Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Page 32
Hamskipti Odee
Náði af sér 50 kílóum – Ný sería og nám
Listamaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, eða Odee
eins og hann kallar sig, er löngu orðinn þekktur fyrir
állistaverk sín. Segja má að hamskipti hafi orðið í lífi
hans á tæpu ári, en hann hefur náð af sér 50 kílóum
með breyttu líferni, er sestur á skólabekk aftur og
fagnar nýrri seríu af listaverkum.
Ég er nýbyrjaður í skólanum og er strax byrjaður að fá fyrirspurnir um að greina
fólk,“ segir Oddur og hlær, en
hann er ný kominn af nýnema
dögum Háskólans á Akureyri,
þar sem hann var að hefja nám í
sálfræði. „Kunningi minn hringdi
í mig og sagðist vera að tala við
konu og var að biðja mig að greina
hvað hún meinti með hinu og
þessu. Svo var ég uppi í álveri áðan
og þar voru tvær konur að tala við
mig og mjög varar um sig, hvort
ég væri nú með eitthvert sálfræði
próf á þeim.“
Uppörvandi að stunda nám
Oddur var síðast í skóla fyrir
þremur árum þegar hann lagði
stund á viðskiptafræði við sama
skóla, en hann hætti námi þegar
vel fór að ganga í listinni. Að
spurður af hverju sálfræði varð
fyrir valinu núna, segir hann
hana góðan grunn fyrir margt
annað og hann stefni ekki á að
verða klínískur sálfræðingur. „Ég
hef bara gaman af mannlegum
samskiptum, svo er mikil heim
speki í náminu og þetta er góður
grunnur til að læra margt annað.
Ég væri til í að klára sálfræðina og
fara svo í markaðsfræði til dæmis.
Svo er bara svo skemmtilegt að
læra og kynnast nýju fólki, það er
uppörvandi að vera í skóla,“ segir
Oddur.
Fjarnámið hyggst hann stunda
með állistinni og fullri vinnu, en
Oddur vinnur í álverinu á Reyðar
firði. „Ég vinn fimm daga í einu
og er síðan í fimm daga fríi þannig
að ég vona að þetta sé hentugt
saman. Svo get ég kannski samið
um að fá að lesa einhverjar bækur
á næturnar í vinnunni.“
Þrjár sýningar og ný állistasería
Á Akureyri stendur núna yfir
sýning á verkum Odds, eins konar
yfirlitssýning, sem lýkur á Akur
eyrarvöku, sem fer fram núna um
helgina, 25.–27. ágúst í Amaró
húsinu.
„Sýningin er eiginlega sam
antekt af mínum verkum,“ segir
Oddur sem fór með öll álverk
sem hann átti heima hjá sér á
sýninguna á Akureyri. „Ég átti
nokkuð gott safn hér heima af
blönduðum verkum síðustu
þriggja ára, sum þeirra eru frá
því að ég byrjaði í listinni og ég
er búinn að selja nokkur þeirra á
sýningunni.“
Í tilefni 10 ára afmælis Alcoa,
verður Oddur síðan með tvær sýn
ingar í álverinu á Reyðarfirði. „Þar
verður peningaserían til sýnis, en
hún vakti mikla athygli á Ljósa
nótt í Keflavík í fyrra. Svo verð ég
annars staðar í álverinu með fimm
metra álverk til sýnis,“ segir Odd
ur. Vonast hann til að það verk
verði útilistaverk í sundlauginni á
Eskifirði, en það bíður umsagnar
frá íþrótta og tómstundanefnd
og menningar og safnanefnd
Fjarðabyggðar vegna sumarleyfa,
„en ég vona að tillagan fái góðar
móttökur.“
Ný sería í vinnslu
„Svo er ég að vinna í nýrri seríu
sem ég vona að ég geti sýnt fyrir
jól, hún heitir Ürverk, og þar er
ég að vinna með einfaldleikann.
Hvert verk er í raun einfalt í sam
setningu, en mörg saman mynda
þau eina heild. Serían tekur á nú
tíma efnishyggju, hlutum sem fólk
langar í og er að kaupa í góðærinu
sem er í gangi núna,“ segir Oddur.
„Ég er alltaf að leita að nýjum
efnivið og nýjum miðlum til að
koma verkum mínum á framfæri
og ég fylgist vel með nýjustu
tækni, ég bind mig ekki við álið
en það hentar vel núna. Álið skilar
bjartri áferð og litum. Eitt af því
sem mótaði listsköpunina hjá mér
voru tölvuleikir og kvikmyndir,
þetta var eitthvað nýtt þegar ég var
að alast upp.“
50 kíló farin á 10 mánuðum
Það er ekki ofsögum sagt að
Oddur sé eins og nýr maður í
útliti, en hann hefur misst 50 kíló
síðan í október í fyrra. Hann fór
þó ekki í neinar öfgar og byrjaði
einfaldlega á að taka til í matar
æðinu og ástæðan fyrir breyttu
líferni er einföld: betri fyrirmynd
fyrir synina.
„Mér leið alls ekki illa að vera
of feitur, mér leið bara vel, jafnvel
betur en núna,“ segir Oddur og
hlær. „En þetta var spurning um
að prófa eitthvað nýtt, ég ákvað
að gera þetta að nýju áhugamáli
og vera jafnframt góð fyrirmynd
fyrir strákana mína, þeir eru
fjögurra ára og eins árs. Ég varð
einstæður faðir í október í fyrra
og þurfti aðeins að hugsa minn
gang og vildi geta gefið strákunum
hollan mat og verið fyrirmynd.
Svo hefur þetta ýmsa aðra kosti,
Ný sería í viNNslu „Svo er ég að vinna í nýrri seríu sem ég vona að ég geti sýnt fyrir jól, hún heitir Ürverk, og þar er
ég að vinna með einfaldleikann. Hvert verk er í raun einfalt í samsetningu, en mörg saman mynda þau eina heild.“
Ürverk Eitt af verkum nýju seríunnar,
Ürverk, innrammað og komið á vegg.
Doktor MaNhattaN Oddur við eitt verk sitt, Doktor Manhattan, en það seldist á sýningunni á Akureyri. Myndin er tekin við
Jarðböðin við Mývatn.
Fyrir og eFtir Það stórsér á Oddi, en
hann hefur misst 50 kíló á 10 mánuðum me
ð breytt-
um lífsstíl.