Fréttablaðið - 23.10.2017, Qupperneq 35
Blæðandi sár í Bítlaborginni
Liverpool-liðin tvö eru í vandræðum í ensku úrvalsdeildinni. Þau töpuðu bæði stórleikjum í gær. Starf Ronalds Koeman, knattspyrnustjóra Everton, hangir á bláþræði.
í prentun. Everton er komið í fall
sæti eftir tapið fyrir Arsenal í gær
og hefur frammistaða liðsins verið
mjög slæm. Það hefur fengið á sig
18 mörk í níu leikjum í deildinni og
aðeins skorað sjö. Liðið hefur ekki
unnið í fimm leikjum í röð í öllum
keppnum.
Wayne Rooney veitti stuðnings
mönnum Everton von snemma leiks
með frábæru marki. Það slokknaði
hins vegar fljótt í vonarglætunni
þegar sofandaháttur í vörninni
olli því að Nacho Monreal jafnaði
leikinn fyrir Arsenal. Þá hrundi allt
hjá Everton og má Koeman þakka
Jordan Pickford í markinu að ekki
fór enn verr en raun bar vitni, leikn
um lauk með 25 sigri Arsenal. Hann
er í raun einu sumarkaup Koemans
sem virðast hafa gert eitthvað fyrir
Everton.
Engin taktík og engin gleði
Liðið virðist ekki ná saman, og það
lítur út fyrir að Koeman viti ekki
hvernig hann á að stilla liðinu upp
til þess að fá það besta út úr því. Níu
sinnum á tímabilinu hefur Koeman
gert breytingu á liði sínu í hálfleik,
sem segir sitt um ráðaleysi hans. Það
sem er verst í þessu öllu fyrir okkur
Íslendinga er að Gylfi Þór Sigurðs
son virðist týndur í þessu liði.
Koeman hefur ekki verið að spila
honum í holunni sinni og vantar
sterkan framherja sem Gylfi getur
skapað mörk fyrir.
Allir þeir stuðningsmenn Liver
pool sem gagnrýndu Jose Mour
inho og varnarsinnaða taktík
hans í stórleik Liverpool og Man
chester United í síðustu viku ættu
að óska eftir því að hann kæmi og
læsi Klopp og Koeman pistilinn,
en Bítlaborgarliðin tvö fengu á sig
níu mörk samanlagt í gær, eitthvað
sem á ekki að viðgangast hjá liðum
af þeim styrkleika sem þessi forn
frægu lið eiga að hafa. astrosyr@365.is
Þetta er neikvæð
staða fyrir liðið.
Allt er neikvætt.
Ronald Koeman
Liverpool hefur ekki
fengið jafn mörg mörk (16) á
sig eftir níu leiki í efstu deild
frá tímabilinu 1964-65. Þá
fékk Liverpool á sig 20 mörk
í fyrstu níu leikjunum.
Gylfi Þór Sigurðsson gat ekki leynt vonbrigðum sínum í leik Everton og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Everton tapaði 2-5 og situr í fallsæti. Gylfi náði sér ekki á strik í leiknum í gær, ekki frekar en aðrir leikmenn Everton. NordicphotoS/GEtty
Essence
í 9 mismunandi litum
Þýsk gæði í eldhúsið
vALGERðUR ENN óSiGRUð
valgerður Guðsteinsdóttir vann
sinn þriðja boxbar
daga sem atvinnu
maður á laugar
daginn. Hún
bar þá sigurorð
af Dominiku
Novotny en bar
daginn fór fram á
Oslofjord Fight Night í Noregi.
valgerði tókst að slá Novotny
niður í fyrstu lotu en Novotny náði
að standa upp og kláruðu þær allar
fjórar loturnar. Því þurfti dómara
ákvörðun til að skera úr um sigur
vegara og var það valgerður sem
hafði betur. Hún hefur unnið alla
þrjá bardaga sína sem atvinnu
maður.
Íslensku keppendurnir á NEM í fimleikum brugðu á leik að móti loknu í gær. MyNd/fiMlEikASAMbANd ÍSlANdS
Fimleikar Íslendingar unnu til sex
verðlauna á NorðurEvrópumótinu
(NEM) sem fór fram í Þórshöfn í Fær
eyjum um helgina.
Íslenska kvennaliðið vann silfur í
liðakeppninni. Íslensku stelpurnar
fengu samtals 146,432 í einkunn,
0,968 minna en sigurvegararnir frá
Noregi. Íslenska karlaliðið lenti í 5.
sæti og var ekki langt frá því að kom
ast á verðlaunapall.
„við stelpurnar stefndum á gullið
svo þetta er smá sárt. En á sama tíma
er frábært að enda með silfur. við
vorum með mjög gott lið í ár,“ sagði
Dominiqua Alma Belányi, sem var
hluti af silfurliði Íslands, í samtali
við Fréttablaðið í gær. Hún kvaðst
ekki nógu sátt með dómgæsluna í
liðakeppninni.
„Satt að segja hefði ég viljað fá
sömu dómgæslu og Noregur fékk í
síðasta hollinu. Það var smá með
byr með norsku stelpunum og þær
rétt skutust fram úr okkur á síðasta
áhaldi,“ sagði Dominiqua.
irina Sazonova fékk silfur í fjöl
þraut en hún fékk 49,666 í einkunn.
Thelma Aðalsteinsdóttir og Agnes
SutoTuuha komu líka heim með
silfur. Thelma varð önnur í keppni á
tvíslá og Agnes lenti í 2. sæti í keppni
á slá.
Eyþór Baldursson vann til brons
verðlauna í stökki og valgard Rein
hardsson náði einnig í brons á svifrá.
„Ég er ótrúlega ánægð. Það er frá
bært að ná silfri í liðakeppninni og
flottur árangur hjá irinu að enda í
2. sæti í fjölþrautinni. við náðum
árangri á öllum sviðum,“ sagði Dom
iniqua ánægð. – iþs
Hefðum viljað fá sömu dómgæslu
AðALSTEiNN TiL ERLANGEN
Aðalsteinn Eyjólfsson er tekinn við
Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni
í handbolta. Aðalsteinn þjálfaði
Hüttenberg í tæp þrjú ár og náði
frábærum árangri með liðið. Hann
kom Hüttenberg upp um tvær
deildir á jafn mörgum árum og
skilur við liðið í 15. sæti þýsku
úrvalsdeildarinnar. Aðalsteinn
stýrði liðinu í síðasta sinn í 3130
tapi fyrir Lemgo í gær. Hann tekur
við þjálfarastarfinu hjá Erlangen af
Robert Andersson. Erlangen, sem
steinlá fyrir Leipzig í gær, situr í
16. sæti þýsku deildarinnar. Næsti
leikur liðsins er gegn Wetzlar á
útivelli 2. nóvember næstkomandi.
Aðalsteinn, sem er fertugur,
þjálfaði áður TuS Weibern, Kassel
og Eisenach í Þýskalandi auk þess
sem hann þjálfaði hjá Stjörnunni,
Gróttu/KR og ÍBv hér á landi.
S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ða l a 19m Á N U D a G U r 2 3 . o k t ó B e r 2 0 1 7
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
8
-1
B
6
4
1
E
0
8
-1
A
2
8
1
E
0
8
-1
8
E
C
1
E
0
8
-1
7
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K