Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2017, Side 58
34 fólk Helgarblað 25. ágúst 2017
Keisaraynjan sem
var treg í taumi
„Ég var
ofsótt og
ranglega dæmd.
Þau særðu mig og
rægðu mig.
Þ
egnar hennar, sem dáðu
hana, kölluðu hana Sisi
en hún hét Elísabet og
fæddist á aðfangadag árið
1837. Hún var fjórða í röðinni af
níu börnum bæverska hertogans
Maxmillian Josefs og Ludoviku
prinsessu, sem var hálfsystir Lúð
víks I konungs Bæjaralands. Sisi
varð snemma býsna ákveðin og
sérlynd og var þess vegna sögð
hafa erfiða skapgerð. Hún var ætíð
treg í taumi. „Feimin og villt, vel
menntuð, hrifnæm og með til
hneigingu til þunglyndis,“ er um
sögn eins ævisagnaritara hennar.
Frjáls andi og hirðlíf
Fimmtán ára gömul var hún heit
bundin Franz Jósef, 22 ára ríkis
erfingja Austurríkis, sem varð
ástfanginn af henni við fyrstu sýn.
Fáar sögur fara af ást hennar til
hans. Þegar tilkynnt var um trúlof
un þeirra var hún ekki spurð álits.
Það tæpa ár sem leið frá trúlofun
þeirra fram að giftingu reyndist
Sisi erfiður skóli. Hið agaða,
reglufasta hirðlíf sem hún varð nú
að vera hluti af átti ekki við frjálsan
anda eins og hennar. Kröfur hirð
lífsins rændu hana lífsgleði og
hún saknaði æskuheimilisins og
systkina sinna. Einungis mánuði
eftir brúðkaup sitt skrifaði Sisi: „Ó,
hvers vegna yfirgaf ég veginn sem
hefði leitt mig til frelsis.“
Sisi var gift kona einungis
sextán ára gömul. Hún þótti nógu
gömul til að fæða börn en of ung
til að ala þau upp. Tengdamóðir
hennar tók að sér uppeldi barn
anna og Sisi gat aldrei fyrirgefið
henni að hafa tekið þau frá sér.
Börnin voru fjögur: Soffía, Giselle,
Rúdolf og MarieValerie. Soffía lést
tveggja ára og Sísi þjáðist eftir það
af þunglyndi. Dauði einkasonar
hennar árið 1889 var annað áfall
sem Sisi jafnaði sig aldrei á. Rúdolf
og ástkona hans fundust látin í
veiðikofa í Mayerling og talið er að
þau hafi svipt sig lífi.
Óvenjulega sterkur persónu
leiki Sisi gerði að verkum að fjöl
skylda manns hennar leit hana
hornauga. Hún var talin vanþakk
lát og almennt til vandræða. „Ég
var ofsótt og ranglega dæmd. Þau
særðu mig og rægðu mig. En Guð
sem getur séð inn í sál mína veit að
ég hef aldrei gert neinum mein,“
sagði hún.
Fáránleg stofnun
Franz Jósef varð keisari Austur
ríkis og konungur Ungverjalands
þrettán árum eftir giftingu þeirra
Sisi. Hann unni konu sinni alla
tíð en tilfinningar hans voru ekki
endurgoldnar. „Hjónaband er
fáránleg stofnun,“ sagði Sisi seint á
ævinni við yngstu dóttur sína. „Þú
ert seld fimmtán ára gömul þegar
þú ert enn lítil stúlka og látin sverja
eið sem þú skilur ekki og munt sjá
eftir næstu þrjátíu árin eða lengur,
en þér er ókleift að rjúfa hann.“
Ævi Sisi var ekki hamingjurík.
