja í fangelsi
í 90 daga árið 2012 fyrir að berja
fyrrverandi kærustu sína. Það
var ekki í fyrsta sinn sem Maywe-
ather kom fyrir dómara vegna of-
beldis í garð kvenna.
Peningabardaginn
Báðir keppendur munu þéna
ótrúlegar upphæðir vegna þessa
bardaga en upphæðina sem
McGregor mun þéna hefur hann
aldrei séð þegar hann keppir í
blönduðum bardagaíþróttum.
Mayweather hefur verið þekkt-
ur fyrir að berjast fyrir háar upp-
hæðir og var ekki til í bardaga
við kjaftfora Írann nema á sín-
um forsendum. Bardaginn hafði
lengi verið í umræðunni en það
var ekki fyrr en McGregor sam-
þykkti að berjast á forsendum
Mayweather að bardaginn varð
að veruleika. Mest af tekjunum
kemur í gegnum „pay-per-view“
þar sem ekki er hægt að horfa á
bardagann í Bandaríkjunum og
Bretlandi nema borga sérstak-
an aðgang að honum. Það kostar
nálægt 100 dollurum að horfa á
bardagann í sjónvarpi í Banda-
ríkjunum. Það er þó ekkert sér-
staklega há upphæð ef verðið
á bardagann sjálfan er skoðað.
Ódýrasti miðinn í stúku kostar
sem samsvar-
ar 170
þús-
und íslenskum krónum og er
þá um að ræða frekar léleg sæti.
Sæti nálægt hringnum kosta svo
1,6 milljónir og þaðan af meira.
Mayweather mun þéna meira
en 100 milljónir dollara fyrir bar-
dagann og McGregor að minnsta
kosti 75 milljónir dollara. Þeir
skrifuðu báðir undir samning
sem bannar þeim að tjá sig um
upphæðirnar sem þeir fá.
Verður sirkus
Bubbi Morthens er manna fróð-
astur hér á landi um hnefaleika.
Á hverju má fólk eiga von?
„Fólk getur átt von á skemmt-
un, þeir sem hafa fylgst mikið
með bardagaíþróttum vita ekki
alveg við hverju á að búast. Þetta
er sirkus, þetta er eins og ljón að
hoppa í gegnum logandi tjörn.
Þetta er forvitnilegt vegna þess að
þetta er fjarri öllum hefðum sem
við höfum séð. Þetta er forvitnilegt
vegna þess að Mayweather er með
49 sigra og ekkert tap á ferli sín-
um í atvinnumannahnefaleikum,
Conor er með engan sigur og ekk-
ert tap á ferli sínum í þeirri íþrótt.
Floyd er einn allra besti varnarbox-
ari sögunnar, hann er í topp fimm
yfir bestu varnarboxara sögunnar.“
Sérfræðingur í lesa
andstæðinginn
Mayweather er einn besti boxari
allra tíma og er sérfræðingur að
núlla út andstæðing sinn. „Fram-
an af ferlinum var Floyd mjög
höggþungur, þá var hann að
sigra með fléttum og rothöggum.
Kannski var hans stærsti sigur á
ferlinum gegn Diego Corrales,
hann hefur barist undanfar-
in 10 ár aðeins gegn elítu
boxurum. Þeir hafa ekki
átt séns í hann, stundum hafa yf-
irburðirnir verið svo miklir að
fólk hefur sagt bardaga hans vera
leiðinlega. Þeir hafa kannski ver-
ið leiðinlegir því andstæðingar
hans hafa ekki átt séns. Hann er
sérfræðingur í lesa andstæðing
sinn, hann gerir það í fyrstu lotun-
um. Þannig geta næstu lotur eftir
það orðið að niðurlægingu fyrir
andstæðing hans, það hefur ekki
skipt neinu máli hver það hef-
ur verið. Mayweather hefur líka
sýnt að hann getur tekið við högg-
um. Gegn Sean Mosley tók hann
á móti þungu hægri höggi og stóð
það af sér, hann fann fyrir því en
fór ekki í gólfið. Floyd er að vísu
fertugur núna og það getur skipt
einhverju máli. Hann er léttari og
lægri en Conor, það segir okkur
það að Conor á möguleika.“
Minni nánd í MMA
McGregor er að fara inn á alveg
nýtt svið, hvað þarf hann að gera
til að vinna?
„Í MMA hafa yfirburðir Conor
verið í líkingu við yfirburði Floyd
í hnefaleikum en þar gilda allt
aðrar reglur og leikurinn er allt
öðruvísi fyrir utan þá staðreynd
að það eru notaðir hnefar í báð-
um íþróttum. Í MMA er nándin
miklu minni og þeir eru miklu
fjær hvor
öðrum
en þeir
þurfa að vera í hnefaleikum, þar
þarftu að vera nær andstæðingi
þínum til að geta komið inn. Í
MMA er sparkað og menn nota
lappirnar sem gefur tækifæri á
að vera aðeins fjær. Ef Conor ætl-
ar að eiga möguleika þá verð-
ur hann að gera eitthvað í fyrstu
fjórum lotunum annars verður
hann niðurlægður. Hann hefur
engu að tapa enda verður þetta
í fyrsta sinn sem hann berst sem
atvinnumaður í hnefaleikum.
Hann á ekki að eiga möguleika.“
Allt undir hjá Mayweather
Mayweather hefur aldrei tapað á
sínum ferli og er að setja ferilinn
undir þegar hann berst við Írann.
„Conor er að taka inn milljarða,
hann þarf aldrei að hafa áhyggj-
ur af fjármálum héðan af, eða
afkomendur hans. Hann mun
ganga heill frá þessum leik. Hann
fer bara aftur inn í MMA og þarf
ekki að hafa áhyggjur af neinu.
Floyd er að leggja allt undir, hann
er að leggja ferilinn undir, hann
er að leggja goðsögnina sína
undir, það er allt undir hjá hon-
um. Öll pressan er á Floyd, það
ætti að geta unnið með Conor.
May weather er hins vegar vanur
þessu, það er daglegt brauð
fyrir hann að vinna undir svona
pressu. Þetta er bara annar dagur
á skrifstofunni fyrir hann, hann er
ekki bara að þessu fyrir pening-
ana. Samkvæmt bókinni þá tapar
Conor og það ætti að koma nein-
um á óvart. Það forvitnilega við
bardagann verður að sjá hvort
hann eigi möguleika gegn besta
boxara samtímans. Ég vona, fyrir
skemmtunina, að Conor vinni
og það er alveg möguleiki. Ef
þetta væri stærðfræði þá
segði ég að Floyd ynni.
Conor þarf að geta
slegið hann niður til
að eiga möguleika
á sigri.“ n
Peningabardaginn
fer í sögubækurnar
n Ótrúleg fjárhæð í spilunum hjá Mayweather og McGregor n Bubbi spáir í slaginn
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is „Framan af
ferlinum
var Floyd mjög
höggþungur