Hún eyddi eins miklum tíma fjarri
eiginmanni sínum og hún gat. Hún
lét byggja hús uppi í sveit þar sem
hún skrifaði og málaði. Daglega
hélt hún til fjalla í langar göngu
ferðir. „Ég átti einskis annars völ
en að lifa eins og einsetumaður,“
sagði hún. „Það er erfitt að lifa í
einangrun en maður venst því að
lokum. Náttúran er mun þakklát
ari en mannlegar verur.“
Upptekin af útlitinu
Sisi var alla tíð afar upptek
in af útliti sínu, en fegurð
hennar var rómuð. Eftir 32
ára aldur neitaði hún á sitja
fyrir á myndum því hún vildi
ekki láta sjást að aldurinn
hefði áhrif á útlit hennar. Hún
var 172 sentimetrar á hæð og
varð aldrei þyngri en 50 kíló. Hún
hafði andstyggð á feitum konum
og yngsta dóttir hennar varð fyrir
áhrifum af því og varð skelfingu
lostin þegar hún, barn að aldri,
hitti Viktoríu Englandsdrottningu
í fyrsta sinn. Sisi stundaði strangar
æfingar og svelti sig til að viðhalda
hinum granna líkama. Hún var
mikil og áköf hestakona og fór
einnig í langa göngutúra. Hún svaf
lítið og las um nætur. Hún orti ljóð
sem voru undir miklum áhrifum af
skáldskap Heine.
„Ég miðaði á hjartað"
Í septembermánuði 1898 voru
Sisi og vinkona hennar, Szátaray
greifynja, í Genf á leið til hafnar
innar en þar ætluðu þær að taka
bát sem flytja átti þær til Montreux.
Þar beið þeirra ítalski anarkist
inn Luigi Lucheni. Hann átti sér
það takmark í lífinu að komast í
sögubækur fyrir að hafa drepið
háttsetta persónu. Í þessum til
gangi hafði hann komið til Genf.
„Ég hafði heitið því að drepa ein
hvern tignarmann: prins, konung
eða forseta – þetta er allt sama
tóbakið,“ sagði hann síðar. Þegar
hann kom auga á keisaraynjuna
hljóp hann til hennar og beygði
sig eins og hann væri að líta undir
sólhlíf hennar. Um leið stakk hann
hana í brjóstið. Keisaraynjan féll
til jarðar og ódæðismaðurinn flúði
af vettvangi.
Sisi virtist ekki kenna sér
meins. Hún reis upp og sagði við
vinkonu sína: „Þetta var ekkert.
Komdu, við verðum að flýta
okkur í bátinn.“ En þegar þangað
var komið náfölnaði hún og síð
an leið yfir hana. Henni var gefið
vatn og þegar hún rankaði við sér
stundi hún: „Hvað hefur komið
fyrir mig?“ Hún missti aftur með
vitund og þegar losað var um
klæði hennar sást blóðblettur,
ekki stærri en smámynt á brjósti
hennar. „Guð minn góður, þeir
hafa drepið hana,“ hrópaði
greifynjan. Keisaraynjan lést
nokkru síðar. Ódæðismað
urinn var fljótlega hand
tekinn. „Ég ætlaði að drepa
hana. Ég miðaði á hjartað,“
sagði hann þegar hann frétti
af dauða keisaraynjunnar.
Hann var dæmdur í lífs
tíðarfangelsi og hengdi sig
þar árið 1910.
Sisi var sextug þegar hún
lést. Þegar eiginmaður hennar
fékk fréttir af dauða hennar lét
hann fallast ofan í sófa og stundi:
„Mér er ekki hlíft við neinu.“
Fjörtíu og fjórum árum eftir
að hafa komið til brúðkaups síns
í vagni sem dreginn var af átta
hvítum hestum sneri Sisi til sömu
kirkju í líkvagni sem dreginn var af
átta svörtum hestum. n
n Dáð og virt en myrt af ítölskum anarkista n Sagði hjónaband fáránlega stofnun
Kjarnakonur úr fortíð
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Sisi Keisaraynja Austurríkis
og drottning Ungverjalands.
Sisi með sitt síða hár Þetta var uppá-
haldsmynd eiginmanns hennar af henni.